Mynd: Heiða Helgadóttir

Seinni hálfleikur hafinn og átakalínurnar aldrei skýrari

Spennustigið á Alþingi er að hækka hratt og flokk­arnir eru að stíga fyrstu skrefin í átt að því að und­ir­búa sig fyrir næstu kosn­ingar. Það sást vel í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra, sem hóf seinni hálf­leik kjör­tíma­bils­ins. Mesta óvissan er um hvort leik­ur­inn verði flaut­aður af vegna þess að stjórn­ar­liðið gengur snemma af velli eða hvort það muni halda áfram að gefa send­ingar sín á milli, aðal­lega aft­urá­bak eða til hliðar, án þess að reyna að skora mörk og aðal­lega til þess að bíða eftir að dóm­ar­inn flauti af.

Það er hefð fyrir því að for­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar tali í takt í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra. Að fók­us­inn sé á góð verk hennar og inn­takið það að sann­færa þá sem á hlýða um að allt sé á réttri leið. 

Þannig var ræða Bjarna Bene­dikts­sonar á Alþingi á mið­viku­dags­kvöld. Í heim­inum sem Bjarni lýsti var staðan á Íslandi í dag ekki bara góð, heldur í raun frá­bær, og enn bjart­ara var fram undan. Blússandi hag­vöxtur, mikil fjölgun starfa og mik­ill árangur í lífs­kjara­bata frá hruni voru skila­boðin. Helstu verk­efnin væru að styðja við end­ur­heimt stöð­ug­leik­ans. „Þó við ein­blínum oft á það sem miður fer megum við ekki gleyma jákvæðum breyt­ingum,“ sagði Bjarni áður en hann sendi flest öllum leið­togum stjórn­ar­and­stöð­unnar pillu fyrir gagn­rýni þeirra á efna­hags­stefnu hans. Hann klykkti svo út með því að segja að svo væru auð­vitað aðrir þing­menn, eins og Björn Leví Gunn­ars­son „sem mér sýn­ist bara …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár