Fjármagnið liggur enn í „vösum karlmannanna“

Mitt í iðu menn­ingar og lista í Berlín er gall­erí sem ber nafn sem hljómar kunn­ug­lega í eyrum Íslend­inga – og er dem­antur fyrir list­unn­endur sem eiga þar leið um. Nú stendur þar yfir sýn­ing Guðnýjar Guð­munds­dóttur en nafna hennar er einmitt eig­andi gall­er­ís­ins, hún Guðný Þóra Guð­munds­dóttir. Heim­ildin hitti þær nöfnur á fal­legum vor­degi í Berlín, meðal ann­ars til að spjalla um mynd­list­ina og hvernig það er að vera kona í þeim karllæga heimi.

Fjármagnið liggur enn í „vösum karlmannanna“
Guðný Þóra og Guðný hafa báðar búið í Berlín um ára­bil og verið í menn­ing­ar­sen­unni þar í borg. Þær segja að list­heim­ur­inn sé enn mjög karllægur – þar sem og hér á landi. Mynd: Bára Huld Beck

Gallery Gud­munds­dottir er til húsa við Joachimstrasse, svo að segja í miðri Berlín, og vekur gjarnan for­vitni veg­far­enda. Í gall­er­í­inu eru nýjar sýn­ingar að jafn­aði á sex vikna fresti, oft­ast eftir íslenska lista­menn. 

Eins og nafnið gefur til kynna er eig­and­inn íslenskur og svo vill til að sá mynd­list­ar­maður sem nú er með sýn­ingu í gall­er­í­inu er einmitt einnig Guð­munds­dóttir. Í sam­tali við Heim­ild­ina greina þær nöfnur, Guðný Þóra og Guðný, frá því að hún hafi verið með opn­un­ar­sýn­ing­una fyrir tæpum þremur árum þegar Gallery Gud­munds­dottir hóf göngu sína í júlí 2020 – í miðjum Covid-far­aldri. 

Eigandi gall­er­ís­ins, Guðný Þóra Guð­munds­dóttir, er mennt­aður fiðlu­leik­ari og tón­list­ar­fræð­ingur. Hún hefur búið til fjölda ára í Berlín og seg­ist lengi hafa haft áhuga á og unnið með mynd­list. Hún segir að margir þættir þurfi að ganga upp til þess að fólk nái árangri í list­heim­inum. Byggja þurfi upp sterkt tengsla­net ef þetta eigi …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár