Fóru ránshendi um verslanir svo dögum skipti

Tveir karl­menn voru dæmdir í 8 og 10 mán­aða fang­elsi fyrir að hafa gerst fingra­langir í sjö versl­unum á síð­asta ári. Ein verslun varð sér­lega oft fyrir barð­inu á ráns­skap mann­anna en þeir heim­sóttu hana þrettán sinnum og rændu þaðan vörum að verð­mæti ríf­lega 300 þús­und króna.

Fóru ránshendi um verslanir svo dögum skipti
Gripið en ekki greitt Menn­irnir hafa bæði nú og fyrr tekið vörur ófrjálsri hendi í mat­vöru­versl­unum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tveir karl­menn voru í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur 19. júlí síð­ast­lið­inn dæmdir til ann­ars vegar átta mán­aða og hins vegar tíu mán­aða fang­els­is­vistar fyrir ítrekuð og end­ur­tekin þjófn­að­ar­brot, ýmist hvor um sig eða í sam­ein­ingu. Ákæran yfir mönn­unum var umfangs­mikil, 41 liður, en heild­ar­verð­mæti þýf­is­ins sem þeir félagar stálu nam rúmum tveimur millj­ónum króna. Í öllum til­vikum var um stuld úr versl­unum að ræða.

Brot mann­anna tveggja hófust í febr­úar á síð­asta ári, miðað við dóm­inn, en hinn 22. þess mán­aðar stálu þeir í sam­ein­ingu vörum að verð­mæti tæp­lega 35 þús­und krónum úr verslun. Það var hins vegar ekki fyrr en í ágúst sama ár að þeir félagar tóku ræki­lega til hend­inni og í sept­em­ber keyrði um þver­bak, en segja má að menn­irnir hafi farið í ráns­ferðir að með­al­tali þriðja hvern dag þann mánuð.

Verslun A vettvangur flestra glæpanna

Létu tví­menn­ing­arnir greipar sópa í sjö versl­unum eftir því sem fram kemur í dómnum. Ein verslun, sem aðeins er nefnd verslun A í dómnum, varð sér­lega oft fyrir barð­inu á hinum fingralöngu félögum, en alls heim­sóttu þeir hana í þrettán skipti í ráns­ferðum sínum. Einkum var það annar mað­ur­inn sem hafði sér­stakt dálæti á versl­un­inni því hann kom þar við í fimm­gang í ágúst og októ­ber og tók þaðan ófrjálsri hendi vörur að verð­mæti ríf­lega 112 þús­und krónur. Í aðrar versl­anir hélt sá ekki einn miðað við dóm­inn.

Hinn mað­ur­inn fór víðar yfir en þó varð verslun A fyrir barð­inu á grip­deildum hans í fjór­gang og hafði hann á brott með sér vörur að verð­mæti ríf­lega 111 þús­und krónur. Athygli vekur að menn­irnir báðir heim­sóttu versl­un­ina og létu þar greipar sópa þrí­vegis sömu dag­ana en voru ekki ákærðir fyrir að vera í vit­orði með hvor öðrum í þau skipti. Hins vegar voru þeir ákærðir fyrir að hafa í fjór­gang í sam­ein­ingu rænt úr verslun A vörum að verð­mæti 80 þús­und krónum rúmum. Alls var því tjón versl­un­ar­innar ríf­lega 300 þús­und krónur með rupli mann­anna tveggja.

Lægsta upphæðin 1.200 krónur

Það var hins vegar ekki verslun A sem varð fyrir mestu tjóni vegna rán­skapar mann­anna þrátt fyrir allt, heldur verslun sem nefnd er C í dómnum. Er sú bygg­inga­vöru­verslun og þangað lögðu þeir kump­ánar leið sína 10. sept­em­ber á síð­asta ári. Höfðu þeir á brott með sér þýfi að verð­mæti ríf­lega 740 þús­und krónur í það skiptið. Þremur dögum síðar mætti sá þeirra félaga sem stór­tæk­ari var í rán­unum á nýjan leik í bygg­inga­vöru­versl­un­ina og hafði þaðan á brott með sér án greiðslu vörur að verð­mæti ríf­lega 113 þús­und króna.

Athygli vekur að í mörgum til­vikum er um að ræða algjöran smá­þjófnað, hnupl, því að annar mað­ur­inn var meðal ann­ars ákærður og dæmdur fyrir að hafa rænt vörum að verð­mæti tæp­lega 1.200 krónum í eitt skiptið. Í sam­ein­ingu rændu brota­menn­irnir þá í eitt skipti úr verslun A vörum sem voru virði tæp­lega sjö þús­und króna.

Hafa áður verið dæmdir fyrir keimlík brot

Báðir ját­uðu menn­irnir brot sín ský­laust. Þeir eiga báðir brota­feril að baki, vegna þjófn­aðar, fjársvika fíkni- og umferða­laga­brota meðal ann­ars. Þannig var annar mann­anna dæmdur í fimm mán­aða fang­elsi í mars á síð­asta ári fyrir keim­lík brot, stuld úr búðum og umferð­ar­laga­brot. Í þeim dómi er til­greint hverju var stolið í það og það skipti. Einkum voru það mat­vörur sem mað­ur­inn rændi í það skiptið, kjúklinga­bringur, smjör­stykki og risa­rækjur til að mynda. Í dómi yfir hinum mann­inum, frá því í febr­úar á síð­asta ári, er svipað uppi á ten­ingnum en hann er þó dæmdur einnig fyrir ítrekuð fíkni- og umferð­ar­laga­brot einnig, alls í þriggja mán­aða fang­elsi.

Í dómnum nú er báðum mönn­unum gerður hegn­ing­ar­auki vegna fyrri dóma. Var þeim sem fyrr segir gerð fang­els­is­refs­ing ann­ars vegar í tíu mán­uði og hins vegar í átta mán­uði. Var þeim þá gert að greiða málsvarn­ar­laun til verj­enda sinna, rúmar 241 þús­und krónur hvor, auk þess var þeim gert að greiða skaða­bætur vegna hinna stolnu vara ásamt drátt­ar­vöxtum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Smáglæpamenn fá refsingu og ekkert um það að segja, en ef þeir kynnu að stela almennilega þá eru allir vegir færir. Þeir væru mikils metnir bæði af stjórnmálamönnum og viðskiptalífinu og gætu þá jafnvel setið í stjórn viðkomandi verslanafyrirtækja. En svona er lífið hér á skríplaskerinu.
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár