Kenning um spillingu Kristjáns Þórs í makrílmáli sett fram í Hæstarétti

Félag mak­ríl­veiði­manna hefur staðið í dóms­máli við íslenska ríkið sem byggir á að því hafi verið mis­munað við kvóta­setn­ingu mak­ríls árið 2019. Samkvæmt mála­til­bún­aði félags­ins gerði ríkið bak­samn­ing við nokkrar stórar útgerðir um að þær fengju meiri mak­ríl­kvóta þegar hann var kvóta­settur 2019 gegn því að sleppa því að fara í mál við ríkið vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018.

Kenning um spillingu Kristjáns Þórs í makrílmáli sett fram í Hæstarétti
Fjöl­þættir flokkspóli­tískir hags­munir Félag mak­ríl­veiði­manna telur að fjöl­þættir flokkspóli­tískir hags­munir hafi verið fyrir því að koma í veg fyrir skaða­bóta­mál nokk­urra útgerða gegn rík­inu út af úthlutun mak­ríl­kvóta. Kristján Þór Júl­í­us­son var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra á árunum 2017 til 2021 og lagði fram frum­varp um kvóta­setn­ingu mak­ríls. Mynd: Bára Huld Beck

Fyrir Hæsta­rétti Íslands hefur verið rekið dóms­mál sem byggir á því að rík­is­stjórnin hafi gert bak­sam­komu­lag við nokkrar útgerðir um að afhenda þeim meiri mak­ríl­kvóta gegn því að þær slepptu því að fara í skaða­bóta­mál við íslenska ríkið út af úthlutun á mak­ríl­kvótum á árunum 2011 til 2018.

Málið er höfðað af Félagi mak­ríl­veiði­manna sem telja sig hafa verið hlunn­farna í kvóta­út­hlut­un­inni á mak­ríl árið 2019. Félagið telur að stórar útgerðir eins og Ísfélag Vest­manna­eyja, Eskja og Skinney-Þinganes hafi hagn­ast ótil­hlýði­lega á kvóta­setn­ingu mak­ríls á kostnað þess. Stefndi er íslenska ríkið. 

Orðrétt segir í grein­ar­gerð­inni í mál­inu um for­sendur Félags mak­ríl­veiði­manna: „Áfrýj­andi telur að í mál­inu hafi komið fram að það hafi verið ætlan ráð­herra með til­lögu­gerð sinni, sem var veru­lega íviln­andi fyrir stærstu upp­sjáv­ar­veiði­skipin, að útgerðir þess­ara skipa settu ekki fram kröfur á hendur íslenska rík­inu vegna …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Mjög ruglandi framsetning. Er málunum ekki lokið og hvað er þá verið að draga fyrrum þingmenn og ráðherra inn í þessa umfjöllun? Svo hefði mátt fylgja útlistun á hverjir það eru sem standa að ,,Félagi makrílveiðimanna". Man ekki til þess að hafa lesið um þetta félag áður.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Makríldómsmál

Kaupfélagið fékk makrílkvóta vegna reglugerðar Jóns og á útgerð sem krefst skaðabóta út af sömu reglugerð
FréttirMakríldómsmál

Kaup­fé­lagið fékk mak­ríl­kvóta vegna reglu­gerðar Jóns og á útgerð sem krefst skaða­bóta út af sömu reglu­gerð

Útgerð­ar­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Sauð­ár­króki, FISK Seafood, er annar stærsti hlut­hafi Vinnslu­stöðv­airnnar sem vill skaða­bætur frá íslenska rík­inu út af úthlutun á mak­ríl­kvótum 2011 til 2018. Útgerð­ar­fé­lag Kaup­fé­lags­ins hóf sjálft mak­ríl­veiðar á grund­velli reglu­gerð­anna sem Vinnslu­stöðin vill fá skaða­bætur út af.
Huginn hyggst sækja bætur þó fimm útgerðir hafi hætt við: „Minn hugur er að klára þetta“
FréttirMakríldómsmál

Huginn hyggst sækja bætur þó fimm útgerðir hafi hætt við: „Minn hugur er að klára þetta“

Páll Þór Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Hugins ehf. í Eyjum, segir að hans skoðun í dag sé að útgerðin sæki áfram skaða­bætur til rík­is­ins í mak­ríl­mál­inu. Hæsti­réttur kvað upp dóm í árs­lok 2018 þess efnis að Huginn hefði orðið fyrir fjár­tjóni við úthlutun á mak­ríl 2011 til 2018. 5 af 7 útgerðum hafa hætt við skaða­bóta­málin en Huginn og Vinnslu­stöðin ráða ráðum sínum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár