Fyrrverandi starfsmenn Indie Campers: „Þetta er svo mikið sukk og svínarí“

Fyrr­ver­andi starfs­menn portú­galska hús­bíla­fyr­ir­tæk­is­ins Indie Campers segja að fyr­ir­tækið greiði starfs­mönnum ekki fyrir yfir­vinnu sem þeir starfa. Þeir leit­uðu til verka­lýðs­fé­lags í Reykja­nesbæ með mál sín. Tveir af starfs­mönn­unum segj­ast aldrei hafa unnið hjá álíka fyr­ir­tæki.

Fyrrverandi starfsmenn Indie Campers: „Þetta er svo mikið sukk og svínarí“
Segjast aldrei hafa upp­lifað annað eins Fyrr­ver­andi starfs­menn Indie Campers segja slæmar sögur af fyr­ir­tæk­inu IndieCampers og að það borgi til dæmis ekki yfir­vinnu. Um er að ræða portú­galska hús­bíla­leigu sem hefur starfað hér á landi frá árinu 2018.

„Þeir borg­uðu ekki í líf­eyr­is­sjóð fyrir mig eða til stétt­ar­fé­lags­ins og launin rétt slef­uðu í lág­marks­laun. Ég vona að fyr­ir­tæk­inu verði lokað,“ segir Ian Steph­en­son, 54 ára gam­all Eng­lend­ingur, sem starf­aði hjá portú­galska hús­bíla­fyr­ir­tæk­inu Indie Campers í einn mánuð í sumar. Ian hefur verið búsettur á Íslandi í 23 ár og starfað hjá mörgum fyr­ir­tækjum í gegnum tíð­ina. „Ég hef unnið í ansi slæmum aðstæðum en aldrei kynnst annarri eins með­ferð og hjá Indie Campers,“ segir Ian sem býr í Vogunum á Reykja­nesi.  

Heim­ildin hefur fjallað um Indie Campers og þá stað­reynd að bæði ASÍ og verka­lýðs­fé­lag í Reykja­nesbæ hafa þurft að hafa ítrekuð afskipti af fyr­ir­tæk­inu vegna brota á kjara­samn­ingum.

Frá­sagnir fyrr­ver­andi starfs­manna Indie Campers ríma við þær sögur sem verka­lýðs­fé­lögin segja af fyr­ir­tæk­inu. 

Vilja fylgja portúgölskum lögum og reglum á Íslandi

Fyrr­ver­andi stjórn­andi Indie Campers á Íslandi, Portú­gal­inn …

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarabrot í ferðaþjónustunni

Kvartanir  frá erlendum starfsmönnum Arctic Adventures hrannast upp
FréttirKjarabrot í ferðaþjónustunni

Kvart­anir frá erlendum starfs­mönnum Arctic Adventures hrann­ast upp

Maður frá Argent­ínu sem starf­aði hjá ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Arctic And­ventures segir að fyr­ir­tækið komi fram við erlent starfs­fólk eins og „skít“. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru heilt yfir stærstu hlut­hafar Arctic ásamt fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Stoðum. Um tutt­ugu kjara­brota­mál vegna Arctic Adventures eru nú á borði Leið­sagnar, stétt­ar­fé­lags leið­sögu­manna.
Portúgalskt húsbílafyrirtæki brýtur á starfsmönnum: „Subbuskapur“
FréttirKjarabrot í ferðaþjónustunni

Portú­galskt hús­bíla­fyr­ir­tæki brýtur á starfs­mönnum: „Subbu­skapur“

Portú­galska húsa­bíla­fyr­ir­tækið Indie Campers hefur verið staðið að því að brjóta gegn kjara­samn­ings­bundnum rétt­indum starfs­manna sinna. Guðbjörg Krist­munds­dóttir, for­maður Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Kefla­víkur og nágrennis, segir að fyr­ir­tækið fylgi ekki kjara­samn­ingum en vonar að það byggi á þekk­ing­ar­leysi frekar en ein­beittum brota­vilja.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár