Áformað að hækka fasteignaskatta á íbúðir sem enginn býr í

Stjórn­völd hafa sett fram aðgerða­á­ætlun í hús­næð­is­málum í 44 liðum, sem fylgir drögum að hús­næð­is­á­ætlun stjórn­valda til næstu fimmtán ára. Meðal ann­ars er fyr­ir­hugað að beita skatt­breyt­ingum til að mynda hvata til breyttrar notk­unar íbúða sem í dag eru ekki heim­ili nokk­urs manns.

Ráðherra
Ráðherra Inn­við­a­ráðu­neyti Sigurðar Inga Jóhanns­sonar hefur lagt fram aðgerða­á­ætlun í hús­næð­is­málum í 44 liðum, sam­hliða hvít­bók um hús­næð­is­mál. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórn­völd horfa til þess að hækka fast­eigna­gjöld á fast­eignir þar sem fólk hefur ekki fasta búsetu, í því skyni að stuðla að því að íbúðir í þétt­býli sem ekki eru nýttar til fastrar búsetu verði frekar nýttar sem slíkar. Jafn­framt stendur til að skoða að leggja á fast­eigna­gjöld á lóðir sam­hliða veit­ingu upp­bygg­ing­ar­heim­ilda, til þess að koma í veg fyrir frestun upp­bygg­ingar. 

Til við­bótar er stefnt að því að breyta skipu­lags­lögum þannig að sveit­ar­fé­lög fái heim­ildir til að tíma­binda upp­bygg­ing­ar­heim­ildir sem þau gefa á upp­bygg­ing­ar­reitum. Sveit­ar­fé­lög hefðu þá heim­ild til þess að leysa til sín bygg­ing­ar­reiti þar sem fram­kvæmd­ar­leysi kemur í veg fyrir að upp­bygg­ing­ar­á­form sveit­ar­fé­lags­ins gangi eftir.

Þessi atriði eru á meðal alls 44 aðgerða sem finna má í aðgerða­á­ætlun sem lögð er fram í nýjum drögum að hús­næð­is­stefnu hins opin­bera. Hús­næð­is­stefnan er sett fram til 15 ára en í aðgerða­á­ætl­un­inni er horft til næstu fimm ára. …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Mikið um plön, ásetning og áætlanir... varla snefill af framkvæmdum, vönduðum undirbúning né viðurlögum eða afleiðingum fyrir þá sem eiga að stjórna... svo ????

    Same old same old... ekkert að frétta nema klisjur.
    2
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Framsóknarflokkurinn að gera eitthvað ? Þeir tala mikið framsóknarmennirnir ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár