Regnbogar næturinnar

Guð­bergur Bergsson varð per­sónu­gerv­ingur upp­reisnar gegn þrúg­andi leið­indum, gráma, kúgun, stagli og súld.

Regnbogar næturinnar

Tómasi Jónssyni Met­sölu­bók lýkur á draum­kenndum kafla þar sem sögu­maður verks­ins, og aðal­per­sóna, virð­ist orð­inn þrí­einn eins og Guð eða Bakka­bræður og velk­ist um úti á reg­in­hafi á bátnum Katrínu (hann segir að sálin í sér heiti Katrín). Og kom­inn um borð í björg­un­ar­bát tekst honum – eða er það Hermanni? – að hugsa eina loka­hugsun:

ég kalla norð­ur­ljósin regn­boga næt­ur­innar

Þannig má lýsa mörgum skáld­verkum Guðbergs Bergs­sonar. Þau eru regn­bogar næt­ur­innar: athygl­inni er beint að myrku hlið­inni á íslenskri menn­ingu, sýnt hvernig sú hlið á sér líka sinn ljósa­gang og sína feg­urð um leið og allt sem dags­ljós­inu til­heyrir, hin opin­bera svið dag­legs lífs, er skoðað í því ljósi. Öllu er umsnúið. Allt verður hinsegin. Guð­bergur skrif­aði hinsegin bók­menntir löngu áður en það hug­tak varð til. Verk hans upp úr miðjum sjö­unda ára­tugnum – TJM, Ástir sam­lyndra hjóna, Anna, Hermann og Dídí, Það sefur í djúp­inu og …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðbergur Bergsson

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár