Leitað að útgöngu­leið Vinstri græn eru ósátt með ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar, en honum finnst afstaða Vinstri grænna í mál­inu óheppi­leg. Rík­is­stjórnin er enn og aftur í þeirri stöðu að leita leiða til að kom­ast út úr miklum ágrein­ingi um grund­vall­ar­mál. Mynd: Golli

Bjarni segir enga venju fyrir samráði og telur það óþarft

Utan­rík­is­ráð­herra telur sig ekki þurfa að ráð­færa sig við for­sæt­is­ráð­herra um afstöðu í atkvæða­greiðslu hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum. Ákvörð­unin sé hans. Pró­fessor segir að hann muni ekki eftir sam­bæri­legu til­viki við þetta sem nú er upp komið.

Rík­is­stjórn Íslands er ekki fjöl­skipað stjórn­vald líkt og til dæmis borg­ar­stjórn Reykja­víkur. Það felur í raun í sér að hver og einn ráð­herra hefur vald yfir sínum mála­flokki og getur, kjósi hann svo, gert það sem hann vill án þess að upp­lýsa aðra ráð­herra sér­stak­lega um það. Afleið­ing­arnar geta vit­an­lega orðið þannig að sam­starfs­flokkum í rík­is­stjórn mis­bjóði atferlið og ákvarð­ana­takan og ákveðið að bregð­ast við. Í því fyr­ir­komu­lagi sem ríkir á Íslandi hefur rík­is­stjórnin í heild, eða for­sæt­is­ráð­herra, tak­mark­aðar vald­heim­ildir til að grípa inn í séu þau ósátt við við­kom­andi ráð­herra. Hins vegar hafa skap­ast ýmsar hefðir og venjur um sam­ráð og upp­lýs­inga­skyldu þegar um er að ræða stórar ákvarð­anir eða undir séu póli­tísk eld­fim mál. 

Ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra föstu­dag­inn 27. októ­ber um að Ísland ætti að sitja hjá í atkvæða­greiðslu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PG
    Palli Garðarsson skrifaði
    Þetta er bara glæsilegt, nú getur Svandís kallað inn allann kvóta á sjallar geta ekki sagt orð.
    3
  • Mummi Týr skrifaði
    Einræðistilburðir ráðherra er skelfing til þess að hugsa að hér skuli vera ráðherraveldi sem á ekkert skylt við lýðræði. Að einn ráðherra geti sagt mér finnst á heimsvísu fyrir hönd allra Íslendinga er galið dæmi um meingallaða stjórnsýslu.

    12 misgáfulegir ráðherrar stjórna landinu og fólk hefur engan aðgang að ákvörðunum nema í kjörklefum. Það er ekki hefð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslum og á það spila óvandaðir pólitíkusar...
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Bretar, nýlenduþjóðin rifu land af Palestínumönnum fyrir Ísraela, á sínum tíma,
    síðan hafa Ísraelsmenn
    endalaust níðst á landeigendunum.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár