Kristrún greiddi tæpar 25 milljónir króna eftir tilmæli frá Skattinum

Formaður Samfylk­ing­ar­innar greiddi næstum 25 milljóna króna skatt­greiðslu í vor í kjölfar þess að hafa fengið tilmæli um að mat Skattsins væri að greiða ætti tekju­skatt en ekki fjármagns­tekjuskatt af þeim hagnaði sem áskriftar­réttindi í Kviku banka skiluðu. Kristrún Frosta­dóttir segir hagnað sinn af þriggja milljóna króna fjár­festingu í kaup­réttum hafa numið um 101 milljón króna og að hún hafi nú greitt 46,25 prósent skatt af þeirri upphæð.

Formaður
Formaður Kristrún Frosta­dóttir var kjörin for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar síð­asta haust og hefur flokk­ur­inn tekið á sprett í skoð­ana­könn­unum frá þeim tíma og mælist nú stærsta stjórn­mála­afl lands­ins. Mynd: Baldur Kristjánsson

Kristrún Frosta­dóttir formaður Samfylkingarinnar greiddi Skattinum tæpar 25 milljónir króna í vor. Það gerði hún í kjölfar þess að tilmæli bárust til allra sem starfað höfðu hjá Kviku banka og fjárfest í áskriftar­réttindum eða kaup­réttum, sem í boði voru fyrir starfs­menn bankans, þess efnis að það væri mat Skattsins að það ætti að greiða launa­skatt af hagnaðinum, en ekki fjármagns­tekjuskatt.

Í svari til Heimildarinnar segir Kristrún að hún hafi greitt fjármagns­tekjuskatt af hagnaðinum á sínum tíma, í samræmi við leið­beiningar sem hún hafi fengið frá fyrr­verandi vinnu­veitanda sínum, en Kristrún starfaði sem aðal­hagfræðingur Kviku banka frá 2018 til 2021.

Gerir ekki athugasemdir við mat Skattsins

Kristrún segir að hagnaður sinn af áskriftar­réttindum í bankanum hafi alls numið um 101 milljón króna og hún hafi áður greitt um 22 milljónir króna í fjármagns­tekjuskatt af þeirri upphæð.

Það hefur hins vegar verið til skoðunar um nokkurt skeið hjá skatta­yfirvöldum hvort rétt væri að greiða fjármagns­tekjuskatt eða venju­legan tekju­skatt af þeim hagnaði sem starfs­menn Kviku, núverandi og fyrr­verandi, hafa innleyst vegna áskriftar­réttinda sinna.

Í vor segir Kristrún að tilmæli hafi borist um að mat Skattsins væri að það ætti að greiða launa­skatt af hagnaðinum. „Ég geri ekki athugasemd við það mat. Ég bað um að fá að greiða mismuninn strax og hef þegar gert það,“ segir Kristrún við Heimildina.

„Þegar upp var staðið fékk ég um 101 milljón króna út úr þessari fjár­festingu og hef nú greitt 46,25% af því í skatt. Það bættust við tæpar 25 milljónir króna núna í vor sem ég greiddi vegna mismunar á fjármagns­tekju- og launa­skatti, eftir að þessi tilmæli bárust frá Skattinum. Þær komu til viðbótar við um 22 milljónir króna sem ég hafði áður greitt,“ segir Kristrún.

Viðskipta­vefurinn Innherji á Vísi fjallaði um það fyrir rúmri viku að Skatturinn væri með skatt­lagningu á áskriftar­réttindum Kviku til skoðunar og var þess getið í frétt miðilsins að niður­staðan í málinu gæti snert tugi starfs­manna Kviku, jafnvel hátt í hundrað manns, og að leið­réttingin á skatt­greiðslum þeirra gæti hlaupið á hundruðum milljóna króna.

Heimildin beindi spurningum til Kristrúnar varðandi það hvort þessi skoðun Skattsins snerti hana með einhverjum hætti og niður­staðan er sem áður segir, að hún hefur greitt 25 milljónir króna til viðbótar í skatta eftir tilmæli Skattsins þar að lútandi.

Svaraði fáu um kaupréttina í aðdraganda kosninga

Áskriftar­réttindi Kristrúnar í Kviku banka voru talsvert til umræðu í aðdrag­anda þing­kosninganna árið 2021, er Kristrún hafði tekið efsta sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykja­víkur­kjördæmi suður. 

Kristrún svaraði fyrir­spurnum fjölmiðla um fjár­festingu sína ekki efnislega fyrir kosningarnar, að öðru leyti en því að henni hefði eins og öðru starfs­fólki bankans boðist sá kostur að fjárfesta í áskriftar­réttindum í bankanum og að hún og eigin­maður hennar hafi nýtt sér sparnað sem þau áttu til þess. 

Hún gagnrýndi hins vegar fjölmiðla, Morgun­blaðið og Viðskipta­blaðið, fyrir saman­tekin ráð gegn sér og sakaði miðlana meðal annars um það, í færslum á Twitter, að reyna að grafa undan sér með því að „snúa út úr og afbaka stað­reyndir“ um hennar persónu­lega fjárhag.

„Nú þegar lít­ur út fyr­ir að ég nái kjöri á Alþingi mun ég að sjálf­sögðu, eins og aðrir, fylgja öll­um regl­um varðandi hags­muna­skrán­ingu þing­manna og gefa upp viðeig­andi eign­ir. Þar er ekki miðað við að fólk opni sín per­sónu­legu fjár­mál upp á gátt mörg ár aft­ur í tím­ann eins og ég hef verið kraf­in um af sum­um fjöl­miðlum. Þar af leiðandi hyggst ég ekki tjá mig um mín per­sónu­legu fjár­mál eða viðskipti sem ég átti áður en ég hóf af­skipti af stjórn­mál­um,“ sagði Kristrún í skriflegu svari sem hún veitti Stundinni og fleiri fjöl­miðlum nokkrum dögum fyrir kosningarnar í september.

Ræddi málið í október og talaði um lottóvinning

Kristrún náði kjöri á þing og greindi síðar frá því, í viðtali við Egil Helgason í Silfrinu, að hún hefði keypt um 10 milljónir hluta í Kviku banka fyrir þrjár milljónir króna.

Á þingiKristrún er þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður, eftir að hafa komið inn í stjórn­málin úr fjár­mála­geir­anum fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Í viðtalinu lýsti hún kaupum áskriftar­réttindanna sem mikilli áhættu­fjár­festingu, sem reynst hefði fáránlega góð. „Þetta var lottó­vinningur," sagði Kristrún í Silfrinu.

Gengis­þróun hluta­bréfa í Kviku hafði vissulega vegar verið afar hagfelld Kristrúnu og öðrum sem áttu áskriftar­réttindi í bankanum, en á þeim tíma sem viðtalið var tekið, í október 2021, nam hagnaður hennar af fjár­festingunni, eftir skatta, um 30 milljónum króna að hennar sögn. 

Þá átti Kristrún enn eftir um að leysa út þriðjung af þeim bréfum sem hún hafði keypt áskriftar­réttindi að og sagði hún að væntur hagnaður af þeim, miðað við gengi bréfa í Kviku banka á þeim tíma, gæti orðið um 45 milljónir króna eftir skatta.

Í maí í fyrra uppfærði Kristrún hagsmuna­skráningu sína á Alþingi og kom þar fram að hún ætti ekki lengur neina fjárhags­lega hagsmuni sem reglur um hagsmuna­skráningu þingmanna taka til, sem þýðir að þá var hún búin að losa um alla hlutabréfa­eign sína í Kviku banka.

Á þeim tíma­punkti hefur hreinn hagnaður Kristrúnar af áskriftar­réttindunum numið um 79 milljónum króna eftir skatta, en í kjölfar leið­réttra skatt­greiðslna hennar nú í vor hefur sú upphæð farið niður í um 54 milljónir króna.

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Stjórnmálamenn sem sjá sóma sinn og bera virðingu fyrir samfélaginu eiga ekki að vera tengdir neinum fjármálaumsvifum. Það á að vera fyrir neðan þeirra virðingu. Afarslæm dæmi eru núverandi formenn Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem eru nátengdir ýmsis konar braski. Það er öllum til vansa sem vilja stjórna samfélagi að hafa einhver tengsl við gróðafíknina.
    4
  • Óskar Þór Árnason skrifaði
    Hvað ef skatturinn meðhöndlaði og birti yfirlit yfir fjármagnstekjur á sama hátt og yfir launatekjur og skatt á séreignasparnað. Ef skattlagningin væri í samræmi við þetta hjá Kristrúnu, mundi hagur sveitarfélaga (útsvarið sem ekkert er af "fjármagnstekjum") og ríkis vænkast mjög.
    6
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Semsé. Kristrún greiðir sína skatta möglunarlaust og án undanskota. Ætli það sama eigi við um formenn allra hinna flokkanna?
    18
    • Olafur Kristjansson skrifaði
      Varla
      3
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Það kallast „smjörklípa“ að reyna að fegra sjálftöku aðalhagfræðings Kvikubanka með því að ýja að því að „hinir“ borgi ekki sína skatta „möglunarlaust og án undanskota“.

      Mér er stórlega til efs að jafnaðarmönnum í hópi kjósenda Samfylkingar finnist sjálfsagt að þeir sem sýsla með aura geti lagt til 3 millur og uppskorið 79 - eða skitnar 54 fyrst Skatturinn er með e-ð vesen.
      -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár