Svandís Svavarsdóttir: Sek um vanrækslu hefði ég hunsað álit fagráðsins

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra segir aðgerða­leysi líka vera ákvörðun. Hún hefur ekki rætt við Kristján Loftsson eftir að hún tók ákvörðun um tíma­bundið hval­veiða­bann. Verk­efnið fram undan er að ræða við leyf­is­hafa og sér­fræð­inga Mat­væla­stofn­unar og ráðu­neyt­is­ins um fram­tíð hval­veiða.

<span>Svandís Svavarsdóttir:</span> Sek um vanrækslu hefði ég hunsað álit fagráðsins
Tekist á um hvali „Velferð allra dýra er á mínu borði,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra á opnum fundi atvinnu­vega­nefndar Alþingis í dag þar sem tíma­bundið bann á hval­veiðum var til umfjöll­unar. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

„Hefði ég hunsað svo afdrátt­ar­lausa nið­ur­stöðu fagráðs án þess að hafa nokkuð hald­bært sem benti til þess að nið­ur­staðan væri ekki rétt hefði ég gerst sek um van­rækslu.“  

Þetta er meðal þess sem Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra sagði á opnum fundi atvinnu­vega­nefndar Alþingis í dag þar sem nefnd­ar­menn tók­ust á um ákvörðun ráð­herra um að stöðva veiðar á lang­reyðum tíma­bundið. Mat­væla­ráðu­neytið greindi frá ákvörð­un­inni á þriðju­dag og frétti Stefán Vagn Stef­áns­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar, af tíma­bundnu hval­veiði­banni í fjöl­miðlum. Hann boð­aði til fundar í atvinnu­vega­nefnd þar sem óskað var rök­stuðn­ings ráð­herra.   

Óskað eftir rök­stuðn­ingiStefán Vagn Stef­áns­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, boð­aði til fund­ar­ins til að fá rök­stuðn­ing ráð­herra fyrir ákvörðun sinni um að banna hval­veiðar tíma­bundið.

Svandís sagð­ist hafa forð­ast það hingað til að grípa til úrræða sem gætu raskað starfs­leyfi hval­veiðis­hafa án þess að rík nauð­syn væri til. Nið­ur­staða fagráðs­ins hafi verið afdrátt­ar­laus og því hafi hún ákveðið að stöðva hval­veiðar tíma­bundið. „Mér sem ráð­herra er skylt að bregð­ast við til að sjá til þess að starf­semi sem er háð mínu leyfi sé ekki and­stæð lögum.“

„Aðgerðaleysi er líka ákvörðun“ 

Svandís hefur verið gagn­rýnd fyrir að gæta ekki með­al­hófs við ákvörðun sína, meðal ann­ars af Sigurði Inga Jóhanns­syni inn­við­a­ráð­herra og tóku Teitur Björn Ein­ars­son og Hildur Sverr­is­dóttir, nefnd­ar­menn atvinnu­vega­nefndar og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, undir þá gagn­rýni á fundi nefnd­ar­innar. 

Svandís sagði með­al­hóf ekki fel­ast í að fram­fylgja ekki lögum, heldur felst það í að gera það með þeim hætti sem er minnst íþyngj­andi fyrir borg­ar­ana. „Mér finnst oft gleym­ast í þess­ari umræðu að aðgerða­leysi er líka ákvörðun. Hefði ég hunsað svo afdrátt­ar­lausa nið­ur­stöðu fagráðs án þess að hafa nokkuð hald­bært sem benti til þess að nið­ur­staðan væri ekki rétt hefði ég gerst sek um van­rækslu.“  

Tárvot Inga Sæland yfirgaf fundarherbergið

Fund­ur­inn hófst á birt­ingu mynd­skeiðs, að frum­kvæði ráð­herra, sem Heim­ildin birti í maí sem sýnir langt dauða­stríðs hvals. Myndefnið var tekið upp af eft­ir­lits­manni á vegum Mat­væla­stofn­unar sem var, sam­kvæmt nýrri reglu­gerð sem mat­væla­ráð­herra gaf út síð­asta sumar, að fylgj­ast með vel­ferð hval­anna.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, yfir­gaf fund­ar­her­bergið í tárum skömmu eftir að mynd­skeiðið hófst. „Ég er nú ein af þeim sem á afskap­lega erfitt með að horfa á hvers kyns dýra­níð,“ sagði Inga þegar hún tók til máls síðar á fund­inum. 

„Velferð allra dýra er á mínu borði“
Svandis Svav­ars­dóttir,
mat­væla­ráð­herra

„Nú er blússandi blóð­mera­hald í gangi og við höfum verið að berj­ast gegn því lengi,“ sagði Inga og spurði Svandísi hvort hún ætl­aði að vernda vel­ferð allra dýra eða bara sumra. Stefán Vagn, for­maður nefnd­ar­innar, minnti á efni fund­ar­ins. Inga svar­aði með því að segja að hún hefði frjálst orð. „Mér er ljúft að svara því. Velferð allra dýra er á mínu borði,“ svar­aði Svandís.  

Mat­væla­ráð­herraSvandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra telur að ef hún hefði hunsað afdrátt­ar­lausa nið­ur­stöðu fagráðs um vel­ferð dýra hefði hún gerst sek um van­rækslu.

Hvað gerist eftir 31. ágúst?

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði ráð­herra hvað tekur við eftir 31. ágúst. Svandís sagði að það velti á því sam­tali sem fram undan er. 

„Lög­gjaf­inn hefur falið mér, sem ráð­herra sem fer með dýra­vernd­un­ar­mál, ábyrgð á að tryggja vel­ferð dýra með þeim úrræðum sem ég hef. Þessi ábyrgð er sér­stak­lega rík í þessum mála­flokki þar sem dýr eru mál­leys­ingjar sem eiga sér ekki annan málsvara, að lögum, en stjórn­völd.“  

Hval­veiði­leyfið sem er í gildi nú, þó tíma­bundin stöðvun sé í gildi, rennur út um ára­mótin. „Það sem er mitt verk­efni núna, fyrir utan þetta ferli sem núgild­andi leyfi er í, er að und­ir­byggja það með sem fjöl­breyttustum hætti hver afstaða stjórn­valda verður til mögu­legrar óskar um nýtt leyfi, sem myndi þá taka gildi frá næstu ára­mótum,“ sagði Svandís í sam­tali við Heim­ild­ina að fundi loknum. 

„Þar hef ég gögn Mat­væla­stofn­unar, þar hef ég nið­ur­stöðu fagráðs, þar hef ég skýrslu vist­fræð­ings um vist­kerfi sjávar og áhrif hvala á kolefn­is­bind­ingu. Í júlí á ég von á nýrri grein­ingu sem lítur að efna­hags­legum sjón­ar­miðum. Ég legg áherslu á það að þetta sé traustur og öruggur grunnur fyrir þá ákvörðun sem þarf að taka þegar og ef það erindi berst.“

Aðspurð hverjir munu taka þátt í umræddu sam­tali segir Svandís að fyrst og fremst sé um að ræða sér­fræð­inga Mat­væla­stofn­unar og ráðu­neyt­is­ins. 

Sá ekki ástæðu til að hitta Kristján Loftsson

„Og síðan er það leyf­is­haf­inn.“ Það er hvala­út­gerð­ar­mað­ur­inn Kristján Loftsson, sem vand­aði Svandísi ekki kveðj­urnar í við­tali í Morg­un­blað­inu í vik­unni, þar sem hann seg­ir að „öfga­full­ur komm­ún­isti“ stjórni mat­væla­ráðu­neyt­inu.

Svandís hefur ekki rætt við Kristján eftir að hún greindi frá ákvörðun sinni. „Hann hefur fengið bréf frá ráðu­neyt­inu með upp­lýs­ingum og það er hin form­lega leið. Ég sé enga sér­staka ástæðu til þess að við hitt­umst, hann er hand­hafi leyfis sem er gefið út af ráðu­neyt­inu og nú hefur verið tekin ákvörðun um það að fresta upp­hafi þess­arar til­teknu ver­tíðar.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár