Þessi grein birtist fyrir meira en 2 árum.

1120. spurningaþraut: Hér eru 10 og þó 12 spurningar um hvaðeina norskt

1120. spurningaþraut: Hér eru 10 og þó 12 spurningar um hvaðeina norskt

Þessi þema þraut snýst um Noreg. Og fyrri aukaspurningin er þessi:

Hvað heitir norska konan sem sjá má á myndinni hér að ofan?

***

Aðalspurningar:

1.  Hver vann Eurovision-keppnina með yfirburðum fyrir Norðmenn árið 2009?

2.  Í íshafinu nokkurn veginn milli Norður-Noregs og Svalbarða er svolítil eyja sem Norðmenn hafa ráðið yfir frá 1920. Byggð er þar engin þótt vísindamenn hafist þar stundum við stund og stund. Eyjan er kennd við ákveðið dýr. Hvað heitir hún?

3.  Á árunum 1965-1985 var ein frægasta kvikmyndaleikkona heims norsk. Hún lék í allskonar myndum og sjónvarpsþáttum — þar á meðal um hina sænsku Vesturfara — en var þekktust fyrir hlutverk sín í myndum hins svipmikla sænska leikstjóra Ingmars Bergmans. Þau áttu reyndar í sambandi lengi vel og eignuðust dóttur saman Leikkonan hefur á seinni árum leikstýrt myndum með góðum árangri. Hvað heitir hún?

4.  Hver er óhætt að segja að sé frægasti málari Norðmanna fyrr og síðar?

5.  En frægasta tónskáld þeirra?

6.  Þrír Norðmenn hafa fengið Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Einn var skáldsagnahöfundur sem skrifaði um Gróður jarðar, annar var karl sem skrifaði aðallega leikrit, hinn þriðji kona sem skrifaði mikinn bálk miðaldasagna um Kristínu Lavrantsdóttur. Hvað hétu þessir Nóbelshöfundar þrír? Þið fáið stig fyrir tvö rétt nöfn, en Holmenkollen-stig fyrir öll þrjú.

7.  Sennilega var allra vinsælasti rithöfundur Norðmanna á 20. öld önnur sem líka skrifaði bálk sagna frá miðöldum. Sú kona var aldrei nefnd í tengslum við Nóbelsverðlaun en aðdáendur hennar létu sér það í léttu rúmi liggja. Hvað nefndist sagnabálkurinn hennar? 

8.  Í byrjun desember á hverju einasta ári beinist nokkur athygli ævinlega að Noregi, eða öllu heldur Osló, þegar þar fer fram ákveðin athöfn. Gestir koma þá jafnan til borgarinnar og haldin er veisla, en fáeinir gestanna eru reyndar stundum nokkuð umdeildir í augum sumra. Hver er að gerast?

9.  Hversu margir eru Norðmenn nokkurn veginn? Eru þeir 1,5 milljón — 3,5 milljónir — 5,5 milljónir — 7,5 milljónir — eða 9,5 milljónir?

10.  Hvað heitir forsætisráðherra Noregs?

***

Seinni aukaspurning:

Hvað er þetta?

***

Svör við aðalspurningum:

1.  Alexander Rybak.

2.  Bjarnarey.

3.  Liv Ullmann.

4.  Munch.

5.  Grieg.

6.  Knut Hamsun, Björnsterne Björnsson og Sigrid Undset.

7.  Ísfólkið.

8.  Afhending friðarverðlauna Nóbels.

9.  Norðmenn eru um 5,5 milljónir.

10.  Jonas Gahr Støre. Þið ráðið hversu nákvæmt þið teljið nafnið þurfa að vera!

***

Svör við aukaspurningum:

Á efri myndinni er Mette-Marit krónprinsessa Norðmanna.

Á neðri myndinni er sjálfur Sognfjörður.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Ég sprautaði mig í fyrsta skipti í meðferð“
3
ÚttektTýndu strákarnir

„Ég spraut­aði mig í fyrsta skipti í með­ferð“

Gabrí­el Máni Jóns­son upp­lifði sig alla tíð utangarðs. Hann féll ekki inn í hefð­bund­inn ramma skóla­kerf­is­ins og var snemma tek­inn út úr hópn­um. Djúp­stæð van­líð­an braust út í reiði og hann deyfði sára höfn­un með efn­um. Þar til hann fékk nóg og náði bata. „Ég gat ekki sætt mig við að vera gæ­inn sem ég hafði fyr­ir­lit­ið og hat­að frá barnæsku.“
„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“
6
ÚttektTýndu strákarnir

„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“

„Mér voru gef­in erf­ið spil og þeg­ar þú kannt ekki leik­inn er flók­ið að spila vel úr þeim,“ seg­ir Arn­ar Smári Lárus­son, sem glímdi við al­var­leg­ar af­leið­ing­ar áfalla og reyndi all­ar leið­ir til þess að deyfa sárs­auk­ann, þar til það var ekki aft­ur snú­ið. „Ég var veik­ur, brot­inn og fannst ég ekki verð­skulda ást.“ Hann árétt­ar mik­il­vægi þess að gef­ast aldrei upp. „Það er alltaf von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Týndu strákarnir – sem fundu leiðina heim
2
Úttekt

Týndu strák­arn­ir – sem fundu leið­ina heim

Á átján ára af­mæl­is­dag­inn vakn­aði Fann­ar Freyr Har­alds­son á neyð­ar­vist­un og fékk lang­þráð frelsi eft­ir að hafa þvælst í gegn­um með­ferð­ar­kerfi rík­is­ins. Hann, Gabrí­el Máni Jóns­son og Arn­ar Smári Lárus­son lýsa reynslu sinni af kerf­inu sem átti að grípa þá sem börn og ung­ling­ar. Tveir þeirra byrj­uðu að sprauta sig í með­ferð, samt sam­mæl­ast þeir um að þessi inn­grip séu lík­leg­asta ástæð­an fyr­ir því að þeir lifðu af. Ekk­ert lang­tíma­úr­ræði er fyr­ir stráka sem stend­ur.
„Eiginmaður minn hefur aldrei átt eignarhlut í Skeljungi“
3
Stjórnmál

„Eig­in­mað­ur minn hef­ur aldrei átt eign­ar­hlut í Skelj­ungi“

Hild­ur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, fjall­aði ít­rek­að um samn­inga sem vörð­uðu lóð­ir bens­ín­stöðva þrátt fyr­ir að eig­in­mað­ur henn­ar stýrði móð­ur­fé­lagi Skelj­ungs. Lóð­ir bens­ín­stöðva Skelj­ungs hafa síð­an ver­ið seld­ar til tengdra fé­laga fyr­ir vel á ann­an millj­arð króna. Hún seg­ir hæfi sitt aldrei hafa kom­ið til álita.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár