Segir forsætisráðuneytið hafa verið upplýst rúmum einum og hálfum tíma fyrir atkvæðagreiðsluna

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar um að Ísland myndi sitja hjá í atkvæða­greiðslu um vopna­hlé á Gaza hafi legið fyrir klukkan 17:12 á föstu­dag. For­sæt­is­ráðu­neytið hafi verið upp­lýst óform­lega um hana rúmum klukku­tíma síðar, eða einum klukku­tíma og 32 mín­útum áður en atkvæða­greiðslan fór fram.

Segir forsætisráðuneytið hafa verið upplýst rúmum einum og hálfum tíma fyrir atkvæðagreiðsluna
Ósamræmi Samkvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu var ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur upp­lýst um afstöðu Bjarna Bene­dikts­sonar nokkru áður en starfs­maður for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sendi tölvu­póst um efni hennar til for­sæt­is­ráð­herr­ans. Mynd: Golli

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar utan­rík­is­ráð­herra um að Ísland myndi sitja hjá í atkvæða­greiðslu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um vopna­hlé á Gaza hafi legið fyrir klukkan 17:12 á föstu­dag, 27. októ­ber. Þá var lið­inn einn klukku­tími og 28 mín­útur frá því að ráðu­neytið sendi honum gögn, meðal ann­ars um afstöðu ann­arra ríkja sem var að mót­ast á þeim tíma. 

 For­sæt­is­ráðu­neytið var upp­lýst óform­lega um afstöðu Íslands kl. 18:17 og voru upp­lýs­ingar um afstöðu utan­rík­is­ráð­herra, gögn, atkvæða­skýr­ingar og texti álykt­un­ar­innar, send ráðu­neyt­inu kl. 18:41

For­sæt­is­ráðu­neytið, sem stýrt er af Katrínu Jak­obs­dóttur, „var upp­lýst óform­lega um afstöðu utan­rík­is­ráð­herra klukkan 18:17 og voru upp­lýs­ingar um afstöðu utan­rík­is­ráð­herra, gögn, atkvæða­skýr­ingar og texti álykt­un­ar­innar, send [for­sætis]ráðu­neyt­inu klukkan 18:41,“ þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um málið. For­sæt­is­ráðu­neytið var því sam­kvæmt þessu upp­lýst óform­lega um afstöðu Bjarna 43 mín­útum áður en fund­ur­inn í alls­herj­ar­þing­inu, þar sem atkvæða­greiðslan fór fram, hófst. Það fékk auk þess allar upp­lýs­ingar sendar 19 mín­útum fyrir upp­haf fund­ar­ins.

Atkvæða­greiðslan um álykt­un­ina um vopna­hléið fór svo ekki fram fyrr en 19:49. Þá var lið­inn rúm­lega einn og hálfur klukku­tími frá því að for­sæt­is­ráðu­neytið var upp­lýst óform­lega um að Bjarni hefði mótað sér þá afstöðu að Ísland myndi sitja hjá og rúmur klukku­tími lið­inn frá því að ráðu­neytið fékk sendar upp­lýs­ingar um afstöðu utan­rík­is­ráð­herra, gögn, atkvæða­skýr­ingar og texta álykt­un­ar­innar frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 

Þetta kemur einnig fram svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar sem spurði meðal ann­ars hvort ráðu­neytið gæti stað­fest þá full­yrð­ingu Bergþóru Bene­dikts­dóttur, aðstoð­ar­manns for­sæt­is­ráð­herra, að Katrín hafi fengið tölvu­póst um afstöðu Bjarna ell­efu mín­útum áður en atkvæða­greiðslan hófst. 

Katrín sagði í kvöld­fréttum RÚV á sunnu­dag að ekk­ert sam­ráð hafi verið haft við hana um þá ákvörðun að sitja hjá í atkvæða­greiðsl­unni. Þar var hún spurð hvernig henni hafi orðið við þegar hún frétti af þess­ari nið­ur­stöðu: að Ísland hefði setið hjá. For­sæt­is­ráð­herra svar­aði: „Kannski var ég bara að vona að það hefði náðst saman.“

Í svari sem Bergþóra sendi Heim­ild­inni í dag segir að Katrín hafi verið upp­lýst um nið­ur­stöðu Bjarna klukkan 18:49 síð­ast­lið­inn föstu­dag og að þær upp­lýs­ingar hafi borist í tölvu­pósti frá alþjóða­full­trúa for­sæt­is­ráðu­neytis. „For­sæt­is­ráð­herra sá póst­inn eftir að atkvæða­greiðsla var hafin en ekki var óskað eftir afstöðu hennar til þess­arar afstöðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Því liggur algjör­lega ljóst fyrir að ekki var haft sér­stakt sam­ráð við for­sæt­is­ráð­herra um þessa afstöðu.“

Frumdrögum að ályktun Jórdaníu var dreift á miðvikudag

Síðustu daga hefur ákvörðun Íslands um að sitja hjá við afgreiðslu til­lögu Jórdaníu um vopna­hlé á Gaza vakið miklar umræður, sér­stak­lega eftir að þing­flokkur Vinstri grænna, flokks­ins sem for­sæt­is­ráð­herra leiðir, sendi frá sér yfir­lýs­ingu á laug­ar­dag þar sem hann lýsti sig ósam­mála hjá­setu Íslands við atkvæða­greiðsl­una. Þing­flokk­ur­inn teldi að Ísland hefði átt að greiða atkvæði með til­lög­unni um vopna­hlé. Tillagan, sem var ekki bind­andi, var sam­þykkt með 120 atkvæðum gegn 14. Alls sátu 45 lönd hjá. 

Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins á föstu­dags­kvöld kom fram að Kanada hefði lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu þess efnis að í álykt­un­inni sem átti að sam­þykkja yrði bætt við máls­grein þar sem hryðju­verka­árás Hamas á Ísrael sem hófst 7. októ­ber yrði for­dæmd. Um þá breyt­ing­ar­til­lögu náð­ist ekki sátt og ákveðið var að kjósa um til­lögu Jórdaníu án hennar. Þá tók Bjarni Bene­dikts­son þá ákvörðun að styðja ekki til­lögu Jórdaníu og að Ísland myndi sitja hjá.

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar kemur fram að málið hafi átt sér tölu­vert lengri aðdrag­anda en áður hefur komið fram. Frum­drögum að ályktun Jórdaníu fyrir neyð­ar­fund­inn sem fram fór á föstu­dag var dreift til aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna á mið­viku­dag í síð­ustu viku. Fasta­nefnd Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sendi þau til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um hádegi að stað­ar­tíma, eða um fimm­leytið að íslenskum tíma. „Afstaða líkt þenkj­andi ríkja lá þá ekki fyrir en gert var ráð fyrir að text­inn tæki mögu­lega breyt­ingum og að breyt­ing­ar­til­lögur yrðu lagðar fram við hann. Hvort tveggja varð raunin.“

 Að morgni fimmtu­dags­ins 26. októ­ber hafi svo neyð­ar­um­ræða alls­herj­ar­þings­ins haf­ist og síð­degis þann dag bár­ust upp­færð drög að ályktun Jórdaníu. „Hún var send til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kl. 20 að íslenskum tíma. Síðar um kvöldið barst fasta­nefnd breyt­ing­ar­til­laga Kanada.“

Segja ekki venju fyrir samráði ráðuneytanna

Í upp­hafi dags föstu­dag­inn 27. októ­ber að stað­ar­tíma, eða um miðjan dag á íslenskum tíma, lá fyrir að ekki yrðu frek­ari breyt­ingar á til­lögu Jórdaníu og voru breyt­ing­ar­til­laga Kanada og til­laga Jórdaníu sendar utan­rík­is­ráðu­neyt­inu kl. 13:20 að íslenskum tíma. „Í kjöl­farið var efni tekið saman fyrir utan­rík­is­ráð­herra, þar með talið afstaða ann­arra ríkja sem var að mót­ast á þessum tíma, og honum send gögn kl. 15:44. Ákvörðun ráð­herra lá fyrir kl. 17:12. Var þá unnið að loka­drögum atkvæða­skýr­ingar. For­sæt­is­ráðu­neytið var upp­lýst óform­lega um afstöðu Íslands kl. 18:17 og voru upp­lýs­ingar um afstöðu utan­rík­is­ráð­herra, gögn, atkvæða­skýr­ingar og texti álykt­un­ar­innar, send ráðu­neyt­inu kl. 18:41. Fund­ur­inn í alls­herj­ar­þing­inu hófst klukkan 19 að íslenskum tíma, en atkvæða­greiðslan um sjálfa álykt­un­ina fór fram kl. 19:49.“

Lokadrög að ályktun Jórdaníu og til­laga Kanada lágu hins vegar ekki fyrir í end­an­legri mynd þegar rík­is­stjórn­ar­fundur fór fram á föstu­dags­morgun, en málið var ekki eitt þeirra sem var þar á dag­skrá. 

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir að það sé „ekki venja fyrir sam­ráði ráðu­neyt­anna um ein­stakar álykt­anir alls­herj­ar­þings­ins. Mestu máli skiptir að sam­staða er um afstöð­una eins og hún er sett fram í atkvæða­skýr­ingu fasta­nefndar. Íslensk stjórn­völd munu áfram beita sér fyrir taf­ar­lausu mann­úð­ar­hléi, greiðum aðgangi fyrir mann­úð­ar­að­stoð og nauð­þurftir, að komið verði á friði og byggt á tveggja ríkja lausn­inni. Þá gerir Ísland skýra kröfu til Ísraels og allra stríð­andi aðila um að farið sé að mann­úð­ar­lögum. Fyrir þessu verður áfram talað af fullum þunga.“

Einstakt tilvik

Þótt ekki sé venja fyrir slíku sam­ráði er atburða­rásin sem varð á föstu­dag óvenju­leg. Eiríkur Bergmann, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskól­ann á Bifröst, sagði í Morg­un­blað­inu í dag að utan­rík­is­ráðu­neytið færi almennt ekki gegn for­sæt­is­ráð­herra og að hann myndi ekki eftir sam­bæri­legu til­viki við þetta sem nú er upp komið.

Ólafur Þ. Harð­ar­son, stjórn­mála­fræð­ingur og pró­fessor emeritus við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, sagði við Heim­ild­ina í dag að það sé hefð­bundið í íslenskri póli­tík að ráð­herrar hafi haft til­tölu­lega mikið sjálf­ræði um sín mál, en í raun sé það þannig að öll rík­is­stjórnin ber póli­tíska ábyrgð á öllum póli­tískum verkum ein­stakra ráð­herra. „Og það er að minnsta kosti óvenju­legt að þing­flokkur rík­is­stjórn­ar­flokks láti í ljós óánægju sína með jafn skýrum hætti.“

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ME
    Margrét Eiríksdóttir skrifaði
    Ég er sorgmædd, hvað sem satt reynist er þetta til skammar
    0
  • Andrés Arnalds skrifaði
    Það er til skammar að Ísland skuli ekki taka skýra afstöðu gegn glæpum Ísraela gegn palestínsku þjóðinni. Með því að styðja ekki tillögu um vopnahlé gerum við okkur að hálfgerðu leppríki "líkt þenkjandi þjóða". En af hverju er talað um "stríð" og "vopnahlé"? Hinn bitri raunveruleiki er Innrás, eyðilegging, glæpir, fjöldamorð og brotthrakning þjóðar út landi sínu.
    1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Afstaða forsætisráðherrans og flokks hans skiptir engu máli. Bjarni vill ráða og kemst upp með það. Láta Katrín og VG þetta yfir sig ganga?
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Bjarni ræður öllu í þesu máli sem öðru.
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Bjarni gaf Morgunblaðinu ekki færi á viðtali vegna málsins. Það er líka óvenjulegt.
    0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Everything is a rich man´s trick. War is good four biasness.
    Mossad ásamt Ísraelstjórn vissu og aðstoðuðu Hamas til að komast inn til Ísraels, það er ekki fræðilegur möguleiki að allir þessir hermenn Hamas kæmust inn nema með aðstoð æðstu stjórnenda Ísraels.
    1
  • Axel Axelsson skrifaði
    korter í "nýju" ráðuneyti og strax búinn að kúka í buxurnar . . .
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu