Áformað að hækka fasteignaskatta á íbúðir sem enginn býr í

Stjórn­völd hafa sett fram aðgerða­áætlun í húsnæðis­málum í 44 liðum, sem fylgir drögum að húsnæðis­áætlun stjórn­valda til næstu fimmtán ára. Meðal annars er fyrir­hugað að beita skatt­breytingum til að mynda hvata til breyttrar notkunar íbúða sem í dag eru ekki heimili nokkurs manns.

Ráðherra
Ráðherra Inn­við­a­ráðu­neyti Sigurðar Inga Jóhanns­sonar hefur lagt fram aðgerða­á­ætlun í hús­næð­is­málum í 44 liðum, sam­hliða hvít­bók um hús­næð­is­mál. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórn­völd horfa til þess að hækka fasteigna­gjöld á fasteignir þar sem fólk hefur ekki fasta búsetu, í því skyni að stuðla að því að íbúðir í þéttbýli sem ekki eru nýttar til fastrar búsetu verði frekar nýttar sem slíkar. Jafnframt stendur til að skoða að leggja á fasteigna­gjöld á lóðir samhliða veitingu uppbyggingar­heimilda, til þess að koma í veg fyrir frestun uppbyggingar. 

Til viðbótar er stefnt að því að breyta skipulags­lögum þannig að sveitar­félög fái heimildir til að tímabinda uppbyggingar­heimildir sem þau gefa á uppbyggingar­reitum. Sveitar­félög hefðu þá heimild til þess að leysa til sín byggingar­reiti þar sem framkvæmdar­leysi kemur í veg fyrir að uppbyggingar­áform sveitar­félagsins gangi eftir.

Þessi atriði eru á meðal alls 44 aðgerða sem finna má í aðgerða­áætlun sem lögð er fram í nýjum drögum að húsnæðis­stefnu hins opinbera. Húsnæðis­stefnan er sett fram til 15 ára en í aðgerða­áætluninni er horft til næstu fimm ára. …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Mikið um plön, ásetning og áætlanir... varla snefill af framkvæmdum, vönduðum undirbúning né viðurlögum eða afleiðingum fyrir þá sem eiga að stjórna... svo ????

    Same old same old... ekkert að frétta nema klisjur.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Framsóknarflokkurinn að gera eitthvað ? Þeir tala mikið framsóknarmennirnir ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár