Ríkið þarf að borga fimm til tíu milljarða inn í ÍL-sjóð árlega frá og með næsta ári

Rík­is­sjóður fjár­magn­aði efna­hags­að­gerðir sínar í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum að miklu leyti með því að taka 190 millj­arða króna að láni úr ÍL-sjóði, sem stýrt er af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og er með nei­kvætt eigið fé upp á 231 millj­arð króna, á afar hag­stæðum kjörum. Til stóð að borga ekki annað en vexti á næstu árum. Það hefur nú breyst eftir að lán­tak­endur hættu skyndi­lega að greiða upp gömlu Íbúða­lána­sjóðs­lánin sín.

Ríkið þarf að borga fimm til tíu milljarða inn í ÍL-sjóð árlega frá og með næsta ári
Vand­ræða­mál Vandi ÍL-sjóðs hangir yfir rík­is­sjóði og mun að óbreyttu skella fyrr eða síðar af fullum þunga með hund­ruð millj­arða króna skuld á skatt­greið­end­ur. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á vant­aði íslenska ríkið reiðufé. Tekjur þess dróg­ust saman og útgjöld juk­ust gríð­ar­lega þegar rík­is­sjóður þurfti að not­ast til að styðja við fólk og fyr­ir­tæki í land­inu sem varð fyrir efna­hags­legum áhrifum af far­aldr­inum. Einhvern veg­inn varð að borga fyrir þennan halla, sem var sam­an­lagt tæp­lega 275 millj­arðar króna á árunum 2020 og 2021. 

Það var meðal ann­ars gert með því að ríkið tók 190 millj­arða króna að láni úr vand­ræða­sjóði sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fer með yfir­stjórn með lögum sam­kvæmt. Hinum svo­kall­aða ÍL-sjóði, sem heldur á skulda­syndum hins skelfi­lega rekna Íbúða­lána­sjóðs. Þetta var gert með því að ríkið gaf fyrst út skulda­bréf í jan­úar 2021 upp á 102 millj­arða króna sem bar 0,87 pró­sent verð­tryggða vexti og er á gjald­daga í árs­byrjun 2032 og lét ÍL-­sjóð kaupa. Ári síðar var gefið út annað skulda­bréf, nú upp á 88 millj­arða króna, sem ber 0,52 pró­sent …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Það virðist vera að ráðamenn bæði Ríkið og margra sveitarfélaga misnoti sína aðstöðu, sér og sýnum til upphefðar.
    Er ekki löngu kominn tími til að setja bönd á þetta athæfi?
    Það eru mjög mörg kerfi samfélagsins sem og eru misnotuð.
    Þar vega mest ótrúlega mörg svokölluðu lífeyrissjóðs kerfi, þar sem hið opinbera ásamt ótrúlega mörgum öðrun, hafa reynt að leika sér með.
    Er ekki löngu kominn tími til að samfélag okkar sé rekið fyrir samfélagið, en ekki einhverja ætlaða sjálfskipaða pótintáta?
    Getur verið að okkar samfélag, í smáu og stóru, sé sjúkt af spillingu?
    1
    • Kári Jónsson skrifaði
      Ísland er helsjúkt af krabbameininum sem heitir Sjálfstæðisflokkurinn og hefur dreift sér um allann þjóðar-líkamann, meinið er alvarlegast hjá ca. 20% landsmanna, sem styðja ennþá nýfrjálshyggju-óþverra-stefnu Sjálfstæðisflokksinns, sömuleiðis er stuðningsfólk xB og xV alvarlega veikir af þessu illræmda krabbameini. SKERUM krabbameinið burt úr þjóðar-líkamanum næst þegar skurðstofan verður opinn = næsti kjördagur.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár