Íslandsbanki harmar brot sín og ætlar að boða til hluthafafundar á næstu dögum

Stjórn og stjórn­endur Íslands­banka segj­ast nú harma mjög þau lög­brot sem fram komi í sátt sem gerð var við fjár­mála­eft­ir­litið. Þau ætla að fara „ítar­lega yfir máls­at­vik og þær úrbætur og breyt­ingar sem þegar hafa verið gerðar eða eru í vinnslu“ á hlut­hafa­fundi sem mun fara fram í næsta mán­uði.

Íslandsbanki harmar brot sín og ætlar að boða til hluthafafundar á næstu dögum
Laskað orð­spor Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, sagði við Heim­ild­ina á föstu­dag að það ekki hafa komið til tals að hún myndi taka pok­ann sinn og hætta. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Stjórn Íslands­banka hyggst boða til hlut­hafa­fundar á næstu dögum. Þar ætlar stjórn bank­ans og stjórn­endur hans að fjalla um fram­kvæmd hans á útboði Banka­sýslu rík­is­ins á 22,5 pró­sent eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka sem fram fór hinn 22. mars 2022. Salan fór fram í lok­uðu útboði og hlut­ur­inn var seldur til 207 aðila sem sagðir voru svo­kall­aðir fag­fjár­festar, en reynd­ust það ekki að öllu leyti. Ákvörð­unin um að boða fund­inn er tekin í kjöl­far til­kynn­ingar Banka­sýslu rík­is­ins í dag þar sem óskað var eftir slíkum fundi.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands sem birt var í kvöld kom fram að Íslands­banki og stjórn­endur hans harmi mjög þau brot sem fram koma í sátt sem bank­inn gerði við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands, og felur í sér bank­inn greiði næstum 1,2 millj­arða króna sekt í rík­is­sjóð. „Á hlut­hafa­fund­inum verður farið ítar­lega yfir máls­at­vik og þær úrbætur og breyt­ingar sem þegar hafa verið gerðar eða eru í vinnslu.“

Nokkuð annar tónn er í til­kynn­ing­unni sem send var í kvöld en til­kynn­ingu sem Íslands­banki sendi á fimmtu­dags­kvöld, áður en sáttin var birt opin­ber­lega. Þar sagð­ist hann hafa þegið boð Fjár­mála­eft­ir­lits­ins „um að ljúka máli með sam­komu­lagi um sátt“. Finnur Árnason, stjórn­ar­for­maður Íslands­banka, sagði í til­kynn­ing­unni að ljóst sé að „bank­inn dregur mik­inn lær­dóm af þessu verk­efni.“ Ekki var beðist afsök­unar í þeirri til­kynn­ingu.

Í til­kynn­ing­unni á fimmtu­dag sagði enn fremur að bank­inn gang­ist við því að hafa brotið gegn „til­teknum ákvæðum“ laga um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga og laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Forsætisráðherra vill að stjórnendur axli ábyrgð

Banka­sýslan fer enn með 42,5 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka og veru­lega hags­muni rík­is­ins í öðrum fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Hún lítur málið alvar­legum augum og fór fyrr í dag  fram á að hlut­hafa­fundur verði boð­aður. Þar vill banka­sýslan að „stjórn og stjórn­endur bank­ans geri grein fyrir mál­inu og þeim ráð­stöf­unum sem gripið verður til í því skyni að end­ur­vekja traust.“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kall­aði eftir því fyrr í dag að stjórn­endur bank­ans öxl­uðu ábyrgð á stöð­unni. Stjórn­ar­and­staðan hefur jafn­framt kraf­ist þess að fjár­mála­ráð­herra taki póli­tíska ábyrgð. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur hafnað eigin ábyrgð á lög­brotum Íslands­banka en sagði við RÚV að stjórn­endur bank­ans hefðu brugð­ist trausti stjórn­valda við fram­kvæmd sölu á hlut rík­is­ins.

Flokkuðu almenna fjárfesta sem fagfjárfesta

Í sátt­inni, sem birt var í morgun, kemur meðal ann­ars fram að starfs­menn Íslands­banka flokk­uðu átta við­skipta­vini sína, sem voru almennir fjár­festar, sem fag­fjár­festa svo þeir gætu tekið þátt í útboð­inu. Sú flokkun átti sér stað án þess að skil­yrði til laga til þess hafi verið upp­fyllt. Íslands­banki hafði ýmist frum­kvæði að því eða hvatti umrædda almenna fjár­festa, og aðra slíka, til að óska eftir að fá stöðu fag­fjár­festis og breytti flokkun við­skipta­vina sem tóku þátt í útboð­inu, sem var ein­ungis ætlað hæfum fjár­festum, eftir að það hófst. Í sumum til­vikum voru við­kom­andi aðilar ekki flokk­aðir sem fag­fjár­festar fyrr en nokkrum dögum eftir að útboð­inu lauk og stundum tók það ein­ungis nokkrar mín­útur fyrir við­kom­andi að fá slíka flokkun innan útboðs­dags. 

Í sátt­inni segir líka að Íslands­banki hafi ekki fram­kvæmt né skjal­fest grein­ingu á hags­muna­á­rekstrum í tengslum við verk­efni máls­að­ila vegna sölu­ferl­is­ins.

Skaðleg áhrif á traust og trúverðugleika fjármálamarkaða

Þá kemur fram að Íslands­banki hafi veitt Banka­sýslu rík­is­ins vill­andi upp­lýs­ingar um fyr­ir­liggj­andi til­boð í til­boðs­bók­inni sem lögð var fyrir Banka­sýsl­una að kvöldi 22. mars 2022 með því að upp­lýsa ekki um að almennir fjár­festar stæðu að baki ákveðnum til­boðum. „Þar af leið­andi fékk Banka­sýslan ekki upp­lýs­ingar um nöfn þátt­tak­enda og fjár­hæð til­boða frá hverjum og einum þrátt fyrir að upp­lýs­ingar þess efnis lægju fyrir hjá máls­að­ila. Banka­sýslu rík­is­ins voru einnig veittar vill­andi upp­lýs­ingar um flokkun þátt­tak­enda í útboð­inu þar sem níu við­skipta­vinir máls­að­ila sem stóðu að baki til­boðum í til­boðs­bók­inni sem lögð var til grund­vallar rök­studdu mati Banka­sýsl­unnar til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra voru ekki flokk­aðir sem fag­fjár­festar á því tíma­marki. Þá veitti máls­að­ili við­skipta­vinum Eigna­stýr­ingar rangar og vill­andi upp­lýs­ingar, gegn betri vit­und, í níu til­fellum um að lág­marks­fjár­hæð til­boða í útboð­inu væri 20 millj­ónir króna þegar ekki var um slíka skil­mála að ræða.“

Með hátt­erni sínu hafi Íslands­banki ekki upp­fyllt að öllu leyti skyld­una til að starfa heið­ar­lega, af sann­girni og fag­mennsku, í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti, með trú­verð­ug­leika fjár­mála­mark­að­ar­ins og hags­muni við­skipta­vina að leið­ar­ljósi við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd útboðs­ins. „Með þeirri hátt­semi að bjóða almennum fjár­festum að taka þátt í útboði sem ein­göngu var ætlað hæfum fjár­festum virti máls­að­ili ekki útboðs­skil­mála Banka­sýsl­unnar og gætti því ekki að hags­munum hennar af því að farið væri að skil­málum útboðs­ins. Um sölu á rík­is­eign var að ræða og voru hluta­bréf í máls­að­ila sjálfum boðin til sölu sem hefði átt að leiða til þess að máls­að­ili vand­aði sér­stak­lega til verka við fram­kvæmd þess. Háttsemi máls­að­ila er til þess fallin að hafa skað­leg áhrif á traust og trú­verð­ug­leika fjár­mála­mark­aða. Háttsemi máls­að­ila sem lýst hefur verið felur í sér alvar­leg brot á mik­il­vægum ákvæðum laga um mark­aði fyrir fjár­mála­gern­inga og lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki.“

Viðurkenndi að orðspor bankans hefði skaðast

Í sátt­inni kemur fram að nið­ur­staða eft­ir­lits­ins sé sú að stjórn og banka­stjóri Íslands­banka hafi ekki með full­nægj­andi hætti inn­leitt stjórn­ar­hætti og innra eft­ir­lit sem tryggir skil­virka og var­færna stjórnun sem birt­ist meðal ann­ars í því að ekki var tryggt að bank­inn upp­fyllti laga­kröfur sem gilda um veit­ingu fjár­fest­ing­ar­þjón­ustu og fylgni við innri reglur sem stjórn hans hefur sett. 

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, sagði við Heim­ild­ina á föstu­dag, eftir að til­kynn­ing Íslands­banka var birt en fyrir birt­ingu sátt­ar­innar í heild sinni, að með því að bjóða sátt væri „fjár­mála­eft­ir­litið að sýna stjórn og banka­stjóra traust til þess að inn­leiða þær breyt­ingar sem þarf. Og það er að sjálf­sögðu mik­il­vægt. Og það er mik­il­vægt að okkur er boðin sátt.“

Birna við­ur­kenndi að orð­spor bank­ans hefði skað­ast vegna máls­ins en sagði það ekki hafa komið til tals að hún myndi taka pok­ann sinn og hætta.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það eina sem er skýrt í skýrslunni er að Birna hefur ekki verið að gera neitt. Hún lætur strákana um allt. Bankinn rekur sig sjálfur á okurtöxtum-og vöxtum á einokunarmarkaði.
    0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Gott að heyra að boða ætti til hluthaha-fundar.

    Bjarni Ben.er bara i VAFNINGUM,N1,Bilanaust og öllum hinum flækjunum en Islandsbanka ruglið
    kemur honum ekki við.

    þAÐ ERU BARA FAÐIR HANS OG FÖÐURBROÐUR E.TV. FLEIRI SEM TENGJAST ÞESSU MALI

    ASAMT FJÖLMARGRA ANNARA MALA.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár