Mynd: Óskar Hallgrímsson

Tveir bæir – einn frjáls og hinn í helvíti

Ef það væri ekki fyrir eyði­legg­ing­una og ein­staka hvelli úr fall­byssum stór­skota­liðs í nágrenn­inu, gæti þorpið Orikhiv verið leik­mynd fyrir krútt­legan, enskan sveitabæ. Rósir, val­múar og önnur vor­blóm blómstra um allan bæ og grænar hlíðar eru skreyttar litlum og fal­legum stein­húsum. Hvert hús með græn­met­is­garð og vín­við vax­andi í netum sem skríða upp hús­vegg­ina. Bærinn sem var áður mið­stöð land­bún­aðar á Zaporizhzhia svæð­inu, hýsti um 14.000 íbúa í sveita­sælu og vel­megun fyrir stríð.

„Við höfum ekk­ert gas, ekk­ert raf­magn, ekk­ert vatn … en við eigum nóg af von.“ 

Þetta segir Svitlana Mandrich, 52 ára, Hún er umsjón­ar­maður síð­ustu mann­úð­ar­mið­stöðvar bæj­ar­ins. Vonin kemur í formi stórrar úkra­ínskar gagn­sóknar sem hófst af fullum krafti í byrjun júní, aðeins tveimur dögum eftir að við heim­sóttum bæinn. 

Úkra­ínskir her­menn hafa streymt frá bak­línum sínum að bænum og stefna í átt að rúss­neskum her­sveitum til að reyna að frelsa borg­irnar Tokmak og Melitopol. Talið er að um 4.000 af þeim um 75.000 sem eru í vara­liði Úkraínu séu stað­sett í kringum bæinn en það er erfitt að gefa nákvæma mynd af því, sökum þagn­ar­bind­indis Úkraínu um fram­gang sókn­ar­innar. Flestar fréttir sem blaða­menn hafa úr að moða koma frá lekum innan rúss­neskra her­sveita og myndum sem rúss­neskir her­menn deila á sam­fé­lags­miðl­inum Telegram.

Svitlana Mandrich heldur utan um mann­fall í bænum og segir að 40 óbreyttir borg­arar …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi í Úkraínu

„Hermaðurinn í mér var alltaf til staðar“
ErlentÁ vettvangi í Úkraínu

„Her­mað­ur­inn í mér var alltaf til staðar“

Lista­maður sem varð lið­þjálfi útskýrir hvernig það kom til að hann gekk til liðs við Azov-her­deild­ina í Úkraínu. Hann og fleiri veita inn­sýn í störf þess­arar umdeild­ustu her­deildar lands­ins og hafna ásök­unum um tengsl við hægri öfga­flokka. Það sé af sem áður var að allir sem gátu lyft byssu væru sam­þykktir í deild­ina. Um leið og her­deildin hafi verið tekin inn í þjóð­varn­ar­liðið hafi póli­tískar hug­sjónir þurft að víkja.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár