Mynd: Jóhann Páll Valdimarsson

Skammaður, elskaður, dáður og ofsóttur

Guð­bergur Bergsson var ævin­týra­lega góður í því að koma fólki í opna skjöldu, ljóm­andi ósmekk­legur og stundum blátt áfram and­styggi­legur.

Eftir að ég las skáldævi­sögu Guðbergs Bergs­sonar, Faðir og móðir og dul­magn bernsk­unnar, var ég í fyrsta og síð­asta sinn alveg komin að því að senda rit­höf­undi aðdá­enda­bréf, þótt ég næði að stilla mig um það á síð­ustu stundu.

Áður hafði ég þó átt fjöl­margar dýr­mætar les­stundir sem þakka mátti Guðbergi. Tómas Jónsson var les­inn með aðstoð vasa­ljóss í raf­magns­lausum sum­ar­bú­stað (ég man örvænt­ing­una þegar raf­hlöð­urnar klár­uð­ust), upp­haf­skafl­inn í Önnu vakti krampa­hlátur og Leikföng leið­ans voru lesin upp­hátt fyrir vild­ar­vini. Músin sem læð­ist olli áður óþekktri van­líðan, ég gapti yfir Hinsegin sögum, þýð­ingar á Márquez og Cervantes opn­uðu nýjar ver­aldir. Brunnur snilli­gáfu Guðbergs virt­ist ótæm­andi.

Ef maður stenst skammirnar ...

Guð­bergur varð líka sér­stakt upp­á­hald þegar ég var menn­ing­ar­blaða­maður í kringum alda­mótin vegna þess að hann hafði engan áhuga á því að lesa yfir við­töl við sig. Aðrir rit­höf­undar lúslásu öll við­töl og höfðu á þeim sterkar …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðbergur Bergsson

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár