Friðarmál kveikja ófriðarbál á íslensku stjórnarheimili

Tæpum tveimur vikum eftir að stjórn­ar­flokk­arnir þrír slíðr­uðu sverðin og sögð­ust ætla að hætta skærum sín á milli til að klára kjör­tíma­bilið er frið­ur­inn úti. Ástæðan er ákvörðun Íslands um að sitja hjá þegar kosið var um til­lögu um vopna­hlé á Gaza. Von er á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem á að láta Alþingi taka afstöðu til vopna­hlés fyrst rík­is­stjórnin getur ekki komið sér saman um það.

Friðarmál kveikja ófriðarbál á íslensku stjórnarheimili
For­menn­irnir Utan­rík­is­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar stóð að hjá­setu Íslands á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þing­flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur hefur gagn­rýnt þá ákvörðun harð­lega. Sigurður Ingi Jóhanns­son hefur ekki tjáð sig um málið. Mynd: Golli

Þann 14. októ­ber var boðað til blaða­manna­fundar. Til­gangur hans var að greina frá því að stjórn­ar­flokk­arnir þrír: Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, hefðu ákveðið að leggja helstu ágrein­ings­mál sín til hliðar og klára kjör­tíma­bilið, þrátt fyrir að einn for­mað­ur­inn, Bjarni Bene­dikts­son, hefði neyðst til að segja af sér ráð­herra­emb­ætti. 

Lausnin sem kynnt var fólst í því að flokk­arnir þrír ætl­uðu að ein­beita sér að því að berj­ast gegn verð­bólgu í stað þess að takast á um þau mál sem þeir eru ósam­mála um og að Bjarni myndi færa sig úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, yfir í utan­rík­is­ráðu­neytið. Sú til­færsla myndi skapa frið um þau mik­il­vægu verk­efni sem væru framundan á efna­hags­svið­inu. 

Miklar skærur höfðu staðið yfir milli flokk­anna í sumar, og ólga skap­að­ist innan þeirra, sér­stak­lega innan Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna. …

Kjósa
74
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Það tók Bjarna ekki langan tíma að setja allt í uppnám sitjandi í nýja ráðherrastólnum sínum.
    0
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Vg mun ekki sprengja stjórnina. Þau þora ekki í kosningar og halda að þau geti komist hjá því að vera rekin úr stólunum.
    0
  • LDA
    Lilja Dögg Arnþórsdóttir skrifaði
    Klókur leikur hjá Þórhildi Sunnu.
    2
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hafa Ísraelsmenn komið vel fram við Palestínumenn gegnum árin?
    2
    • Nei Edda, Ísraelsmenn hafa lengi komið illa fram, okkur Íslendingum myndi ofbjóða ef einhver herraþjóð sýndi okkur slíka framkomu, og hvað myndum við gera.?
      0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Forsætisráðherra hefur greinilega lítið að segja í sinni eign ríkisstjórn
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár