Vill að úrskurðarnefnd hafni birtingu yfirstrikaðra upplýsinga

Í umsögn sinni til úrskurðar­nefndar um upplýs­ingamál segir Seðla­banki Íslands að þær upplýsingar í sátt hans við Íslands­banka sem strikað var yfir séu háðar þagnar­skyldu. Það sé „sann­gjarnt og eðlilegt“ að trúnaður ríki um þær. Heimildin kærði synjun Seðla­bankans á afhendingu upplýs­ing­anna til úrskurðar­nefndarinnar.

Seðlabankastjóri
Seðla­banka­stjóri Ásgeir Jónsson stýrir Seðla­banka íslands og er for­maður fjár­mála­eft­ir­lits­nefndar bank­ans. Mynd: Davíð Þór

Seðla­banki Íslands vill að úrskurðar­nefnd um upplýsingamál hafni kröfu Heimildarinnar um að fá samkomulag Íslands­banka við Seðla­banka Íslands um að ljúka með sátt máli vegna brota bankans við sölu­meðferð eignar­hluta ríkisins í bankanum án þess að búið sé að strika yfir upplýsingar úr sáttinni. 

Heimildin kærði synjun Seðla­bankans á því að fá upplýsingarnar afhentar til nefndarinnar í byrjun júlí. Í umsögn sem bankinn hefur skilað inn til úrskurðar­nefndarinnar segir að Seðla­bankinn telji umræddar upplýsingar „varða hagi viðskipta­manna bankans, viðskipti og rekstur eftirlits­skyldra aðila, tengdra aðila eða annarra og málefni bankans sjálfs en slíkar upplýsingar eru háðar þagnar­skyldu nema úrskurður dómara eða lagaboð geri bankanum skylt að láta þær af hendi.“ Að mati Seðla­bankans eigi hvorugt við í fyrir­liggjandi máli.

Ráðherra birti kaupendalistann

Að mati Heimildarinnar eiga upplýsingarnar sem strikað var yfir ríkt erindi við almenning, enda var um að ræða sölu á ríkiseign sem nú liggur …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár