Hreinn Loftsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur, sem tók við embætti dómsmálaráðherra á mánudaginn. Frá þessu segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Hreinn er ekki ókunnugur því að vera dómsmálaráðherra til aðstoðar. Hann var aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur í embættinu á árunum 2019-2021 og tók einnig við starfi aðstoðarmanns Jóns Gunnarssonar þegar Jón tók við dómsmálunum í upphafi kjörtímabils.
Samstarf Hreins og Jóns varði hins vegar aðeins í tvær vikur, en daginn eftir að Hreinn tók við aðstoðarmannsstarfinu var tilkynnt að hinn aðstoðarmaður Jóns yrði Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Hreinn tjáði sig um brotthvarf sitt frá Jóni á sínum tíma og sagðist hreinlega hafa verið of fljótur að segja já við því að taka að sér starfið.
„Þegar ég tók við starfi sem aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, fyrir rétt rúmum tveimur árum lét ég þau orð falla að ég liti á það sem mikinn heiður og faglega áskorun að taka að mér þetta verkefni. Árin hafa svo sannarlega verið viðburðarík. Málefni ráðuneytisins eru fjölmörg og spennandi. Ég tók því boði Jóns Gunnarssonar þegar hann bauð mér að halda áfram störfum við ráðherraskiptin í byrjun mánaðarins. Fljótlega komst ég þó að raun um að ég hafði verið of fljótur á mér og hef nú afráðið að láta af störfum,“ sagði Hreinn í Facebook-færslu við það tilefni.
Hreinn lauk laganámi við Háskóla Íslands árið 1983 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 1993. Hann á að baki fjölbreyttan feril í lögmennsku, atvinnulífi, stjórnsýslu og sem aðstoðarmaður ráðherra í nokkrum ráðuneytum frá árinu 1985 til 1992.
Hann var meðal annars aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar þáverandi forsætisráðherra og var formaður framkvæmdanefndar um einkavæðingu um nokkurt skeið í kringum síðustu aldamót. Hreinn gegndi einnig stjórnarformennsku í fjárfestingarfélaginu Baugi um tíma og sat líka sem óbreyttur stjórnarmaður þar, en það fór í þrot eftir bankahrunið.
Athugasemdir