Styttist Dagur B. Egg­erts­son er borg­ar­stjóri í Reykja­vík og verður það fram að næstu ára­mótum þegar Einar Þor­steins­son tekur við. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Snemmbúin arðgreiðsla frá Orkuveitunni gjörbreytti uppgjöri Reykjavíkurborgar

Tap þess hluta rekst­urs Reykja­vík­ur­borgar sem fjár­magn­aður er með skattfé var mun minna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en það var á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins. Ástæðan er ekki stór­kost­legur við­snún­ingur í und­ir­liggj­andi rekstri höf­uð­borg­ar­innar heldur það að 5,1 millj­arða króna arð­greiðsla frá Orku­veitu Reykja­víkur, sem borgin á að stærstum hluta, var fyrr á ferð­inni en venja er fyrir.

Tap A-hluta Reykja­vík­ur­borgar, þess hluta rekst­urs hennar sem rek­inn er fyrir skattfé, var 921 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Sú upp­hæð kom ef til vill mörgum í opna skjöldu, enda tap­aði borgin 2,2 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins og fátt í því efna­hags­lega umhverfi sem nú geisar sem benti til þess að mik­ill við­snún­ingur væri í kort­unum sem myndi skila umtals­vert jákvæðri rekstr­ar­nið­ur­stöðu á öðrum árs­fjórð­ungi. 

Í til­kynn­ingu sem Reykja­vík­ur­borg sendi til fjöl­miðla var lögð áhersla á, að venju, að borgin væri að vaxa úr vanda síð­ustu ára. Ástæða þess að borgin stæði frammi fyrir áskor­unum í rekstri væri ann­ars vegar verð­bólga og vaxta­hækk­anir sem hún hefur leitt af sér, sem hafi aukið fjár­magns­kostnað, aðal­lega vegna verð­tryggðra lána, um marga millj­arða króna. Hins vegar væri um að ræða þann halla sem er á rekstri á mála­flokki fatl­aðra, en hann var 4,8 millj­arðar króna á fyrri hluta árs. 

Ýmislegt í árs­hluta­reikn­ingum benti þó til þess að borgin sé að snúa við blað­inu. Handbært fé sem nýt­an­legt er í rekst­ur­inn hækk­aði um 9,8 millj­arða króna og veltufé frá rekstri var jákvætt um 7,8 pró­sent. Veltu­fjár­hlut­fall borg­ar­innar, sem er einn mik­il­væg­asti mæli­kvarð­inn sem not­aður er til að skoða hvort sveita­fé­lag ráði við skulda­stöðu sína, batn­aði meira að segja frá lokum mars og út júní eftir að hafa verið að lækka. Það fór úr 1,07 í 1,16 á sex mán­uðum, en þum­al­putta­reglan er að mik­il­vægt sé að það sé yfir 1,0. 

Þegar árs­hluta­reikn­ing­ur­inn sjálfur og skýrsla fjár­mála- og áhættu­stýr­inga­sviðs Reykja­vík­ur­borgar eru lesin kemur hins vegar í ljós hvað veldur. Í síð­ar­nefnda plagg­inu segir að tölu­verður við­snún­ingur hafi orðið á veltufé frá rekstri í sam­an­burði við tvö árin á undan. Það hafi verið jákvætt um 6,8 millj­arða króna í lok júní 2023 en nei­kvætt um 4,5 millj­arða króna ári áður. Það sem skýrir þessa breyt­ingu að langstærstum hluta er eft­ir­far­andi: arð­greiðsla frá Orku­veitu Reykja­víkur, sem nam 5,1 millj­arði króna, var fyrr á ferð­inni í ár en á fyrri árum. Auk þess var arð­greiðslan um hálfum millj­arði króna yfir áætl­unum og 1,4 millj­arði krónum hærri en arð­greiðslan sem barst til borg­ar­innar frá Orku­veit­unni í fyrra. 

Án arð­greiðsl­unnar hefði tapið á fyrri hluta verið yfir sex millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2023. Það er vissu­lega minna en þeir 8,9 millj­arðar króna sem borgin tap­aði í fyrra, en við­snún­ing­ur­inn er ekki á pari við það rekstr­ar­nið­ur­staðan ein og sér benti til. 

Selja Perluna

Þrátt fyrir allt var rekstr­ar­nið­ur­staðan, að teknu til­liti til arð­greiðsl­unnar frá Orku­veit­unni, lak­ari en lagt var upp með. Fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir afgangi upp á 857 millj­ónir króna. Því er rekstr­ar­nið­ur­staðan 1,8 millj­arði krónum frá því sem stefnt var að. Búast má við því að tapið á seinni hluta árs verði umtals­vert meira en það var á fyrri hlut­anum í ljósi þess að Orku­veitan greiðir borg­inni bara arð einu sinni á ári.  Skatt­tekjur voru ásamt öðrum tekjum 4,5 millj­arða króna yfir áætlun á fyrri hluta árs. Frávik í rekstr­ar­gjöldum voru 5,1 millj­arðar króna yfir áætlun og þar af var frá­vik í rekstri skóla- og frí­stunda­sviðs 2,3 millj­arðar króna.

Kenni­leitiPerlan er einn helsti við­komu­staður erlendra ferða­manna í Reykja­vík.

Þessari stöðu virð­ist borgin ætla að mæta, að minnsta kosti að ein­hverju leyti, með sölu eigna. Nánar til­tekið Perlunnar í Öskju­hlíð, sem byggð var af Hita­veitu Reykja­víkur í borg­ar­stjórn­ar­tíð Davíðs Odds­sonar og vígð árið 1991. Reykja­vík­ur­borg eign­að­ist mann­virkið að mestu árið 2013 og á það í dag að öllu leyti. Fast­eigna­mat Perlunnar er sem stendur um fjórir millj­arðar króna og því ætti sala hennar að geta hjálpað vel til í bar­áttu Reykja­víkur við að ná fjár­málum sínum í jafn­vægi. 

Hinn hlut­inn í rekstri borg­ar­innar, B-hlut­inn, nær yfir afkomu þeirra fyr­ir­tækja sem borgin á að öllu leyti eða að hluta. Fyr­ir­tækin sem telj­ast til B-hlut­ans eru Orku­veita Reykja­víkur, Faxa­flóa­hafnir sf., Félags­bú­staðir hf., Íþrótta- og sýn­inga­höllin hf., Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hf., Slökkvi­lið höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Þjóð­ar­leik­vangs ehf.

Rekstr­ar­nið­ur­staða sam­an­tek­ins árs­hluta­reikn­ings Reykja­vík­ur­borgar, A- og B-hluta, var nei­kvæð um 6,7 millj­arða króna sem er 12,8 millj­örðum krónum verri nið­ur­staða en áætlun gerði ráð fyrir. Í til­kynn­ingu frá borg­inni segir að helstu frá­vikin séu fjár­magnsliðir sem hafi verið níu millj­örðum krónum hærri en reiknað var með. „Skýrist það af hærri verð­bólgu á tíma­bil­inu en áætlun gerði ráð fyrir, lækk­unar álverðs og minni mats­breyt­inga fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða.“

Rekstr­ar­nið­ur­staða A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjár­magnsliði (EBITDA), skil­aði 23,1 millj­arði króna í afgang sem var um tveimur millj­örðum króna undir áætlun, en um fjórum millj­örðum króna betri nið­ur­staða en á fyrsta árs­hluta árs­ins 2022.

Kópavogur tapaði tvisvar sinnum meira en til stóð

Næst stærsta sveit­ar­fé­lag lands­ins, Kópa­vogur, skil­aði líka hálfs­árs­upp­gjöri í dag. Rekstr­ar­nið­ur­staða A-hluta þess var nei­kvæð um rúm­lega 1,4 millj­arða króna sem er næstum tvisvar sinnum meiri rekstr­ar­halli en fjár­hags­á­ætlun gerði ráð fyrir. Taka verður til­lit til þess að þótt Kópa­vogur sé stórt sveit­ar­fé­lag í íslensku sam­hengi, með 40.200 íbúa, þá búa hund­rað þús­und fleiri í höf­uð­borg­inni Reykja­vík en þar. 

TapÁsdís Krist­jáns­dóttir tók við sem bæj­ar­stjóri í Kópavogi eftir síð­ustu kosn­ingar.

Í upp­gjörstil­kynn­ingu frá Kópavogi kemur fram að heild­ar­skuldir sveit­ar­fé­lags­ins hafi hækkað um 773 millj­ónir króna frá ára­mótum, að mestu vegna verð­bóta. Í árs­hluta­reikn­ingnum eru ekki upp­lýs­ingar um skulda­hlut­fall né veltu­fjár­hlut­fall en síð­ar­nefndi mæli­kvarð­inn var 0,35 í árs­lok í fyrra hjá Kópavogi. Það var lægsta veltu­fjár­hlut­fall hjá nokkru sveit­ar­fé­lagi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um síð­ustu ára­mót, en það lækk­aði úr 0,59 frá lokum árs 2021. Í árs­hluta­reikn­ingnum kemur þó fram að veltufé frá rekstri A-hluta Kópavogs hafi verið 1.070 millj­ónir króna í lok júní. Það var 2.216 millj­ónir króna í lok árs 2022.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Einmitt arðsins vegna fyrir borgarbúa væri óábyrgt að einkavæða
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár