Notuð föt njóta vinsælda meðal foreldra skólabarna

Eigandi og reksta­stjóri Barna­lopp­unnar Andri Jónsson segir ásókn for­eldra í not­aðar flíkur og skóla­dót aukast á hverju ári. Kostn­aður við skóla­göngu á grunn-, fram­halds- og háskóla­stigi getur hlaupið á tugum, jafn­vel hund­ruðum þús­unda.

Notuð föt njóta vinsælda meðal foreldra skólabarna
Grunn­skóla­nemi Kostn­aður við að senda börn í skóla hleypur á tugum þús­unda.

Nú stytt­ist í fyrsta skóla­dag hjá grunn-, fram­halds­skóla og háskóla­nemum. Kaup á allskyns vörum fylgja því að fara í skóla. Hægt er að nálg­ast skóla­vörur á þónokkrum stöðum og kaupa not­aðar töskur eða föt fyrir vet­ur­inn. 

Skólaföt

Það fylgja því gjarnan fata­kaup að hefja nýja skóla­árið enda getur verið gott að birgja sig upp fyrir vet­ur­inn með góðum yfir­höfnum og skó­bún­aði. Andri Jónsson er rekstr­ar­stjóri og annar eig­enda Barna­lopp­unnar en það er verslun sem býður neyt­endum upp á þann mögu­leika að leigja bás og selja notuð föt. Andri seg­ist taka eftir „aug­ljósri aukn­ingu" í kaupum við­skipta­vina á hverju hausti þegar skóla­árið byrjar.

„Fólk er að kaupa allt sem börn­unum vantar fyrir haustið. Það eru kulda­föt, ull­ar­föt, flís­fatn­aður, utan­yf­ir­gallar, polla­föt, stíg­vél, kulda­skór og skóla­töskur. Í raun­inni bækur líka fyrir krakk­ana sem eru að byrja í skóla til að lesa heima og svo fram­vegis þannig að það er bara allt mögu­legt. Við nátt­úru­lega stjórnum því ekki hvað leigj­endur eru að selja en við sjáum það alveg að bækur og skóla­töskur selj­ast mjög vel á haustin."

Barna­loppanAndri rekstr­ar­stjóri segir sífellt fleiri for­eldra kaupa skóla­vörur í búð­inni.

Föt og aðrir munir sem selj­ast í Barna­lopp­unni eru verð­lagðar ódýr­ari en nýjar vörur út í búð. Andri telur að þær vörur sem eru til sölu í Barna­lopp­unni séu allt að 70-80% ódýr­ari en sams­konar eða sömu vörur kosta nýjar. „Þú getur alveg fengið kuldagalla hjá okkur sem er fínt merki og mjög vel með far­inn. Þá ertu kannski að fá hann á svona 40-50% afslætti miðað við ef þú myndi kaupa þér nýjan. En ef þig vantar kuldagalla og þér er alveg sama hvort að hann sé merkja­vara eða ekki, þá ertu kannski að fá 90-95% afslátt af vör­unni hjá okkur. Það munar alveg um það.“

Guðríður Gunn­laugs­dóttirAnnar eig­enda Barna­lopp­unnar.

Aðspurður út í umhverf­is­vit­und við­skipta­vina telur Andri að hún fær­ist í auk­ana með hverju ári. „Við erum alltaf að fá nýja við­skipta­vini til okkar, bæði leigj­endur og kaup­endur. Ald­urs­bilið er líka að stækka hvað það varðar.“ Þegar Barna­loppan opn­aði var stærstur kúnna­hópur þau sem höfðu nýlokið háskóla­námi og voru enn að koma sér fyrir í líf­inu. „En svo er rosa­lega stór breyt­ing hjá eldri kyn­slóð­inni sem var lítið að spá í þessu þegar þau voru yngri og að eign­ast börn.“

„Skemmti­leg­asti hóp­ur­inn eru krakk­arnir. Börnin, og jafn­vel ung­ling­arnir, sem koma og eru að versla föt hjá okkur. Þau átta sig á því að hér er hægt að fá fín­ustu flíkur, leik­föng, bækur og dót á ein­hverju djók verði miðað við að fara og kaupa þetta ein­hvers staðar nýtt. Sér­stak­lega í ástand­inu sem er núna með þessa svaka­legu verð­bólgu og hækk­anir að þá hjálpar að versla hér.“ Líkt og full­orðna fólkið átta börnin sig á að vör­urnar eru ódýr­ari en Andri seg­ist vona að umhverf­is­vit­und spili þar inn í. „Þau læra mjög hratt af hverju þau eru að koma hingað.“

Grunnkostnaður

Heim­ildin tók saman hugs­an­legan kostnað fyrir staðl­aðan nem­anda á þremur skóla­stigum, grunn­skóla­stigi, fram­halds­skóla­stigi og háskóla­stigi. Ímyndaða nem­and­ann vantar skóla­tösku, penna­veski, vatns­brúsa, nest­is­box og eina stíla­bók. Í fram­halds- og háskóla kaupir nem­and­inn sér einnig tölvu. 

Grunn­skóla­nem­inn fer á Tax Free daga í A4 og kaupir sér skóla­tösku á 15.314, penna­veski með þremur hólfum á 1.250 krónur, vatns­brúsa á 3.199 krónur, nest­is­box á 1.599 krónur og stíla­bók á 999 krónur. Þetta gera 22.361 krónur. Hér voru hvorki dýr­ustu né ódýr­ustu val­kost­irnir valdir og vert er að taka fram að yfir­leitt þarf að kaupa fleiri vörur eins og skrif­færi, vasa­reikni og möppur. 

Fram­halds­skóla­nem­inn kaupir sínar skóla­vörur í Pennanum- Eymunds­son. Fyrsta varan fyrir val­inu er bak­poki á 25.999 krónur. Síðan er það svartur penna­hólkur á 3.499 krónur, vatns­flaska á 3.399 krónur, nest­is­box með auka boxi á 2.199 krónur og sand­lit­aða línu­strik­aða stíla­bók á 2.159 krónur. Að lokum er það svo far­tölva á skóla­til­boði hjá Epli á 169.990 krónur og hulstur fyrir hana á 4.990 krónur. Heild­ar­kostn­aður eru því rúmar 207.000 krónur. 

Háskóla­nem­inn verslar við Hagkaup en sleppir penna­vesk­inu og stíla­bók­inni enda flest allt nám komið á netið. Neminn kaupir svartan bak­poka á 24.989 krónur, og vatns­flösku á 5.499 krónur. Nest­is­boxið er pantað af vef­versl­un­inni Nest­is­box á 8.990 krónur og far­tölva keypt í ELKO á 169.995 krónur. Alls borgar háskóla­nem­inn 209.473 fyrir þessar vörur. Hér er náms­bóka­kostn­aður ekki tek­inn með inn í reikn­ing­inn. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár