Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

„Gert til þess að hræða fólk frá því að gera það sem það telur skyldu sína“

Már Guð­munds­son seg­ir að að­gerð­ir Seðla­bank­ans gegn Sam­herja hafi ekki ver­ið til­hæfu­laus­ar. Bald­vin Þor­steins­son hafi ekki gert sjálf­um sér greiða með því að stugga við Má ár­ið 2019, og ekki gert Sam­herja greiða held­ur. „Kannski gerði hann mér bara greiða.“

„Gert til þess að hræða fólk frá því að gera það sem það telur skyldu sína“
Sena Baldvin Þorsteinsson veittist að Má Guðmundssyni eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í mars 2019. Þar stuggaði hann við Má og sagði: „Hafðu smá sómakennd og drullaðu þér í burtu.“ Mynd: Anton Brink / Fréttablaðið

Samherjamálið var fyrirferðamikið á tíma Más Guðmundssonar sem seðlabankastjóra. Það snerist um að gjaldeyriseftirlit Seðlabankans rannsakaði meint brot Samherja og tengdra félaga á skilaskyldu á erlendum gjaldeyri og meint brot sem vörðuðu milliverðlagningu á þremur fisktegundum.

Ráðist var í húsleit í höfuðstöðvum Samherja vegna þessa og Seðlabankinn kærði meint brot til embættis sérstaks saksóknara.Síðar kom hins vegar í ljós, vegna annmarka á lagasetningu, að lögaðilar gætu ekki borið refsiábyrgð á lögum og reglum um gjaldeyrismál.

Seðlabankinn kærði þá fyrirsvarsmenn Samherja til saksóknara fyrir sömu meintu brot en kæran var felld niður árið 2015 og endursend bankanum. Þá felldi Seðlabankinn niður stærstan hluta málsins en ákvað að leggja stjórnvaldssekt upp á 15 milljónir króna á Samherja varðandi afmarkaðan hluta, sem fyrirtækið fékk síðar hnekkt fyrir dómstólum. 

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, kallaði rannsóknina aðför og eftir að málsmeðferð vegna stjórnvaldssektarinnar lauk sagði hann það vera alveg ljóst „að Már Guðmundsson hefur farið mjög illa með það vald sem honum hefur verið trúað fyrir.“ Síðar fullyrti Þorsteinn Már að það væri „nokkuð ljóst að Már Guðmundsson er á leiðinni í fangelsi.“

Aðspurður um þessi ummæli segir Már að Þorsteinn Már hafi ekki reynst sannspár þar. „Segir það ekki allt sem segja þarf?“

„Ef lögregla tekur við kæru, hvort sem það er nauðgunarkæra eða eitthvað annað, og fer í einhverjar yfirheyrslur og ferli og svo er málið fellt niður, voru þá aðgerðirnar tilhæfulausar?“

Már segir í ítarlegu viðtali við 40 ára afmælisrit Vísbendingar að hann sé með harðan skráp og að hann sé með fulla vissu um að Seðlabankinn hafi einungis verið að sinna sínum embættisskyldum í þessu máli. Það hafi komið fram í dómsorðum að aðgerðir bankans hafi ekki verið tilhæfulausar. „Svo er rökstuddur grunur, sem þarf að liggja að baki kæru, er ekki það sama og sönnuð sekt.“

Segir aðgerðirnar ekki hafa verið tilhæfulausar

Duldir gallar í lögum hefðu gert það að verkum að allur refsibálkurinn í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur. „Og það bara vissi enginn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rannsakað? Vegna þess að það náttúrulega er stórmál.“

Már bendir á að gjaldeyriseftirlit Seðlabankans hafi ekki verið lögregla, heldur aðili sem var skyldaður til að kæra til lögreglu ef það reyndist rökstuddur grunur um meiriháttar brot á gjaldeyrislögum. Þótt kæra hafi verið send felist ekki í því fullyrðing á því að slíkt brot hafi átt sér stað og enn síður að hægt væri að fullyrða um sök eða sýknu á þeim grundvelli. „Hvað ætli þau séu mörg málin á Íslandi sem hafa verið kærð til lögreglu sem ekkert síðan verður úr út af erfiðri sönnunarbyrði og öðru þvíumlíku? Ef lögregla tekur við kæru, hvort sem það er nauðgunarkæra eða eitthvað annað, og fer í einhverjar yfirheyrslur og ferli og svo er málið fellt niður, voru þá aðgerðirnar tilhæfulausar?“

Kallar á rannsóknDuldir gallar reyndist hafa verið til staðar í í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir. Fyrir vikið virkaði ekki refsibálkur laganna. „Og það bara vissi enginn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rannsakað? Vegna þess að það náttúrulega er stórmál.“

Hann segir að til séu fullt af dæmum um svona atburðarás í Íslandssögunni. „Auðvitað var í þessu tilfelli um að ræða fyrirtæki með sterka stöðu og aðgang að fjölmiðlum og kannski aðgang inn í pólitík og annað, og það náttúrulega litaði kannski málið.“

Samherji kærði Má og fjóra aðra stjórnendur Seðlabankans til lögreglu vegna rangra sakargifta. Það mál var fellt niður. Í kjölfarið fór Samherji í skaðabótamál þar sem Seðlabankinn var sýknaður af kröfum fyrirtækisins en þurfti að greiða Þorsteini Má 2,7 milljónir króna í skaða- og miskabætur.

Baldvin gerði ekki Samherja neinn greiða

Már segir að reynt hafi verið að persónuvæða málið. Það komi honum ekki á óvart enda sé það algengt víða um heim þegar rannsóknaraðilar eru að eiga við öfluga aðila. „Það er náttúrulega gert til þess að hræða fólk frá því að gera það sem það telur skyldu sína.“

Einn angi málsins sem vakti mikla athygli átti sér stað eftir opinn fund í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í mars 2019, þar sem vinnubrögð Seðlabankans í rannsókninni á Samherja höfðu verið til umfjöllunar. Eftir fundinn reyndi Már að eiga orðaskipti við Þorstein Má. Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más og einn helsti eigandi og stjórnandi Samherjasamstæðunnar í dag, brást illa við, stuggaði við Má og sagði: „Hafðu smá sómakennd og drullaðu þér í burtu.“

Már segir að hann hafi líklega verið eini maðurinn á staðnum sem var sallarólegur þegar þetta átti sér stað. „Það sagði einhver við mig, ég held að það hafi verið einhver stjórnmálamaður: „Vandinn við þig að þú ert orðinn svo gamall að þú haggast lítið við 

svona aðstæður.“ Ég ætla nú bara að segja sem minnst um þetta, ég meina, ekki gerði hann sér greiða með þessu og ekki gerði hann Samherja greiða. Kannski gerði hann mér bara greiða. En ég læt þetta bara liggja.“

Áskrifendur Vísbendingar geta lesið viðtalið við Má í heild sinni í 40 ára afmælisritinu, eða á glænýrri heimasíðu ritsins. Slóðin á hana er www.visbending.is.

Kjósa
74
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    þetta lið asamt öðrum er hafið uppfyrir lög og reglur.

    ÞETTA ÞJOÐFELAG OKKAR ER SVO GJÖRSPILLT AÐ FOLK ER HÆTT AÐ SJA SPILLINGUNA.
    1
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Þegar fyrrverandi Seðlabankastjóri segir þetta,

    "Duldir gallar í lögum hefðu gert það að verkum að allur refsibálkurinn í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur. „Og það bara vissi enginn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rannsakað? Vegna þess að það náttúrulega er stórmál.“

    Þá er full ástæða til að taka eftir.
    10
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    ,,Duldir gallar í lögum hefðu gert það að verkum að allur refsibálkurinn í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur. „Og það bara vissi enginn af því! Ég bara spyr, af hverju er það ekki rannsakað? Vegna þess að það náttúrulega er stórmál.“

    Já, hvers vegna eru ekki fluttar fréttir af rannsókn frá ríkisstjórn VG liða í boði sjálfstæðisflokksins vegna ,,eyðileggingar" á lögum ?

    Hver er ábyrgur fyrir þessari ,,eyðileggingu" ?

    ,,...allur refsibálkurinn í löggjöfinni sem gjaldeyriseftirlitið átti að starfa eftir hafi verið óvirkur" ?
    8
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    þetta eru litilmenni hja SAMHERJA og öðrum UTGERÐARFELÖGUM,sem eru drifin afram
    af völdum peninga,politik og ofyrirleitni.Þetta pakk a að kunna að skammast sin og borga
    til þjoðarinnar sem hun a þ.e.a.s. auðlindirnar.Ekki troða alla skumaskota sem þetta pakk a
    af peningum ut um allan heim. ATH. SVONA LITILMENNI ERU HÆTTULEG.
    4
  • Katrín Þórarinsdóttir skrifaði
    Ísland í hnotskurn :(
    2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Sýnir lélega stjórnun Þorsteins að hann skuli láta strákinn vaða uppi með þessum hætti.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bannaður á leigubílastæðinu fyrir að leggja starfsfólk Isavia í einelti
2
Fréttir

Bann­að­ur á leigu­bíla­stæð­inu fyr­ir að leggja starfs­fólk Isa­via í einelti

Isa­via seg­ir leigu­bíl­stjóra, sér­stak­lega virk­an á sam­fé­lags­miðl­um, hafa lagt starfs­fólk flug­vall­ar­ins í einelti – með­al ann­ars með ásök­un­um í garð þess og nafn­birt­ing­um á net­inu. Hann hafi ver­ið sett­ur í ótíma­bund­ið bann vegna ógn­andi og óvið­eig­andi fram­komu. „Þetta er nátt­úr­lega óþægi­legt að mæta í vinn­una og verða svo fyr­ir áreiti,“ seg­ir einn starfs­mað­ur við Heim­ild­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Hefði ekki dottið í hug að ráða sjálfan sig
2
Viðtal

Hefði ekki dott­ið í hug að ráða sjálf­an sig

Bogi Ág­ústs­son hef­ur birst lands­mönn­um á skján­um í yf­ir fjóra ára­tugi og flutt Ís­lend­ing­um frétt­ir í blíðu og stríðu. Hann seg­ir heim­inn hafa breyst ótrú­lega mik­ið til batn­að­ar á þess­um ár­um en því mið­ur halli á ógæfu­hlið­ina í rekstri fjöl­miðla á Ís­landi. Af öll­um þeim at­burð­um sem hann hef­ur sagt frétt­ir af lögð­ust snjóflóð­in fyr­ir vest­an ár­ið 1995 þyngst á hann. Enn þann dag í dag man hann hvernig var að þurfa að lesa upp nöfn þeirra sem dóu í flóð­inu á Flat­eyri.
„Ég var bara glæpamaður“
3
Viðtal

„Ég var bara glæpa­mað­ur“

„Margt af því sem ég hef gert mun ég aldrei geta bætt fyr­ir,“ seg­ir Kristján Hall­dór Jens­son, sem var dæmd­ur fyr­ir al­var­leg­ar lík­ams­árás­ir. Hann var mjög ung­ur að ár­um þeg­ar ljóst var í hvað stefndi og fann ekki leið­ina út fyrr en ára­tug­um síð­ar. Í dag fer hann inn í fang­els­in til þess að hjálpa öðr­um, en það er eina leið­in sem hann sér færa til þess að bæta fyr­ir eig­in brot.
Hver er Jón Óttar? - „Ég hef sjálfur fylgst með fólki mánuðum saman“
4
Fréttir

Hver er Jón Ótt­ar? - „Ég hef sjálf­ur fylgst með fólki mán­uð­um sam­an“

Jón Ótt­ar Ólafs­son, einn þeirra sem stund­aði njósn­ir fyr­ir Björgólf Thor Björgólfs­son ár­ið 2012, gaf út glæpa­sögu ári síð­ar þar sem að­al­sögu­hetj­an er lög­reglu­mað­ur sem stund­ar hler­an­ir. Jón Ótt­ar vann lengi fyr­ir Sam­herja, bæði á Ís­landi og í Namib­íu, en áð­ur hafi hann ver­ið kærð­ur af sér­stök­um sak­sókn­ara, sem hann starf­aði fyr­ir, vegna gruns um að stela gögn­um.
Bannaður á leigubílastæðinu fyrir að leggja starfsfólk Isavia í einelti
6
Fréttir

Bann­að­ur á leigu­bíla­stæð­inu fyr­ir að leggja starfs­fólk Isa­via í einelti

Isa­via seg­ir leigu­bíl­stjóra, sér­stak­lega virk­an á sam­fé­lags­miðl­um, hafa lagt starfs­fólk flug­vall­ar­ins í einelti – með­al ann­ars með ásök­un­um í garð þess og nafn­birt­ing­um á net­inu. Hann hafi ver­ið sett­ur í ótíma­bund­ið bann vegna ógn­andi og óvið­eig­andi fram­komu. „Þetta er nátt­úr­lega óþægi­legt að mæta í vinn­una og verða svo fyr­ir áreiti,“ seg­ir einn starfs­mað­ur við Heim­ild­ina.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár