Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Kvartanir frá erlendum starfsmönnum Arctic Adventures hrannast upp

Mað­ur frá Arg­entínu sem starf­aði hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Arctic And­vent­ur­es seg­ir að fyr­ir­tæk­ið komi fram við er­lent starfs­fólk eins og „skít“. Líf­eyr­is­sjóð­irn­ir eru heilt yf­ir stærstu hlut­haf­ar Arctic ásamt fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Stoð­um. Um tutt­ugu kjara­brota­mál vegna Arctic Advent­ur­es eru nú á borði Leið­sagn­ar, stétt­ar­fé­lags leið­sögu­manna.

Kvartanir  frá erlendum starfsmönnum Arctic Adventures hrannast upp
Eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins Arctic Adventures er eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins en mikill fjöldi kvartana um kjarabrot frá starfsmönnum fyrirtækisins hafa borist til stéttarfélags. Fyrir skömmu keypti félagið ferðamannaperluna Kerið í Grímsnesi. Mynd: Shaun Versey

Starfsmenn ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures hafa sent samtals um tuttugu kvartanir vegna kjarabrota til stéttarfélagsins Leiðsagnar. Að stærstu leyti er um að ræða kvartanir frá erlendum starfsmönnnum, eða um 2/3 hluti. Fyrrverandi starfsmaður Arctic segir að fyrirtækið mismuni starfsmönnum eftir þjóðerni og að óánægja sé útbreidd hjá starfsmönnum þess. Málin snúast meðal annars að því að laun séu ekki greidd samkvæmt kjarasamningum, meðal annars yfirvinna, og að starfsmennirnir séu látnir vinna of langar vaktir án þess að fá pásur. Þetta herma upplýsingar Heimildarinnar. 

„Það er komið fram við okkur eins og skít“
Rodrigo Ruize-Esquide,
fyrrverandi starfsmaður Arctic Adventures

Leiðsögn segir um 30 kjarabrotamál til skoðunar

Umræddur starfsmaður Arctic Adventures, Rodrigo Ruiz-Esquide, sem er frá Argentínu, sendi nú í sumar bréf til forstjóra fyrirtækisins, Jóhanns Ásgeirs Baldurs, ásamt átta öðrum samstarfsmönnum sínum þar sem kvartað var yfir meðferð fyrirtækisins á starfsfólki. Bréfið var einnig sent til Ferðamálastofu, stéttarfélagsins Leiðsagnar, Vinnueftirlitsins og Samtaka …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þetta eru ekki nýjar fréttir um Samtök ferðaþjónustunnar, eða hvað hún heitir annars.
    0
  • Sigridur Hjaltadottir skrifaði
    Hvað er að Íslendingum?
    0
  • Brynja Kjartansdóttir skrifaði
    Takk
    0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Er það ekki merkilegt að við fyrirspurn þá eru svarendur nýkomnir á svæðið og geta því ekki svarað neinu ? Var verið að búa til fyrirtæki í ferðaþjónustu og voru þau að ráða starfsfólk ?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarabrot í ferðaþjónustunni

Leitað til stéttarfélaga út af meintum kjarabrotum Tröllaferða
ViðskiptiKjarabrot í ferðaþjónustunni

Leit­að til stétt­ar­fé­laga út af meint­um kjara­brot­um Trölla­ferða

Starfs­menn ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæks­ins Trölla­ferða hafa leit­að til bæði VR og stétt­ar­fé­lags­ins Leið­sagn­ar, sem gæt­ir rétt­inda leið­sögu­manna. Gagn­rýni starfs­mann­anna bein­ist með­al ann­ars að því að þeir hafi ekki feng­ið laun sam­kvæmt kjara­samn­ingi og að þeim sé mein­að að vera í stétt­ar­fé­lagi.
Fyrrverandi starfsmenn Indie Campers: „Þetta er svo mikið sukk og svínarí“
FréttirKjarabrot í ferðaþjónustunni

Fyrr­ver­andi starfs­menn Indie Cam­pers: „Þetta er svo mik­ið sukk og svínarí“

Fyrr­ver­andi starfs­menn portú­galska hús­bíla­fyr­ir­tæk­is­ins Indie Cam­pers segja að fyr­ir­tæk­ið greiði starfs­mönn­um ekki fyr­ir yf­ir­vinnu sem þeir starfa. Þeir leit­uðu til verka­lýðs­fé­lags í Reykja­nes­bæ með mál sín. Tveir af starfs­mönn­un­um segj­ast aldrei hafa unn­ið hjá álíka fyr­ir­tæki.
Portúgalskt húsbílafyrirtæki brýtur á starfsmönnum: „Subbuskapur“
FréttirKjarabrot í ferðaþjónustunni

Portú­galskt hús­bíla­fyr­ir­tæki brýt­ur á starfs­mönn­um: „Subbuskap­ur“

Portú­galska húsa­bíla­fyr­ir­tæk­ið Indie Cam­pers hef­ur ver­ið stað­ið að því að brjóta gegn kjara­samn­ings­bundn­um rétt­ind­um starfs­manna sinna. Guð­björg Krist­munds­dótt­ir, formað­ur Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Kefla­vík­ur og ná­grenn­is, seg­ir að fyr­ir­tæk­ið fylgi ekki kjara­samn­ing­um en von­ar að það byggi á þekk­ing­ar­leysi frek­ar en ein­beitt­um brota­vilja.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
4
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár