Þessi grein birtist fyrir meira en 2 árum.

„Það er allt í rugli“

Formað­ur Mið­flokks­ins legg­ur til að ráð­herr­ar haldi næt­ur­fundi og panti sér pizzu eða svið á kostn­að skatt­greið­enda til að greiða úr óvissu­ástand­inu sem rík­ir í efna­hags­mál­um. For­sæt­is­ráð­herra seg­ir rík­is­stjórn­ina vera að gera það sem þurfi að gera.

„Það er allt í rugli“
Óvissuástand „Það er allt í rugli, það vissum við,“ sagði Sigmundur Davíð í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Sagði hann ástandið í efnahagsmálum og á vinnumarkaði algjörlega óviðunandi. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir Alþingi ekki getað farið inn í sumarið án þess að bregðast við því neyðarástandi sem ríkir í efnahagsmálum.  

„Það er allt í rugli, það vissum við,“ sagði Sigmundur Davíð í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Sagði hann ástandið í efnahagsmálum og á vinnumarkaði algjörlega óviðunandi. „Er ekki rétt að nota þann skamma tíma sem eftir er af þessu þingi til að einbeita sér að þeim málum, að efnahagsástandinu, að vinnumarkaðnum, að verðbólgunni, að stöðunni á húsnæðismarkaði. Þarf ekki að nota allan þennan tíma til einbeita sér að því að koma hér á einhverjum lausnum því við getum ekki farið inn í sumarið til að bregðast við þessu ástandi?“

Fyrirspurninni beindi hann að Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra og formanni Vinstri grænna. „Ég myndi telja aðkallandi að þingið einbeitti sér að þessu og ráðherrarnir líka þó að þeir þurfi þá kannski að halda einhverja næturfundi sem er fullt tilefni til. Þeir geta pantað pizzur eða svið eða hvað annað á kostnað skattgreiðenda og enginn mun kvarta yfir því, ef að lausnirnar koma. En lausnirnar þurfa að koma núna. Við getum ekki farið inn í sumarið í þessu fullkomna óvissuástandi. Og við getum ekki látið þessa fáu daga sem eftir eru af þinginu líða án þess að brugðist sé við þessu neyðarástandi á öllum þessum sviðum,“ sagði Sigmundur. „Nú þurfum við alvöru hugmyndir og aðgerðir sem við getum afgreitt.“

„Við erum að gera það sem þarf“

Katrín sagði Sigmund Davíð líta framhjá því sem hefur verið gert, verið sé að gera eða standi til að gera. „Við erum að vinna samkvæmt fjárlögum ársins í ár sem samkvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum styðja við verðbólgumarkmið, styðja við aðgerðir Seðlabankans. Við erum að vinna að því hvernig við getum aukið enn aðhald á komandi árum út frá ábendingum sama aðila þannig að við erum að gera það sem þarf. 

Forsætisráðherra sagði það óþarfi að panta pitsur á kostnað skattgreiðenda.  „Þess þarf ekki. Við erum einfaldlega að gera það sem þarf til að styðja við það verkefni Seðlabankans sem er að ná niður verðbólgunni.“ Þá sagðist hún ekki ætla að fara „í þann leik sem hefur verið ansi mikið leikinn að undanförnu að benda á einstaka sökudólga vegna ástandsins“. 

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

„Staðreyndin er sú að hér á Íslandi eru gríðarlega mikil efnahagsumsvif. Hér er lítið atvinnuleysi. Hér er mikill hagvöxtur, spáð meiri hagvexti en áður var spáð og við sjáum verðbólguna birtast þannig. Það er ekki sama staða hér og víða í nágrannalöndum okkar þar sem við sjáum vaxandi atvinnuleysi, samdrátt og háa verðbólgu,“ sagði Katrín. Staðan til að takast á við efnahagsástandið er í raun og veru góð að mati forsætisráðherra, sem benti á nýjustu verðbólgumælingu því til stuðnings. Verðbólga mælist nú 9,5 prósent en var komin yfir tíu prósent í febrúar. „Án þess að hrósa einhverju happi, ég held að það sé ekki tímabært en ég hef trú á því að verðbólgan fari niður og þetta sé skýrt merki um það,“ sagði forsætisráðherra.

Eins og forsætisráðherra annars lands

Sigmundur Davíð sagði Katrínu tala eins og hún væri forsætisráðherra einhvers allt annars lands. „Er engin von til þess að þessi ríkisstjórn átti sig á ástandinu og taki þátt í því að ná tökum á því? Ég er ekki einu sinni að biðja hana um að leiða það, bara að taka þátt og hætta að vera í einhverjum ímynduðum veruleika,“ sagði Sigmundur Davíð. 

„Ég er forsætisráðherra í landi þar sem hefur verið byggt upp; þar sem hefur verið byggt upp í heilbrigðiskerfinu og ráðist í fjárfestingar í því sem ekki var ráðist í í tíð fyrri ríkisstjórna,“ svaraði Katrín. 

„Hins vegar höfum við sagt að mögulega þurfi að beita meira aðhaldi á komandi árum til þess að ráða bug á verðbólgunni. Að halda því fram að ég geri lítið úr þeim vanda er auðvitað alrangt. Þetta er risastórt verkefni sem kallar auðvitað á samstillt átak allra, ekki bara ríkisstjórnarinnar þótt vissulega hafi hún hlutverki að gegna,“ bætti forsætisráðherra við. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ívarsson skrifaði
    Ég held að það þurfi eitthvað að breyta framsetningunni á verðbólgumælingum gagnvart almenningi. Nú er sagt að verðbólgan sé 9,47% og er þá átt við síðustu 12 mánuði. Ef vísitalan væri óbreytt í júni yrði sagt að verðbólgan væri 7,95% en verðtryggð lána samt verða óbreytt þann mánuðinn. Áttar fólk sig á því? Hækkun vísitölunnar milli apríl og maí er 0,39% og það mælir verðbólguhraðann sem 4,8% á ársgrundvelli. Þá er verið að tala um stöðuna í dag en ekki fyrir síðastliðið ár. Og þó svo að vísitalan breyttist ekkert á næstu mánuðum væri alltaf verið að segja frá einhverri verðbólgu sem ekki er að gerast í nútímanum. Og þó svo að vísitalan héldist óbreytt yrði það lítil bót fyrir láglaunafólkið vegna þess að verðlag er of hátt fyrir það í dag og væntanlega fáir sem reikna með einhverjum verðlækkunum að ráði. Ekkert annað en auknar tekjur getur bjargað þessu fólki.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Safnar fyrir útborgun í bílskúr foreldra sinna
2
Viðtal

Safn­ar fyr­ir út­borg­un í bíl­skúr for­eldra sinna

Hjálm­ar Snorri Jóns­son inn­rétt­aði í sum­ar bíl­skúr for­eldra sinna en hann býr í hon­um ásamt kær­ustu sinni. Hann seg­ir auð­veld­ara að geta safn­að fyr­ir íbúð þannig held­ur en að fara fyrst inn á leigu­mark­að­inn. „Það er svo­lít­ið hugs­un­in að í stað þess að vera á leigu­mark­aði get ég bara ver­ið hér og safn­að pen­ing­um,“ seg­ir Hjálm­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Safnar fyrir útborgun í bílskúr foreldra sinna
4
Viðtal

Safn­ar fyr­ir út­borg­un í bíl­skúr for­eldra sinna

Hjálm­ar Snorri Jóns­son inn­rétt­aði í sum­ar bíl­skúr for­eldra sinna en hann býr í hon­um ásamt kær­ustu sinni. Hann seg­ir auð­veld­ara að geta safn­að fyr­ir íbúð þannig held­ur en að fara fyrst inn á leigu­mark­að­inn. „Það er svo­lít­ið hugs­un­in að í stað þess að vera á leigu­mark­aði get ég bara ver­ið hér og safn­að pen­ing­um,“ seg­ir Hjálm­ar.
Brotthvarf að meðaltali hærra úr íslenskum háskólum en í OECD-ríkjum
5
Fréttir

Brott­hvarf að með­al­tali hærra úr ís­lensk­um há­skól­um en í OECD-ríkj­um

Nið­ur­stöð­ur nýrr­ar skýrslu OECD um há­skóla­mál sýna að brott­hvarf er hærra á Ís­landi en að með­al­tali í OECD-ríkj­um. Þá seg­ir að tryggja þurfi að ís­lensk­ir há­skól­ar standi jafn­fæt­is öðr­um OECD há­skól­um. „Þess­ar nið­ur­stöð­ur stað­festa að há­skóla­mál­in þurfa að njóta sér­stakr­ar at­hygli,“ seg­ir Logi Ein­ars­son menn­ing­ar-, ný­sköp­un­ar- og há­skóla­ráð­herra.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég er mjög stolt af því að hafa tekið þennan slag“
3
Fréttir

„Ég er mjög stolt af því að hafa tek­ið þenn­an slag“

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu komst í dag að þeirri nið­ur­stöðu að ís­lenska rík­ið hefði ekki brot­ið á Bryn­dísi Ásmunds­dótt­ur. Hún seg­ir skrít­ið að tala um tap þeg­ar Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu veitti henni áheyrn. Nú geti hún loks náð and­an­um. Mark­mið­um um að vekja máls á brota­löm­um í ís­lensku rétt­ar­kerfi hafi náðst, ekki síst þeg­ar sig­ur vannst í öðru mál­inu.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár