ÚTSALA HEIMILDARINNAR! EINUNGIS Í DAG! SMELLTU HÉR

ÚTSALA HEIMILDARINNAR! EINUNGIS Í DAG! SMELLTU HÉR

Virkaði þessi fyr­ir­sögn? Hélstu að mögu­lega væri verið að bjóða upp á ein­hvers­konar til­boð? Eða hugs­aðir þú með þér hvern djöf­ul­inn þessir ungu blaða­menn væru að gera með því að menga fréttaflór­una af svona rugl fyr­ir­sögnum sem þeim einum finnst sniðugar?

Hvað um það, þá er þetta svona sem útsölur virka. Við sjáum eitt, tvö eða þrjú orð sem öskra á okkur að þessu til­boði megum við sko aldeilis ekki missa af. Tilboðum fylgir líka yfir­leitt ein­hvers­konar tíma­pressa. Ann­að­hvort er til­boðið bara í dag af því að það er hátíð­is­dagur, þriðju­dagur eða dagur ein­hleypra. Eða það nær yfir ákveðið tíma­bil eins og sum­ar­út­sölur gera. Ef neyt­andi ætlar að næla sér í vöru á ódýr­ara verði þá þarf að taka ákvörðun hratt. Upp með veskið strax. 

Handbendi Satans

Nútíma­há­tækni­sam­fé­lagi fylgja ýmsar kvaðir. Tæknin veitir vissu­lega aðgengi að allskyns upp­lýs­ingum og þjón­ustu en í skiptum sam­þykkja flestir not­endur að fyr­ir­tæki megi safna um þau gögnum sem er síðan hægt að nota til að selja þeim vörur.

Breki Karlsson er for­maður Neyt­enda­sam­tak­ana en þau hafa vakið athygli á þeirri smá­sjá sem inter­net-not­endur eru undir. „Það er komin ný starfs­grein í við­skiptum fyrir upp­lýs­ingamang­ara (e. data brokers) sem fylgj­ast með öllu sem við gerum á net­inu til þess að búa til ein­hvers­konar mynd af okkur. Síðan er þessi mynd seld áfram til stór­fyr­ir­tækja eins og Google Analytics. Þau safna þessum upp­lýs­ingum og selja til þriðja aðila sem eru upp­lýs­ingamang­ar­arnir.“ Hlutverk upp­lýs­ingamang­ar­ana er að selja fyr­ir­tækjum aðgengi að ákveðnum hópi neyt­enda. Fyr­ir­tæki senda síðan skila­boð til þeirra neyt­enda í gegnum aug­lýs­ingar.

Breki KarlssonTelur upp­lýs­inga­öflun geta ýtt undir skautun innan sam­fé­lags­ins.

Breki segir þessar upp­lýs­ingar ekki ein­ungis not­aðar til að aug­lýsa skyrtur heldur líka til þess að skapa skautun milli þegna sam­fé­lags­ins. „Við sjáum það hér heima og erlendis að stundum virð­ist fólk varla geta talað eðli­lega saman heldur er það á háa C-inu. Ann­að­hvort ertu með mér í liði eða þú ert hand­bendi Satans.“

„Við erum nátt­úru­lega mjög ein­faldar verur að eðl­is­fari. Með útsölum er verið að höfða til skorts, því að við séum hrædd um að missa af." Breki nefnir FOMO eða hræðsl­una við að missa af og segir hana „djúp­stæða í okkur. Við viljum afla okkur matar og öryggis og það er bara harð­vírað í DNA-inu okkar að leita að bestu leið­inni til þess að fá hluti. Tilboð og aug­lýs­ingar gera út á það.“

Neyt­endum er sagt að í örstutta stund sé þeim fært að nálg­ast bestu kaup sem kostur er á. Að mati Breka er stundum hægt að gera góð kaup en „oft lendum við í því að kaupa hluti sem okkur langar ekki í, fyrir pen­inga sem við eigum ekki, til að ganga í augun á fólki sem við þekkjum ekki.“ 

Fylgifiskur markaðshagkerfis

Alls­konar aðferðir eru not­aðar til þess að láta neyt­enda líða eins og hún hafi gert stór­kaup. Til dæmis með því að aug­lýsa útsölu­verð frekar í pró­sentum ef varan er undir ákveðnu verði, og svo í þús­und króna ef það hljómar betur. Annað trikk er að skrifa ávinn­ing útsöl­unnar í stórum stöfum en upp­runa­legt verð hennar smátt til þess að neyt­andi sé nógu með­vit­aður um að hér sé hann að græða. Á vef­síð­unni Boozt.com er afsláttur aug­lýstur af útsölu.

BooztBýður auka­af­slátt af útsölu­vörum.

Þekkt er að vörur séu aug­lýstar á verði sem endar á töl­unum 99, 95 eða 90. Þetta eykur líkur á að neyt­andi upp­lifi kaupin sem ávinn­ing frekar en að verðið sé námundað upp í heila tölu. Önnur leið til að ná athygli til­von­andi neyt­enda er að nota áber­andi liti eins og rauðan til að aug­lýsa útsölu en lit­ur­inn er gjarnan tengdur við ástríðu. Þá getur ókeypis send­ing­ar­kostn­aður einnig sann­fært neyt­enda um að kaupin séu þess virði.

Svokölluð leyf­is­á­hrif (e. licensing effect) eiga við þegar að fólk leyfir sér að gera eitt­hvað slæmt eftir að hafa gert góð­verk. Nokkrar fata­versl­anir bjóða upp á þann val­mögu­leika að fólk mæti með poka af gömlum fötum í búð­irnar í þágu umhverf­is­mála. Þannig getur fyr­ir­tækið end­ur­nýtt efnið og neyt­andi fær inn­eign í búð­ina til að versla meira. Þó að það sé ekki slæmt í eðli sínu að versla föt þá getur þessi hringrás virkað sem hvatn­ing til að versla meira, jafn­vel þó að ein­stak­lingur þurfi þess ekki.

Svo eru til­boð eins og 3 fyrir 2 sem virka vel ef kaupa á þrjá nýja stutt­erma­boli en fyrir þann aðila sem ætl­aði að kaupa sér einn á 1000 krónur en labbar út úr búð­inni með þrjá á 2000 krónur er ávinn­ing­ur­inn lít­ill. Þúsund krónur farnar af banka­reikn­ingnum fyrir tvo boli sem var ekki þörf fyrir. 

Aðspurður hvort að hægt sé að kom­ast hjá slíkum brögðum þegar við búum í mark­aðs­hag­kerfi segir Breki að svo sé ekki enda sé það gott ef fyr­ir­tæki geti boðið neyt­endum betri kjör á vörum sem eru að hætta í sölu eða eitt­hvað slíkt. „En auð­vitað í full­komnum heimi væru allar vörur alltaf á lægsta verði.“

Algengt er að Neyt­enda­sam­tök­unum ber­ist til­kynn­ingar um versl­anir hækki verð áður en það er lækkað aftur fyrir útsölu. „Oft á tíðum reyn­ist það satt. Versl­anir nýta sér þann slag­kraft sem felst í því að höfða til okkar hvata sem er að safna að okkur aðföngum á sem hag­kvæm­astan hátt.“ 

Nýlega fjall­aði Heim­ildin um vænt­an­lega Evr­ópu­reglu­gerð sem gæti breytt stöðu neyt­enda á mark­aði en Breki segir hana eiga að auka gagn­sæi. „Ekki kaupa óþarfa og vertu viss hvað það er sem þú þarft. Það er mik­il­vægt að skilja mun­inn á milli lang­ana og þarfa.“ 

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár