Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

„Ótímabært“ að fjalla um áætlaðan heildarkostnað höfuðstöðvanna

Stjórn­end­ur Lands­bank­ans vilja ekki gefa upp hver sé áætl­að­ur heild­ar­kostn­að­ur við bygg­ingu nýju höf­uð­stöðv­anna í mið­bæ Reykja­vík­ur. Það er þó ljóst að hann verð­ur meiri en 11,8 millj­arð­ar, líkt og ráð var fyr­ir gert ár­ið 2019.

„Ótímabært“ að fjalla um áætlaðan heildarkostnað höfuðstöðvanna
Náttúrulegt Hönnuðir nýrra höfuðstöðva Landsbankans, C.F. Møller og Arkþing Nordic, sóttu innblástur í fjölbreytileika íslensks klettalandslags með sínum gjótum og gjám, láréttum lögum og lóðréttum. Hundruð tonna af stuðlabergi klæða bygginguna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórnendur Landsbankans vilja ekki gefa upp hver sé nú áætlaður heildarkostnaður við byggingu nýju höfuðstöðvanna í miðbæ Reykjavíkur. Það er þó ljóst að hann verður meiri en 11,8 milljarðar, líkt og ráð var fyrir gert árið 2019.

„Við teljum ótímabært að fjalla um áætlaðan heildarkostnað, þar sem enn á eftir að semja um tiltekin atriði sem geta haft áhrif til hækkunar eða lækkunar,“ segir Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans, um hvað nýjar höfuðstöðvar ríkisbankans í miðborginni muni kosta. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bankinn telur umfjöllun um kostnaðinn ótímabæra. Nákvæmlega sömu svör fengust við fyrirspurn Kjarnans í fyrra.

Síðast fengust kostnaðaráætlanir upp gefnar í árslok 2019 eða fyrir vel yfir þremur árum. Þá var gert ráð fyrir að kostnaðurinn yrði 11,8 milljarðar króna, án verðbóta. „Frá því þessi áætlun var gerð hefur byggingarvísitala hækkað um 24,5 prósent,“ útskýrir Rúnar í skriflegu svari sínu við fyrirspurn Heimildarinnar. „Þá hefur fallið …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár