Fjöldi Ráð­herrar eru nú tólf tals­ins og hver þeirra má ráða til sín tvo aðstoð­ar­menn. Til við­bótar getur rík­is­stjórnin ráðið sér þrjá aðstoð­ar­menn. Mynd: Austurfrétt / Gunnar

Ráðherrar og aðstoðarmenn þeirra fá 828 milljónir í laun á næsta ári

Laun tólf ráð­herra voru hækkuð í sumar og launa­kostn­aður vegna þeirra er áætl­aður um 332 millj­ónir króna á næsta ári. Rík­is­stjórnin má ráða alls 27 aðstoð­ar­menn og sem stendur eru 26 þeirra starfa mönnuð. Hlutfall aðstoð­ar­manna á hvern ráð­herra hefur aldrei verið hærra.

Kostn­aður við rekstur rík­is­stjórnar Íslands er áætl­aður 828 millj­ónir króna á næsta ári. Um er að ræða launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra. 

Á verð­lagi dags­ins í dag kost­aði rekstur rík­is­stjórn­ar­innar um 606 millj­ónir króna á árinu 2018, sem var fyrsta heila starfsár rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur sem sam­anstendur af Vinstri grænum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Launa­kostn­aður vegna ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra mun því hafa auk­ist um tæp­lega 37 pró­sent að raun­virði þegar næsta ári er aflokið, stand­ist áætl­anir nýfram­lagðs fjár­laga­frum­varps vegna árs­ins 2024. Í krónum talið, án til­lits til verð­bólgu­þró­unar, er kostn­að­ar­aukn­ingin enn meiri eða 80 pró­sent. 

Þetta má lesa út úr fjár­laga­frum­varpi næsta árs sem birt var í síð­ustu viku. 

Aðstoðarmönnum hefur fjölgað mikið

Bæði ráð­herrum og aðstoð­ar­mönnum hefur fjölgað umtals­vert á síð­ustu árum. Lögum var breytt árið 2011 á þann veg að hver ráð­herra geti ráðið til sín tvo aðstoð­ar­menn auk þess sem rík­is­stjórnin getur ráðið sér þrjá til við­bótar. Aðstoð­ar­menn­irnir geta því verið 27 tals­ins, þar sem ráð­herr­arnir eru nú tólf.

Sem stendur eru aðstoð­ar­menn­irnir 26 tals­ins, og því ein­ungis ein staða sem heim­ilt er að fylla laus. Hlutfall aðstoð­ar­manna á hvern ráð­herra, sam­kvæmt nýlegu svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Bergþórs Ólasonar þing­manns Mið­flokks­ins, er 2,17. Það hefur aldrei verið hærra en til sam­an­burðar var hlut­fallið undir einum í byrjun þess­arar aldar og fór fyrst yfir 1,5 árið 2013, þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sett­ist að völdum. 

Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­­ar­­­manna­­­stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­­ast um að ræða nán­­­ustu sam­­­starfs­­­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti. Laun aðstoð­ar­manna ráð­herra eru yfir 1,5 milljón króna á mán­uði.

Fengu launahækkun í júlí

Laun þjóð­kjör­inna full­trúa og emb­ætt­is­manna hækk­uðu um 2,5 pró­sent í byrjun júlí síð­ast­lið­ins. Launa­hækk­unin var fram­kvæmd með setn­ingu sér­stakra laga um breyt­ingar á lögum til sam­ræmis við verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands, sem er 2,5 pró­sent. 

Nauð­syn­legt þótti að setja lögin þegar fyrir lá að allt stefndi í að laun ráð­herra, þing­manna og ann­arra hátt­settra emb­ætt­is­manna myndu hækka um 6-6,3 pró­sent sam­kvæmt þeirri aðferða­fræði sem fest var í lög árið 2019 til að ákveða laun hóps­ins. Hún byggir á því að launin hækki í sama hlut­falli og með­al­tal reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins. Munurinn er hins vegar sá að hóp­ur­inn sem um ræðir er með mun hærri laun en flestir opin­berir starfs­menn. Sama hlut­falls­lega hækkun skilar honum því mun fleiri krónum í vas­ann en við­mið­un­ar­hópnum. 

Með hækk­un­inni fóru laun venju­legra ráð­herra og for­seta Alþingis upp um 56 þús­und krónur á mán­uði og standa nú í 2.287 þús­und krónum á mán­uði. 

Á meðal þeirra sem sitja á þingi hækk­uðu laun for­sæt­is­ráð­herra mest, eða um tæp­lega 62 þús­und krónur á ári. Katrín Jak­obs­dóttir er nú með 2.532 þús­und krónur í laun á mán­uði.

Gildir til eins árs

Ákveðið var að koma í veg fyrir þá hækkun sem stóð fyrir dyrum eftir að henni var harð­lega mót­mælt víða í sam­fé­lag­inu. Það þótti ekki við­eig­andi að ráða­menn væru að taka sér hærri krónu­tölu­hækk­anir á launum en samið hafði verið um í kjara­samn­ingum til skamms tíma sem höfðu það hlut­verk að reyna að vinna gegn hárri verð­bólgu. Sú hækkun sem var valin, 2,5 pró­sent, er ekki handa­hófs­kennd. Hún þótti tákn­ræn vegna þess að það er verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands sem stefnt er að því að ná og slík hækkun heldur hæstu hækk­unum hóps­ins undir hámarks­þak­inu sem sett var á hækk­anir á almenna mark­aðnum.

Í lög­unum sem sam­þykkt voru kemur þó skýrt fram að þessi breyt­ing er ein­ungis til eins árs. Þann 1. júlí 2024 verður aftur horft til þess hvernig með­al­tal reglu­legra launa starfs­manna rík­is­ins fyrir næst­liðið alm­an­aksár breytt­ist og breyt­ing á launum við­kom­andi taka mið af því.

Regluleg laun launa­fólks í fullu starfi á Íslandi voru 745 þús­und krónur að með­al­tali í fyrra, og mið­gildi þeirra 669 þús­und krónur. Um 63 pró­sent alls launa­fólks er með laun undir með­al­tal­inu sem skýrist, sam­kvæmt Hagstofu Íslands, meðal ann­ars af því að hæstu laun hækka með­al­talið þar sem kjara­samn­ingar tryggja ákveðin lág­marks­kjör en kveða ekki á um hámarks­kjör.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár