Stóru bankarnir högnuðust um 40 milljarða á hálfu ári og aðallega á hærri vöxtum

Hreinar vaxta­tekjur Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka voru um fjórð­ungi hærri á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2023 en á sama tíma­bili í fyrra. Þeir eru allir yfir arð­sem­is­mark­miði, vaxta­munur þeirra heldur áfram að aukast og kostn­að­ar­hlut­fall þeirra heldur áfram að drag­ast saman. Heim­ild­in tók sam­an tíu stað­reynd­ir um hálfs árs upp­gjör stóru bank­anna þriggja.

Stóru bankarnir högnuðust um 40 milljarða á hálfu ári og aðallega á hærri vöxtum
Vaxta­munur eykst enn Vaxta­munur íslenskra banka er öllu meiri en þekk­ist á Norð­ur­lönd­unum. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

1Svipaður hagnaður og í fyrra

Stóru bank­arnir þrír; Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, birtu upp­gjör sitt vegna fyrri hluta árs­ins 2023 í lok síð­asta mán­aðar. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á því tíma­bili var 40,3 millj­arðar króna sem er aðeins minna en þeir högn­uð­ust um á sama tíma­bili 2022. Þá vigtaði sala Arion banka á Valitor, sem var bók­færð á 5,6 millj­arða króna, umtals­vert inn í góðan hagnað þess banka. 

Sú dýr­tíð sem ríkið hefur því ekki haft nein telj­andi áhrif á stóru bank­anna þrjá. Þeim hefur þvert á móti gengið ákaf­lega vel á verð­bólgu­tímum. Þannig var líka staðan í aðdrag­anda þessa, þegar ýmsar aðgerðir stjórn­valda og Seðla­banka Íslands vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins höfðu afar jákvæð áhrif á mögu­leika banka til að auka tekjur sínar. 

2188 milljarða hagnaður á tveimur og hálfu ári

Bank­arnir þrír högn­uð­ust sam­tals um 81,2 millj­arða króna á árinu 2021 og 66,9 millj­arða króna í fyrra. Á tveimur og hálfu ári hafa þeir því grætt 188,4 millj­arða króna. 

Bank­arnir þrír urðu allir til á grund­velli neyð­ar­laga sem sett voru haustið 2008, í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá voru eignir fall­inna banka fluttar með handafli yfir á nýjar kenni­töl­ur. Sam­an­lagður hagn­aður stóru bank­anna frá hruni er 857,4 millj­arðar króna. Mestur var hann árið 2015, en þá lit­aði umfangs­mikil eigna­sala upp­gjör­ið.

3Hærra vaxtastig skilar 25 prósent meiri vaxtatekjum

Eftir að bank­arnir los­uðu um þær eignir sem þeir fengu í vöggu­gjöf frá íslenska rík­inu á fyrstu árum starf­semi sinnar hafa vaxta­tekjur verið helsta tekju­lind þeirra. Í fyrra voru slíkar um 130 millj­arðar króna eða um 24 pró­sent hærri en árið 2022. Þessi mikli vöxtur hefur haldið áfram í ár. 

Á fyrri hluta árs­ins námu hreinar vaxta­tekjur stóru bank­anna þriggja sam­tals 74,9 millj­örðum króna. Það tæp­lega 15 millj­örðum krónum meira en þeir þén­uðu vegna slíkra á fyrri hluta árs­ins 2022. Um er að ræða næstum 25 pró­sent sam­eig­in­legan vöxt. Mest juk­ust vaxta­tekjur rík­is­bank­ans, Lands­bank­ans. Þær voru 27,5 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem var 28,6 pró­sent meira en á sama tíma­bili árið áður. Bankinn segir þetta aðal­lega vera „vegna stærra útlána­safns og hærra vaxta­stigs.“

4Vaxtamunur heldur áfram að aukast

Vaxta­tekj­urnar byggja á mun­inum á þeim vöxtum sem bank­arnir borga fyrir að fá pen­inga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum fjár­muni. Sá munur kall­ast vaxta­munur. Hann var 2,7 til 3,1 pró­sent á árinu 2022, sem er meiri munur en var árið áður, þegar hann var 2,3 til 2,8 pró­sent. 

Á fyrri hluta yfir­stand­andi árs hélt hann áfram að aukast. Hann var kom­inn upp í 3,2 pró­sent hjá bæði Íslands­banka og Arion banka en var 2,9 pró­sent hjá Lands­bank­anum. Vaxta­mun­ur­inn hækk­aði þó mest hjá rík­is­bank­anum, eða um 0,4 pró­sentu­stig milli ára. Bankinn skýrir það með því að betri ávöxtun á lausafé hans hafi jákvæð áhrif á vaxta­mun.

Vaxta­munur íslenskra banka er tals­vert meiri en þekk­ist á meðal ann­arra nor­rænna banka. 

5Þóknanatekjur hæstar hjá Arion banka

Hinn stóri tekju­póst­ur­inn í grunn­rekstri banka eru þókn­ana­tekjur, stundum kall­aðar þjón­ustu­tekjur. Þar er um að ræða þókn­­anir fyrir til dæmis eigna­­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf en líka þau gjöld sem ein­stak­lingar og heim­ili greiða fyrir ýmis konar þjón­ustu sem bank­arnir veita þeim. 

Hreinar þókn­ana­tekjur Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka voru 21,5 millj­arðar króna á síð­asta ári. Það er 7,5 pró­sent meira en þær skil­uðu bönk­unum þremur í hreinar tekjur á fyrri hluta árs­ins 2022. Hæstar voru þókn­ana­tekj­urnar hjá Arion banka, 8,6 millj­arður króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, en lægstar hjá Lands­bank­anum, 5,8 millj­arðar króna. 

6Ná allir markmiðum sínum um arðsemi

Sá mæli­kvarði sem stjórn­endur banka nota til að mæla árangur sinn er ekki endi­lega hversu mik­ill hagn­aður er í krónum talið, heldur hver hlut­falls­leg arð­semi þessa eigin fjár er. Stjórnir við­skipta­banka á Íslandi gera kröfu um að arð­semi eigin fjár sé að minnsta kosti tíu pró­sent. Sögu­lega þá náði hún að vera sam­eig­in­lega rúm­lega ell­efu pró­sent að með­al­tali hjá bönk­unum þremur á árunum 2009 til 2018, en þar vigtar inn í að ein­skiptis­tekjur vegna t.d. sölu eigna voru umtals­verðar á fyrri hluta þess tíma­bils. 

Arðsemi eigin fjár allra bank­anna þriggja jókst umtals­vert á árinu 2021, þegar hún var á bil­inu 10,8 til 14,7 pró­sent. Í fyrra dróst hún saman hjá öllum og var á bil­inu 6,3 til 13,7 pró­sent, minnst hjá Lands­bank­anum og mest hjá Arion banka. 

Það sem af er ári hefur arð­semi allra bank­anna þriggja verið yfir mark­miði. Hjá Arion banka var hún 14,5 pró­sent, hjá Lands­bank­anum 10,3 pró­sent. Arðsemi eigin fjár Íslands­banka var 11,4 pró­sent, eftir að búið var að taka til­lit til tæp­lega 1,2 millj­arða króna stjórn­valds­sekt sem bank­inn greiddi í rík­is­sjóð vegna fjöl­margra lög­brota sem hann gekkst við í tengslum við fram­kvæmd lok­aðs útboðs á hlutum í honum sjálfum í mars í fyrra. 

7Miklar breytingar á kostnaðarhlutfalli Landsbankans

Allir bank­arnir vinna að því að auka hagnað með því að ná niður svoköll­uðu kostn­að­ar­hlut­falli. Það þýðir á manna­máli að þeir eru að finna leiðir til að spara kostnað, en mæli­kvarð­inn mælir hvað kostn­að­ur­inn er stórt hlut­fall af tekj­um. Yfir­lýst mark­mið íslensku bank­anna er að ná því hlut­falli niður fyrir 40-50 pró­sent. Ein­faldasta leiðin til að ná kostn­að­­ar­hlut­­falli niður er að fækka starfs­­fólki.

Kostn­að­­ar­hlut­­fallið er lang­lægst hjá Lands­bank­anum, eða 36,1 pró­sent. Það lækkar gríð­ar­lega frá síð­asta ári þegar það var 46,8 pró­sent. Hjá Íslands­banka var um 42,4 pró­sent á fyrri hluta árs og hjá Arion banka var það 43 pró­sent. 

8Hluthöfum Íslandsbanka fækkað um tólf þúsund

Lands­bank­inn er að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins þótt nokkur fjöldi starfs­manna eigi lít­inn hlut. Arion banki hefur verið skráður á markað frá sumr­inu 2018. Fjöldi hlut­hafa hans var 7.400 í lok árs 2020, 11.287 í lok árs 2021 og 12.059 um síð­ustu ára­mót. Þeim hefur fækkað nokkuð það sem af er ári og voru 11.516 í lok júní síð­ast­lið­ins. Stærsti hlut­haf­arnir eru þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins sem eiga milli 9-10 pró­sent hlut hver. Stærsti einka­fjár­festir­inn eru Stoðir með 5,38 pró­sent eign­ar­hlut. 

Íslands­banki var einka­væddur að hluta sum­arið 2021 þegar íslenska ríkið seldi 35 pró­sent hlut í bank­anum í almennu útboði, sem fjölg­aði hlut­höfum hans gríð­ar­lega. Hlut­haf­arnir voru um 24 þús­und eftir að því útboði lauk. Alls 22,5 pró­sent í við­bót var svo selt í lok­uðu útboði í mars 2022 til alls 207 fjár­festa. 

Hlut­höfum í bank­anum hefur fækkað skarpt frá almenna útboð­inu og voru færri en 12.300 í lok júní. Þeim hefur því fækkað um næstum tólf þús­und frá sumr­inu 2021. Stærsti ein­staki hlut­haf­inn er enn íslenska ríkið með 42,5 pró­sent hlut.

9Eiga samanlagt 687 milljarða króna í eigið fé

Bankar halda á miklu magni af eigin fé. Það magn sem þeir þurfa að halda á, til að geta til dæmis tek­ist á við áföll og virð­is­rýrnun lána, var aukið veru­lega eftir banka­hrunið til að koma í veg fyrir að sama staða kæmi upp á ný. Eigið fé við­skipta­bank­anna þriggja var sam­an­lagt 686,8 millj­arðar króna um mitt þetta ár.

Það er um 900 millj­ónum krónum minna en þeir áttu sam­tals í lok sama tíma­bils í fyrra. Eigið fé tveggja banka, Arion banka og Lands­bank­ans, dróst lít­il­lega saman milli ára á meðan að það jókst hjá Lands­bank­anum um sex millj­arða króna. Ástæða þess að eigið féð lækkar þrátt fyrir mik­inn hagnað eru arð­greiðslur og kaup á eigin bréfum, þær leiðir sem bankar nota til að skila pen­ingum til hlut­hafa sinna. 

10Engar líkur á frekari sölu í ár

Í fjár­­lögum yfir­stand­andi árs var gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi hlutur rík­­­is­ins í Íslands­­­­­banka yrði seldur fyrir 75,8 millj­­­arða króna í ár. Engar líkur eru á því að af því verði. 

Formenn stjórn­ar­flokk­anna þriggja gáfu út sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu í apríl í fyrra þar sem sagt var að frek­ari sala yrði sett á ís á meðan að Rík­­­is­end­­­ur­­­skoðun og fjár­­­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­­banka Íslands rann­­­sök­uðu hluta síð­­­asta skrefs sem stigið var í sölu­­­ferl­i Íslands­banka í fyrra. Þótt Rík­is­end­ur­skoðun hafi skilað kol­svartri skýrslu um fram­kvæmd­ina í fyrra­haust, og sátt fjár­mála­eft­ir­lits­ins við Íslands­banka vegna lög­brota bank­ans hafi verið birt í sumar, þá stendur enn yfir rann­sókn eft­ir­lits­ins á þætti ann­arra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem komu að útboð­inu. Alls óljóst er hvenær henni lýkur. Innlendu fyr­ir­tækin fjögur sem ráðin voru til að starfa við útboðið, auk Íslands­banka, voru Fossar mark­aðir, sem voru sölu­ráð­gjafar, auk ACRO-verð­bréfa, Íslenskra verð­bréfa og Lands­bank­ans, sem fóru með hlut­verk sölu­að­ila. 

Til við­bótar skoðar umboðs­maður Alþingis enn hæfi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vegna kaupa félags í eigu föður hans á hlut í Íslands­banka sem áður hafði verið í eigu rík­is­ins. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞL
    Þorsteinn Lárusson skrifaði
    Ítalía leggur 40% skatt á vaxtahagnað bankanna. Kannski ættum við að skoða það.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár