Drónar Úkra­ínskir her­menn í Donetsk bera dróna­vara. Mynd: AFP

Umbylting hernaðar

Drónar hafa gjör­breytt því hvernig stríð eru háð.

Nú þeegar stríðið í Úkraínu er komið á fimmta ár hafa drónar náð algerum yfir­ráðum á víg­lín­unni, í umbreyt­ingu nútíma­hern­aðar sem fylgst er með um allan heim.

Hér er yfir­lit yfir tækn­ina sem er að end­ur­móta stríðið, fjórum árum eftir að Rússar hófu alls­herj­ar­inn­rás sína með því að senda skrið­dreka og her­menn yfir landa­mærin.

Drápssvæði

Drónar, allt frá ódýrum tækjum til almennra nota til smá­flug­véla sem hlaðnar eru sprengi­efni, bera ábyrgð á allt að 80 pró­sentum af tjóni á víg­vell­inum, að sögn Mykhailo Fedorov, varn­ar­mála­ráð­herra Úkraínu.

„Nútíma­hern­aður er nú ómögu­legur án dróna,“ sagði Koleso, úkra­ínskur fót­göngu­liði, við AFP í aust­ur­hluta Úkraínu.

Víglínan hefur breyst í „dráps­svæði“ sem teygir sig allt að 20 kíló­metra inn á land – „svæði milli tveggja fylk­inga þar sem ekk­ert getur lifað af því það er stöðugt undir eft­ir­liti dróna,“ útskýrði Kateryna Bondar, hern­að­ar­sér­fræð­ingur.

Hermenn geta aðeins starfað þar …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið undanfarið ár