Þá deyja sumir samt

„Helst lítur út fyrir að alkunn skoðun eða spá­dóms­orð kerl­ingar muni sann­ast á Franco þegar hún sagði: ,Djöfl­arnir deyja aldrei.‘ En þótt djöfl­arnir deyi kannski aldrei þá deyja sumir samt og flest fer eftir því hvaða augum menn líta á djöfl­ana, dauð­ann og lífið.“

Þá deyja sumir samt

Hólm­fríður Matth­í­as­dóttir, útgáfu­stjóri For­lags­ins, segir hér í örfáum orðum frá bók­inni Dauði Francos eftir Guðberg. Bókin er á leið í prentun og vænt­an­leg glóð­volg nú í haust. Sjálf hefur Hólm­fríður búið lengi í Barcelona þar sem Guð­bergur nam spænsk fræði, lista­sögu og bók­menntir, nánar til­tekið í Háskól­anum í Barcelona, La Uni­versi­dad de Barcelona.

Hólm­fríður Matth­í­as­dóttirútgáfu­stjóri For­lags­ins.

Bók Guðbergs Bergs­sonar, Dauði Francos, sem kemur út hjá For­lag­inu í októ­ber, var í raun skrifuð árið 1975, þegar Guð­bergur fylgd­ist með nokk­urra vikna dauða­stríði ein­ræð­is­herr­ans Francisco Francos og skrá­setti í dag­bók.

Þetta er ekki löng bók, en hún er ein­stök heim­ild um þessi tíma­mót og varpar upp heill­andi nær­mynd af þjóð­fé­lagi og tíð­ar­anda þar sem nýi og gamli tím­inn takast á í sam­fé­lags­legri ringul­reið.

Grípandi lesn­ing sem ég spændi í mig um leið og mér barst hand­ritið í tölvu­pósti frá skáld­inu. Guð­bergur skrifar …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðbergur Bergsson

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár