Lýsa „dauðalista“ og aftökum á börnum í málinu gegn forseta Filippseyja
Duterte og lög­reglu­stjór­inn Forseti Fil­ipps­eyja, Rodrigo Duterte, hlustar á fil­ip­p­eyska rík­is­lög­reglu­stjór­ann Ronald Dela Rosa, en þeir eru lyk­il­að­ilar í glæpum gegn mann­kyn­inu sem Alþjóða­glæpa­dóm­stóll­inn hefur tekið til með­ferðar. Mynd: AFP

Lýsa „dauðalista“ og aftökum á börnum í málinu gegn forseta Filippseyja

Vitn­is­burðir lagðir fram í mála­ferlum Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins gegn Rodrigo Duterte, fyrr­ver­andi for­seta Fil­ipps­eyja, vegna glæpa gegn mann­kyn­inu í stríði hans gegn eit­ur­lyfjum.

Rodrigo Duterte, fyrr­ver­andi for­seti Fil­ipps­eyja, tók per­sónu­lega saman „dauða­lista“ og stærði sig af morðum sem framin voru í „stríði hans gegn eit­ur­lyfjum“, að því er sak­sókn­ari Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins (ICC) hélt fram í dag í mála­ferlum vegna glæpa gegn mann­kyn­inu.

Á öðrum degi skýrslu­taka í mál­inu gegn Duterte lagði Edward Jeremy, sak­sókn­ari Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins, fram slá­andi vitn­is­burð, þar á meðal ásak­anir um að höfuð barna hefðu verið vafin inn í lím­band og þau kyrkt til bana.

„Sem for­seti nafn­greindi Duterte opin­ber­lega ein­stak­linga sem hann sagði að væru viðriðnir eit­ur­lyf og margir þeirra end­uðu sem fórn­ar­lömb í svoköll­uðu stríði hans gegn eit­ur­lyfjum,“ sagði Jeremy.

„Duterte-list­inn“ var „í raun­inni dauða­listi“, sagði Jeremy og vitn­aði í vitni, og sýndi mynd­band af Duterte sjálfum þar sem hann sagði: „Ég er eini mað­ur­inn sem ber ábyrgð á þessu öllu.“

Duterte stendur frammi fyrir þremur ákærum Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins um glæpi gegn mann­kyn­inu, en sak­sókn­arar halda því fram að hann hafi átt aðild að að minnsta kosti 76 morðum á árunum 2013 til 2018.

Sak­sókn­arar segja að þetta sé „aðeins brot“ af þeim þús­undum sem talið er að hafi verið drepnar í „stríði hans gegn eit­ur­lyfjum“ sem borg­ar­stjóri Davao-borgar og síðan for­seti.

„Eins og vitni sögðu, var oft beint spjótum að fátækum, því þeir voru þeir sem voru síst lík­legir til að leggja fram kvart­anir á hendur lög­regl­unni,“ sagði Jeremy.

„Líkin hrannast upp“

Jeremy spil­aði mynd­brot af Duterte þar sem hann grín­að­ist með „aftökur án dóms og laga“ í ræðu.

„Og í þessum íburð­ar­mikla, gyllta sal hlæja emb­ætt­is­menn­irnir með for­seta sínum á meðan hann stærir sig af færni sinni í aftökum án dóms og laga,“ sagði Jeremy.

„Og úti á götum Fil­ipps­eyja hrann­ast líkin upp.“

Jeremy hélt því fram að næstum 1.500 manns hefðu þegar verið drepnir þegar þetta mynd­band var tekið.

Sak­sókn­ar­inn sagði að í tveimur til­vikum hefðu börn á aldr­inum 14 eða 15 ára verið tekin í gæslu­varð­hald.

„Í hvoru til­viki fyrir sig vafði lög­reglan höfuð barns­ins inn í lím­band. Svo eng­inn gæti heyrt þau öskra. Og kyrkti síðan barnið til bana með vír,“ sagði Jeremy.

„Það er erfitt að ímynda sér hræði­legri enda­lok tveggja lífa sem voru varla hafin.“

Vikulöng mála­ferli Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins eru ekki rétt­ar­höld heldur yfir­heyrsla til „stað­fest­ingar á ákærum“, sem gerir dóm­urum kleift að vega og meta hvort halda eigi áfram með rétt­ar­höld.

Annar sak­sókn­ari, Robynne Croft, lýsti meintum glæpum sem „víð­tækri og kerf­is­bund­inni árás“ á fil­ippseysku þjóð­ina.

Morðin voru „mjög skipu­lögð, fyr­ir­fram ákveðin og sam­ræmd“ og án „nauð­syn­legs fram­lags“ Duterte hefðu þau ekki átt sér stað, að því er Croft hélt fram.

Duterte, sem er 80 ára, er ekki við­staddur í rétt­ar­salnum eftir að hafa nýtt sér rétt sinn til að vera fjar­ver­andi.

Duterte segist saklaus og veikburða

Verj­enda­teymi hans segir hann vera veik­burða og með hnign­andi vits­muna­getu. Sak­sókn­arar og fórn­ar­lömb halda því fram að hann sé við góða heilsu en vilji ekki horfast í augu við ást­vini fórn­ar­lambanna.

Dóm­stóll­inn úrskurð­aði hann hæfan til að mæta en veitti honum rétt til að vera fjar­ver­andi.

Þegar yfir­heyrslum lýkur á föstu­dag mun dóm­stóll­inn taka sér allt að 60 daga til að ákveða hvort halda eigi áfram með full rétt­ar­höld, venju­lega með skrif­legum dómi.

Nicholas Kaufman, verj­andi Duterte, sagði í gær að skjól­stæð­ingur hans „héldi fram sak­leysi sínu með öllu“.

Kaufman hélt því fram að þótt Duterte hafi notað „stór­yrði og ýkjur“ í ræðum sínum, hafi hann einnig oft skipað yfir­völdum að skjóta aðeins í sjálfs­vörn.

Trump og DuterteDonald Trump Banda­ríkja­for­seti lét aftökur án dóms og laga í Fil­ipps­eyjum ekki trufla sig í sam­skiptum við Rodrigo Duterte for­seta og hóf síðar sjálfur aftökur í fíkni­efna­stríði.

Dómstóllinn í sigti Bandaríkjanna

Alþjóða­glæpa­dóm­stóll­inn á í vök að verj­ast vegna aðgerða stór­velda gegn honum. Nokkrir dóm­arar Alþjóða­glæpa­dóm­stóls­ins hafa verið beittir refsi­að­gerðum af Banda­ríkj­unum, með þeim afleið­ingum að ferða­frelsi þeirra er tak­markað, kredit­kortum lokað og svo aðgöngum að vef­þjónstu, til dæmis Gmail.

Þá hafa dóm­arar verið dæmdir í Rúss­landi, að þeim fjar­stöddum, fyrir að gefa út hand­tökutil­skipun á hendur Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta vegna stríðs­glæpa í Úkraínu. 

Talið er mögu­legt að dóm­stóll­inn gæti beint spjótum sínum að Donald Trump Banda­ríkja­for­seta vegna drápa án dóms á laga á meintum „fíkni­efna­hryðju­verka­mönnum“ á Karíba- og Kyrra­hafi síð­ustu mán­uði, en vel á annað hund­rað grun­aðra smygl­ara hafa verið drepnir í loft­árásum Banda­ríkj­anna. 

Sjálfur hrós­aði Trump Duterte í hástert í sím­tali sem hefur verið birt, frá árinu 2017.

„Ég vildi bara óska þér til ham­ingju, því ég er að heyra af ótrú­lega góðu verki sem þú ert að vinna í fíkni­efna­vand­anum,“ sagði Trump við Duterte, sam­kvæmt end­ur­riti sam­tals­ins. „Mörg lönd glíma við þetta vanda­mál, við glímum við vanda­mál, en þú ert að standa þig frá­bær­lega og ég vildi bara hringja og segja þér það.“ 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    En skrýtið með fólk!þarf það endilega að brúka eiturlyf til að komast í einhverjavímuogtilhvers er það það borgarsigillafyrirþau að vera ísvonaveseni
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár