Fámenn þjóð með stóra rithöfunda – „Góð saga getur alltaf ratað rétta leið“

Margir íslenskir rit­höf­undar hafa haslað sér völl erlendis með góðum árangri. Íslenskar bækur hafa verið þýddar yfir á fjöl­mörg tungu­mál í gegnum árin og selst í millj­óna vís. En slík útrás ger­ist ekki af sjálfu sér og liggur gríð­ar­leg vinna þar að baki – frá því bók er skrifuð þangað til hún er gefin út á öðru tungu­máli í öðru landi.

Fámenn þjóð með stóra rithöfunda – „Góð saga getur alltaf ratað rétta leið“
Yfir 50 ára reynsla Þær Kolbrún Þóra Eiríks­dóttir, Val­gerður Bene­dikts­dóttir og Stella Soffía Jóhann­es­dóttir hafa yfir 50 ár af sam­an­lagðri reynslu af bóka­út­gáfu og bók­mennta­kynn­ingu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tíð­ar­andi, tíma­setn­ing og heppni. Þetta eru allt þættir sem hafa áhrif á það hvort íslenskur höf­undur nái að gefa út verk sín erlendis og hvort þau slái í gegn. Þarna spila umboðs­menn stórt hlut­verk en þeir þurfa að vera með gríð­ar­lega gott tengsla­net, þekk­ingu, inn­sæi og næmi til að ná að gefa íslenskum verkum gott heim­ili á erlendri grund. 

Ómögu­legt er að spá nákvæm­lega fyrir um hvort bók muni verða vin­sæl eða ekki en þeir sem hafa verið lengi í brans­anum geta þó stundum kort­lagt það með ákveðnum hætti. Hér á landi er ein­ungis ein umboðs­skrif­stofa, Reykja­vík Literary Agency (RLA), sem sér­hæfir sig í því að selja útgáfu­rétt íslenskra höf­unda til útlanda en hún tók form­lega til starfa í lok maí. Stofan byggir á grunni sem spannar tvo ára­tugi, frá Rétt­inda­stofu Eddu til Rétt­inda­stofu For­lags­ins. Á RLA starfa þrír starfs­menn, þær Val­gerður Bene­dikts­dóttir, Kolbrún Þóra Eiríks­dóttir og Stella Soffía Jóhann­es­dóttir, …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár