Samfylking mælist sjö prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkur í nýrri könnun

Ný könnun Maskínu sýnir tölfræði­lega marktækan mun á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðis­flokks. Bæði Píratar og Viðreisn mælast stærri en Framsókn, sem dalar allra flokka mest á milli mánaða.

Samfylkingin
Sam­fylk­ingin Kristrún Frosta­dóttir er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Baldur Kristjánsson

Fylgi Samfylkingarinnar mælist 25,7 prósent í nýrri skoðana­könnun frá Maskínu, en fylgi Sjálfstæðis­flokksins einungis 18,7 prósent. Það mælist því tæplega sjö prósentu­stiga munur á fylgi flokkanna tveggja og er munurinn nú tölfræði­lega marktækur.

Könnun MaskínuVinstri græn eru sá flokkur sem bætir mestu við sig í könnun Maskínu, eða rúmum tveimur pró­sentu­stigum.

Það hafði munurinn ekki verið í þeim þremur könnunum Maskínu undan­farna þrjá mánuði sem mældu Samfylkinguna stærri en Sjálfstæðis­flokk. Fylgi Samfylkingar eykst um 1,3 prósentu­stig á milli mánaða en fylgi Sjálfstæðis­flokksins dalar um 1,5 prósentu­stig.

Í kjölfar Samfylkingar og Sjálfstæðis­flokks koma Píratar, Viðreisn og Framsókn með svipað mikið mælt fylgi. Píratar mælast með 11,4 prósent sem er aukning um rúmt prósentu­stig frá því í mars, Viðreisn mælist með 10,6 prósent sem er aukning um nærri tvö prósentu­stig frá síðustu könnun Maskínu, en á sama tíma dalar fylgi Framsóknar­flokksins um rúm 3 prósent frá fyrri mánuði. Flokkurinn mælist nú með 10,2 prósent fylgi, sem er ríflega sjö prósentu­stigum minna en flokkurinn fékk í kosningum 2021.

Stuðningur við ríkisstjórnarflokkana dalar

Vinstri græn eru eini stjórnar­flokkurinn sem hressist á milli mælinga Maskína, en fylgi við flokkinn mælist 8,2 prósent, sem er 2,2 prósentu­stigum meira en í mars­mánuði.

Það breytir því þó ekki að fylgið við ríkis­stjórnar­flokkana þrjá í heild mælist slétt 37 prósent, sem er rúmum tveimur prósentu­stigum minna en í mars og það minnsta sem ríkis­stjórnar­flokkarnir hafa samanlagt mælst með á kjör­tímabilinu. 

Flokkarnir þrír sem sitja í ríkis­stjórn fengu alls 54,4 prósent atkvæða er kosið var til þings í september 2021.

Fylgi Miðflokksins mælist 6 prósent, Sósíalista­flokksins 4,9 prósent og fylgi Flokks fólksins 4,4 prósent í þessari könnun Maskínu, sem framkvæmd var dagana 13. til 19. apríl. Alls tóku 852 svarendur afstöðu til flokks.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sævar Helgason skrifaði
    Ef hugsað er 30 ár aftur í tímann-þegar R-listinn yfirtók stjórn Reykjavíkur og hefur veitt Borginni forystu síðan-þá eru bæði efnislega og stjórnmálalega líkindin til að sömu öfl yfirtaki stjórnun landsmálanna-núna. Er stöðugt stjórnarfar í farvatninu á Íslandi til næstu 30 ára ? Sennilega.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Fari fram sem horfir stefnir í að Samfó, Píratar og Viðreisn geti myndað meirihlutastjórn. Og 6-9% atkvæða geti fallið dauð. Athyglisverð þróun.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Ríkisstjórnin er í ruslflokki.
    Og býður förgunar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár