Óvæntur glaðningur frá meginlandinu

Doktor Gunni rýnir í Frag­ments og A Janitor’s Man­i­festo ...

Óvæntur glaðningur frá meginlandinu

Alltaf er gaman þegar óvæntur glaðn­ingur berst manni í hendur, að þessu sinni tvær skemmti­legar plötur frá fólki sem maður vissi ekki einu sinni að væri til, fyrr en plöt­urnar þeirra duttu í haus­inn á manni, lokk­andi, list­rænar og báðar á vínyl í gríð­ar­flottum umbúðum. Smekk­leysa, útgáfu­fyr­ir­tæki Syk­ur­mol­anna frá 1986, hefur lítið gefið út af poppi eða rokki síð­asta ára­tug­inn eða svo, en þaðan kemur nú fyrsta plata tríós­ins Virgin Orchestra. Með­lim­irnir, þau Stefanía Páls­dóttir, Starri Holm og Rún Árna­dóttir, stilltu saman strengi þegar þau voru við nám í Lista­há­skól­anum. Frag­ments platan var tekin upp í Funkhaus hljóð­ver­inu í Berlín síð­asta sumar og sveitin hefur und­an­farið verið nokkuð iðin við tón­leika­hald.

Virgin Orchestra - Fragments

Útgef­andi: Smekk­leysa

★★★

Grásvört stemning

Hljóð­heim­ur­inn er grá­svartur og í beinum karl­legg af ensku „gothi“; tón­list sem kom í kjöl­far pönks­ins og dafn­aði í Englandi snemma á níunda ára­tugnum. Eitthvað hafa þessir krakkar lík­lega hlustað á Bauhaus, Siouxsie & The Banshees og kannski sér­stak­lega meist­ara­verk The Cure, plöt­una Faith, sem hefur álíka grátóna, dramat­ískt og trega­fullt yfir­bragð. End­ur­tekn­inga­samt drón í anda Velvet Underground og My Bloody Val­entine er líka krydd í þess­ari kássu.

Gjall­andi kven­rödd, þokka­fullt selló, rifnir gít­arar (stundum brim­brett­arokks-legir),hljóð­gerflar og trommu­heilar mynda hljóð­heim­inn. Í einu lagi er reyndar „alvöru“ trommari, Svein­björn Thoraren­sen, og ég er ekki frá því að lögin væru betri með trommara, trommu­heilar eiga það til að vera tak­mark­aðir. Lögin gera meira út á stemn­ingu heldur en leit að gríp­andi meló­díum og yfir það heila er þetta ljóm­andi drunga­pakki með mörgum skín­andi sprettum. Ég er samt viss um að næsta plata verður enn þá betri.

Gunnar Gunnsteinsson - A Janitor’s Manifesto

Útgef­andi: Futura Resistenza

★★★★

Mikið hugmyndaflug

Gunnar Gunn­steins­son ílengd­ist í Hollandi eftir tón­list­ar­nám og vann um tíma fyrir sér sem skúr­andi hús­vörður með­fram lista­líf­inu. Hann kemur úr til­rauna­kenndum tón­smíða-kreðsum en fékk þá hug­mynd 2016 að reyna að gera hrein­rækt­aða poppplötu. Gunnar rak sig snemma á að popp­gerð er erf­ið­ari en hún lítur út fyrir að vera og því er útkoman, sem tók sex ár í smíðum, algjört ólík­inda­tól, sprellandi skemmti­legur blend­ingur þar sem nán­ast allt er leyfi­legt.

Strax í upp­hafi heyr­ist að von er á góðu. Opn­un­ar­lagið, I Believe In A Better World, er hopp­andi kátt eins og list­rænt evr­ópskt bíó – jafn­vel teikni­mynd – og text­inn mik­ill bálkur um sam­bands­slit og kafla­skil í líf­inu (Gunnar er nú fluttur til Íslands). Text­arnir á plöt­unni eru allir mjög skemmti­legir og lif­andi, það er boðið upp á mikið hug­mynda­flug og góðar pæl­ingar; stemn­ingin frá létt­lyndum galsa yfir í ein­mana­leika og eft­ir­sjá.

Útblásinn listahvalur

Gunnar vefur sinn tón­list­ar­vef með öllum fáan­legum tólum. Hann virð­ist hafa spilað þetta allt inn sjálfur (engir auka­hljóð­færa­leik­arar eru alla­vega til­greindir), aðal­lega á hljóm­borð og for­rit heyr­ist mér. Hin 35 mín­útna plata líður hratt í ævin­týra­mennsku og skemmti­leg­heitum. Bæði er boðið upp á sungin (eða töluð) lög, orð­laus lög og stuttar til­raunir eða vett­vangs­upp­tökur. Næst kemst Gunnar hefð­bundnu poppi í lag­inu Á Speed Dial, sem ætti að toppa alla vin­sælda­lista ef ein­hver sann­girni væri í heim­inum (sem er auð­vitað ekki og hefur aldrei verið) – frá­bært lag og texti. A Letter To ABBA er veru­lega gott í mið­evr­ópskum díet nas­ista-gír og Nið­ur­soðið lands­lag hljómar eins og Klaus Wunderlich á djöfla­sýru í vondum félags­skap.

Stefnu­yf­ir­lýs­ing hús­varðar er sem sagt algjör hval­reki, útblás­inn lista­hvalur í íslenskri fjöru og ein af allra bestu plötum árs­ins. Hlauptu beint út í plötu­búð!

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár