„Frá því að ég var krakki ætlaði ég að verða forsætisráðherra“

Arndís Anna Kristínar­dóttir Gunnars­dóttir segir að allir hafi búist við að hún myndi verða pólitíkus. Það hafi komið meira á óvart að Helgi Hrafn bróðir hennar hafi endað þar. Bæði séu þau alin upp við gagnrýna hugsun og mikla pólitíska umræðu.

Hraktist úr ungliðapólitík
Hraktist úr ung­liða­póli­tík Arndís Anna segir að hún hafi hætt þátt­töku í stjórn­málum eftir að hafa verið í stúd­entapóli­tík. Hennar þátt­taka þar hafi vakið upp furðu­lega flokka­drætti sem bæði hafi komið henni á óvart en jafn­framt opna augu hennar. Mynd: Bára Huld Beck

Þriðjungur sitjandi alþingis­manna eru annað hvort náskyldir eða mægðir fólki sem setið hefur á þingi, ýmist sem aðal- eða varamenn. Þá er enn fleiri þingmenn tengdir fólki sem hefur stýrt sveitar­félögum eða leitt framboð í sveitar­stjórnar­kosningum.

Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmála­fræði­prófessor hefur rannsakað elítur og valda­kerfi í íslensku samfélagi og meðal annars kannaði hann ættar­tengsl íslenskra þingmanna á árabilinu 1990 til 2020. Hans niður­staða er að um þriðjungur þingmanna hafi á þessu tímabili haft ættar­tengsl við fyrr­verandi þingmenn.

„Íslenska kerfið hefur viss einkenni sem ættu að ýta undir ættar­tengsl, og þau koma vissulega fyrir hér, en ég myndi ekki halda að þau væru megin áhrifa­þáttur á frama­brautir í stjórn­málum hér á landi,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að svipuð mynstur megi greina í öðrum starfs­greinum eða þjóð­félagshópum, innan íþrótta­hreyfingarinnar eða í listalífi til að mynda.

Þeir þingmenn sem Heimildin ræddi við í samhengi við úttekt á ættar­tengslum töluðu flestir á svipuðum nótum og Gunnar Helgi. Það er að segja, að ættar­tengsl þeirra kannski ekki ráðið úrslitum um að þeir hafi lagt fyrir sig pólitík. Það hafi frekar verið að virk umræða um stjórnmál og samfélagsmál sem fram hafi farið inni á heimilinum hafi þar haft meira að segja.

Mamma í algjöru aðalhlutverki

Arndís Anna Kristínar­dóttir Gunnars­dóttir, þingmaður Pírata, er systir Helga Hrafns Gunnarsson, fyrr­verandi þingmanns sama flokks. Foreldrar hennar eru Kristín Erna Arnar­dóttir, kvikmynda­gerðarkona, og Gunnar Smári Helgason, hljóð­maður. Arndís Anna er lögfræðingur að mennt frá Belgíu. Hún starfaði sem lögfræðingur, meðal annars á Barna­verndar­stofu, hjá Rauða krossinum og í inna­ríkis­ráðuneytinu áður en hún var kjörin á þing í kosningunum 2021. Arndís Anna sat í framkvæmda­stjórn ungliða­hreyfingar Samfylkingarinnar árin 2004 til 2005 og sat í Stúdenta­ráði HÍ árin 2005 til 2007.

„Við systk­inin bæði erum alin upp við mjög gagn­rýna hugsun og mikla póli­tíska umræðu“

Spurð hvort það hafi haft áhrif á að hún ákvað að gefa kost á sér til setu á Alþingi að Helgi Hrafn bróðir hennar hefði setið á þingi segir Arndís Anna það ágæta spurningu. „Það var þannig að ég var alltaf í pólitík en Helgi var í tónlist, og það bjuggust allir við að ég yrði pólitíkus en hann tónlistar­maður. Sama ár og hann fór á þing spilaði ég hins vegar á Airvawes. En sko, alveg frá því að ég var krakki ætlaði ég að verða forsætis­ráðherra. Við systkinin bæði erum alin upp við mjög gagnrýna hugsun og mikla pólitíska umræðu á heimilinu, og þar er mamma í algjöru aðal­hlutverki. Hún er mjög pólitísk, þó hún hafi aldrei sinnt kjörinni stöðu. Hún hefur verið virk í Samfylkingunni en byrjaði í Þjóðvaka á sínum tíma,“ segir Arndís og bætir við að faðir hennar hafi hins vegar aldrei tekið þátt í pólitísku starfi né viðrað sínar pólitísku skoðanir mikið.

Var útskúfað úr Ungum jafnaðarmönnum

Uppeldið hafi skilað sér í því að hún og Helgi Hrafn bróðir hennar hafi gríðar­mikla réttlætis­kennd, segir Arndís Anna. Hún segist jafnframt halda að enginn hafi átt von á að bróðir hennar færi að skipta sér af pólitík. „Hann var ekki í neinu pólitísku starfi fyrr en Píratar komu til. Þá sá hann hreyfingu sem hann gat samsamað sig við. Ég held að þetta snúist ekki bara um málefni heldur líka um hvernig fólk finnur sig í hlut­verkinu. Ég held að Píratar séu að mörgu leyti óhefðbundnir pólitíkusar, þetta er upp til hópa fólk sem sá ekki fyrir sér að taka þátt í pólitík vegna þess að það samsamaði sig ekki því fólki sem fyrir var í pólitík, ekki vegna þess að það hefði ekki skoðanir eða hugsjónir.“

„Ég fann að ég vildi taka þátt vegna þess að ég brann fyrir ákveðnum málum“

Í þessu ljósi megi segja að það sé í raun stílbrot að Arndís Anna skuli hafi farið í framboð fyrir Pírata, sökum þess að hún falli í raun að almennum hugmyndum fólks um stjórn­málamenn. „Ég er lögfræði­menntuð og hef skipt mér af pólitík í gegnum tíðina. Ég hins vegar hætti á sínum tíma eftir að hafa verið í stúdenta­pólitík vegna þess að mér fannst þetta allt bara snúast um flokka­drætti en ekki það sem það átti að snúast um. Þannig að ég hrökklast út úr pólitík á sínum tíma af sömu ástæðum og Helgi tók ekki þátt, þrátt fyrir að ég hafi alltaf getað samsamað mig eða speglað mig í hinum og þessum pólitíkusum vegna þess að minn prófíll er í 100 prósent takti við þá alla. Þegar ég lét mér detta í hug síðan að fara aftur út í pólitík vissi ég ekki hvaða flokk ég myndi velja. Ég fann að ég vildi taka þátt vegna þess að ég brann fyrir ákveðnum málum. Þá settist ég niður og leitaði að því stjórnmála­afli sem ég gat unnið með. Sem reyndust vera Píratar.“

Arndís sat sem fyrr segir í Stúdenta­ráði fyrir Háskóla­listann á árunum 2005 til 2007 og sat í framkvæmda­stjórn Ungra jafnaðar­manna þegar hún ákvað að gefa kost á sér í háskóla­pólitíkinni. Háskóla­listinn var uppbrots­framboð, braut upp kerfi sem hafði áður verið einokað af Röskvu, framboði vinstri manna, og Vöku, framboði hægri manna, í Háskólanum um árabil. Það átti eftir að draga dilk á eftir sér fyrir Arndísi. „Það var í fyrsta skipti sem ég fann hvernig pólitíkin virkar, mér var útskúfað úr Ungum jafnaðar­mönnum út af því framboði. Það voru átök sem komu mér algjör­lega í opna skjöldu, ég var svo einföld á þessum tíma. Það rofnaði traust til mín innan stjórnarinnar. Það kom mér mjög á óvart en opnaði augu mín á sama tíma.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Sjá meira

ÚttektErfðavöldin á Alþingi

Þing­mennska reynist nátengd ætterni

Af núverandi alþingis­mönnum er þriðjungur tengdur nánum fjöl­skyldu­böndum við fólk sem áður hefur setið á Alþingi. Fimm þingmenn eiga feður sem sátu á Alþingi og fjórir þingmenn eiga afa eða ömmu sem einnig voru alþingis­menn. Þessu til viðbótar eru tólf þingmenn nátengdir fólki sem hefur verið virkt í sveitar­stjórnum eða hefur verið áhrifa­fólk í stjórn­málaflokkum.

50 mín. lestur

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Erfðavöldin á Alþingi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár