Umdeild kaup VÍS á Fossum samþykkt þrátt fyrir áhyggjur lífeyrissjóða

Trygg­inga­fé­lagið VÍS komið í fjár­fest­inga­banka­starf­semi. Kaup þess á Fossum voru sam­þykkt á hlut­hafa­fundi á mið­viku­dag. Verð­mið­inn er um 4,2 millj­arðar króna, sem sumum líf­eyr­is­sjóðum í hlut­hafa­hópi VÍS þótt allt of hár. Velta Fossa dróst veru­lega saman í fyrra og tap varð á rekstr­inum. VÍS mun lána Fossum 400 millj­ónir króna í kjöl­far þess að kaupin voru afgreidd.

Umdeild kaup VÍS á Fossum samþykkt þrátt fyrir áhyggjur lífeyrissjóða
Umdeild kaup Kaup Fossa á VÍS voru umdeild í aðdrag­anda þeirra og greindi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi meðal ann­ars frá því að hann myndi ekki sam­þykkja þau. Við­skiptin voru hins vegar sam­þykkt með 83 pró­sent greiddra atkvæða. VÍS er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða en stærstu einka­fjár­fest­arnir eru félög tengd Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Bjarna Ármanns­syni. Haraldur Þórð­ar­son verður for­stjóri sam­stæð­unnar.

„Kaupin og umbreyt­ing á starf­sem­inni eru ekki áhættu­laus við­skipti en stjórn væntir þess að fjár­mála­starf­semin muni skila við­un­andi arð­semi og opna dyr að tæki­færum sem ann­ars væru fjar­læg­ari.“ Þetta er meðal þess sem kom fram í upp­færðri kynn­ingu stjórnar Vátrygg­inga­fé­lags Íslands (VÍS) á þá fyr­ir­hug­uðum kaupum trygg­inga­fé­lags­ins á fjár­fest­inga­bank­anum Fossum á 4,2 millj­arða króna, miðað við gengi á hlutum í VÍS í dags­lok á mið­viku­dag. Sú upp­hæð verður greidd með því að hlut­hafar Fossa fá 12,6 pró­sent í sam­ein­uðu félagi með útgáfu á nýju hlutafé.

Uppfærða kynn­ingin, sem inni­hélt þrjár nýjar glærur með rök­stuðn­ingi fyrir kaup­unum, var birt vegna þess að hlut­hafar í VÍS höfðu spurst fyrir um kaupin. Þær fyr­ir­spurnir sner­ust fyrst og fremst um að hlut­hafar, sér­stak­lega sumir þeirra líf­eyr­is­sjóða sem eiga saman yfir helm­ing hluta­fjár í VÍS, töldu að það verð sem verið er að greiða fyrir Fossa væri allt of hátt og í engu sam­ræmi við …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár