Alls 1.291 íbúð í eigu einstaklinga sem eiga fimm íbúðir eða fleiri

Rúmlega fimmtungur allra íbúða í landinu er í eigu lögaðila og rúmlega fjórðungur þeirra íbúða sem einstak­lingar eru skráðir fyrir eru í eigu slíkra sem eiga tvær eða fleiri íbúðir.

Fyrirspyrjandi
Fyr­ir­spyrj­andi Hanna Katrín Frið­riks­son spurði inn­við­a­ráð­herra um íbúð­ar­hús­næði í eigu ein­stak­linga og lög­að­ila. Mynd: Bára Huld Beck

Alls eru 33.479 íbúðir á Íslandi í eigu einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð. Það eru 26,5 prósent allra íbúa einstaklinga í landinu, en þær eru 126.338 talsins. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar innviða­ráðherra við fyrir­spurn Hönnu Katrínar Friðriksson, þingmanns Viðreisnar, um málið sem birt var á vef Alþingis í dag.

Langflestir þeirra sem eiga íbúð umfram þá sem þeir búa í eiga tvær íbúðir, en 22.769 íbúðir eru í eigu þeirra sem þannig háttar um. Alls 7.291 íbúðir eru í eigu einstaklinga sem eiga þrjár íbúðir, 2.128 íbúðir í eigu þeirra sem eiga fjórar og 1.291 íbúð í eigu þeirra sem eiga fimm eða fleiri. Séu eigendur fleiri en einn er íbúðin flokkuð eftir þeim eiganda sem á flestar íbúðir á landinu í svarinu, með þeim fyrirvara að ef íbúð er bæði í eigu einstaklings og lögaðila telst hún eign lögaðila.

Hanna Katrín spurði Sigurð Inga einnig að því hversu margar íbúðir væru alls í eigu lögaðila, og þar með ekki í eigu einstaklinga líka og hefð­bundið er með heimili. Í svari hans kom fram að alls 26.074 íbúðir eru í slíkri eigu, eða 20,6 prósent allra íbúða á landinu.

Allar líkur standa til þess að þorri þeirra íbúða sem eru í eigu einstaklinga eða lögaðila séu í einhverskonar útleigu, og myndi þar með tekjur fyrir viðkomandi eiganda. Þær eru því fjár­festingar­eign, ekki heimili. Leigan getur til að mynda verið til lengri tíma til íbúa hérlendis eða skamm­tímaleiga til ferða­manna sem dvelja hér í nokkra daga eða vikur. Þá fer leigan oftar en ekki fram í gegnum Airbnb eða sambærilega vettvanga.

2.618 íbúðir í eigu þeirra sem eiga þrjár eða fleiri

Í annarri fyrir­spurn sem einnig barst svar við í dag spurði Hanna Katrín sama ráðherra um íbúðar­húsnæði í Reykjavík. Í svari Sigurðar Inga kom fram að 45.704 fullbúnar íbúðir í eigu einstaklinga eru í höfuð­borginni. Þar af eru 9.060 í eigu slíkra sem eiga fleiri en eina íbúð, eða fimmta hver eign. Af þeim eru 2.618 íbúðir í eigu einstaklinga sem eiga fleiri þrjár eða fleiri íbúðir. 

Auk þess eru 11.498 íbúðir í eigu lögaðila. Langflestar þeirra, eða 9.966 íbúðir, eru í eigu slíkra aðila sem eiga að minnsta kosti þrjár íbúðir. Það þýðir að 87 prósent allra íbúða sem eru í eigu lögaðila í Reykjavík tilheyra slíkum sem eiga að minnsta kosti þrjár íbúðir. 

101 stendur upp úr

Svar Sigurðar Inga um íbúðir í Reykjavík er skipt niður á póstnúmer. Þar kemur í ljós að lang­algengast er að einstaklingar eigi þrjár eða fleiri íbúðir í póst­númeri 101. Þar eru 743 íbúðir í eigu einstaklinga sem þannig háttar um, eða 28,8 prósent allra íbúða eigu einstaklinga sem eiga þrjár eða fleiri eignir. Til að setja það hlutfall í samhengi þá eru íbúðir í eigu einstaklinga í þessu póst­númeri, í miðbænum, alls 13,4 prósent allra íbúða sem eru í slíkri eigu í höfuð­borginni. Alls eru 12,2 prósent allra íbúða í þannig eignar­haldi í póst­númeri 101 í eigu einstaklinga sem eiga þrjár eða fleiri íbúðir.

Þegar kemur að íbúðar­eignum lögaðila sem eiga þrjár eða fleiri eignir þá eru þær flestar í póst­númeri 105, eða 1.548 talsins. Póstnúmer 101 kemur þó fast á hæla þess með 1.330 eignir í slíku eignar­haldi.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Ímynduð ykkur svo hve margar af þessum íbúðum eru leigðar svart!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár