Kristrún í Póllandi For­sæt­is­ráð­herra hitti pólskan starfs­bróður sinn, Donald Tusk, í Varsjá í dag. Mynd: AFP

Kristrún segir þjóðaratkvæði um ESB verða „á næstu mánuðum“

For­sæt­is­ráð­herra Póllands segir að Evr­ópu­sam­bandið gæti þurft að breyt­ast til að aðlag­ast þörfum Íslands.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra stað­festi á blaða­manna­fundi í Varsjá í dag að Íslend­ingar myndu ganga til þjóð­ar­at­kvæðis um að hefja aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið „á næstu mán­uðum“.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að þjóð­ar­at­kvæðið fari fram í síð­asta lagi vorið 2027, en erlendir miðlar hafa greint frá því að hún fari fram fyrr, eða næsta haust.

„Við stefnum nú að því á næstu mán­uðum – hugs­an­lega, þar sem við höfum ekki tekið end­an­lega ákvörðun um dag­setn­ingu, en á næstu mán­uðum að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að hefja aðild­ar­við­ræður Íslands um hugs­an­lega inn­göngu í ESB,“ sagði hún í frá­sögn breska blaðs­ins The Guardian.

Ummælin féllu eftir fund með pólska for­sæt­is­ráð­herr­anum Donald Tusk, sem kemur í fram­hald­inu af ferð Kristrúnar til Úkraínu af til­efni þess að fjögur ár eru frá inn­rás Rússa í landið.

Hún bætti við að í tví­hliða við­ræðum sínum við Tusk hafi þau „rætt ítar­lega um mik­il­vægi þess að skilja að þetta snýst um að opna tæki­færi“ og að auka sam­þætt­ingu Íslands við ESB, um leið og „virð­ing fyrir íslenskri sjálfs­mynd innan Evrópu“ sé varð­veitt.

Hún sagði að það væri mik­il­vægt fyrir Ísland að sjá að sér­stök norð­ur­slóða­auð­kenni þess væru „tekin til greina“, sem og eigin „lífs­hætti eða hvernig við nýtum auð­lindir okkar“.

Tusk sagð­ist vera „yfir sig ánægður“ að sjá Ísland ganga í sam­bandið og vís­aði til reynslu Póllands sem sýni­dæmi um far­sæla evr­ópska sam­þætt­ingu.

Hann var einnig sam­mála Kristrúnu um mik­il­vægi þess að tryggja að ESB „sýni öllum löndum virð­ingu“ og „komi jafnt fram við stærri og smærri lönd“.

Tusk lýsti ánægju sinni með að Ísland gengi „í sam­fé­lag okkar, jafn­vel þótt það þyrfti að breyt­ast svo­lítið fyrir það, vera sveigj­an­legra, og ég væri til­bú­inn að vinna með Kristrúnu að þessu [þar sem] það er í okkar sam­eig­in­lega þágu,“ sagði hann.

Færði gjöfDonald Tusk færði Kristrúnu Frosta­dóttir Prins Póló að gjöf, sem hún sagði vera upp­á­haldssúkkulaði föður hennar.

Tusk vís­aði til reynsl­unnar af Brexit í Bret­landi sem rök­semda fyrir aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

„Besta sönn­unin fyrir því að það sé skyn­sam­legt að ræða aðlögun er kannski staðan í Bret­landi. Ef þú spyrð fólk ... um Brexit ... eru nýj­ustu kann­anir alveg skýrar um að 65% Breta myndu kjósa með ESB í dag; meira en 80% ungs fólks í Bret­landi eru hlynnt hugs­an­legri aðild að ESB. Ef þú hefur þessa reynslu af Brexit, veistu kannski miklu betur en aðrir að aðild að ESB er eitt­hvað mjög verð­mætt,“ sagði hann.

Kristrún sagði að rík­is­stjórn hennar myndi „hlusta á hvað sem íslenska þjóðin vill gera“, en þakk­aði honum fyrir ummæli hans þar sem hann við­ur­kenndi sér­stöðu Íslands.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    The saying goes that exceptions prove the rule! But if exceptions become the rule (e.g. as the UK permanently requested) the EU will fail amongst others because deeper integration becomes impossible! And, one should not confuse centralization with integration as does the present Commission!
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Þarna fáum við það úr innsta hring; það er um margt að semja.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ESB

EfnahagsmálHorft til Evrópu

Efna­hags­legur ávinn­ingur „blasir við“

Hver er kostn­að­ur­inn við Evr­ópu­sam­bandið og hvað myndum við fá til baka? Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í hag­fræði, fer yfir efna­hags­leg áhrif af mögu­legri aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Áætlað er að nettófram­lag Íslands gæti verið á bil­inu sex til 15 millj­arðar á ári, en pró­fess­or­inn telur efna­hags­legan ávinn­ing meiri en útgjöldin.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár