Landsfundardrög Vinstri grænna boða róttækan viðsnúning frá stefnu ríkisstjórnarinnar

Fyrir lands­fundi Vinstri grænna, sem hefst eftir viku, liggja drög að stefnu og álykt­unum sem afstaða verður tekin til á fund­inum. Á meðal þess sem þar er lagt fram er að inn­leiða eigi auð­legð­ar­skatt, banna aflands­fé­lög í skatta­skjólum, breyta stjórn­ar­skrá og skýr afstaða til þess hverjir eigi að fá að virkja vind­orku og á hvaða for­sendum.

Landsfundardrög Vinstri grænna boða róttækan viðsnúning frá stefnu ríkisstjórnarinnar
For­sæt­is­ráð­herra Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur hitt­ist eftir viku á Akureyri og mótar póli­tíska stefnu sína til næstu ára. Mynd: Eyþór Árnason

Vinstri græn hafa verið í rík­is­stjórn frá því síðla árs 2017 og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður flokks­ins, verið for­sæt­is­ráð­herra allan þann tíma, eða í næstum fimm og hálft ár. Rík­is­stjórnin mælist nú með minni stuðn­ing meðal almenn­ings en hún hefur nokkru sinni mælst með, ein­ungis 42 pró­sent aðspurðra segj­ast styðja hana í nýjasta Þjóð­ar­púlsi Gallup. Vinstri græn hafa mælst með 6,8 pró­sent fylgi í þrjá mán­uði í röð, en það er minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum Gallup, sem ná aftur til árs­ins 2004. Fylgið er rúm­lega tíu pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2017 og tæp­lega sex pró­sentum minna en hann fékk upp úr kjör­köss­unum haustið 2021. 

Forysta Vinstri grænna hefur verið gagn­rýnd, jafnt innan flokks sem utan, fyrir að gefa of mik­inn afslátt á helstu stefnu­málum sínum til að kom­ast að völdum. Eftir viku fer fram lands­fundur flokks­ins þar sem línur …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Það blasir við að VG er ekki viðreisnarvon með Katrínu í forystu vegna þjónkunar hennar víð auðjöfra. Nú er svo komið hjá okkur sem erum ein af ríkari þjóðum heims að það er allt komið að niðrulotum. Heilbrigðis- skóla- og vegakerfi eru ónýt. Semnæst allt sem endar á kerfi er ónýtt. Einu úrræðin eru að hækka álögur á þá sem síst skildi og leyfa þeim sem verst hafa það að éta það sem úti frýs. En svo má líka nefna að VG var bara stofnað afþví Sreingrímur Joð tapaði formannskosningu í Samfylkingunni. Þar af leiðandi hefur þessi flokkur ekkert hlutverk lengur og eðlilegast að leggja hann niður.
    0
  • Sandra Guðmundsdóttir skrifaði
    Auðvitað. Þessi blekking sem frjáls viðskipti eru er búið að koma peningum og aflandskrónum framhjá skattakerfinu og núna á að loka á alla þá sem ekki eru komnir í samvinnu með ríkinu..
    Fylla svo allar "sérfræðinga stöður" til þess að geta haldið áfram að brjóta á íslenskum ríkisborgurum án þess að nokkur skilji hver glæpurinn sé

    Samtök atvinnulífsins eru hryðjuverkasamtök
    1
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Ef einhvar alvara er á bak við þetta þýðir það stjórnarslit. En ætli Katrín gefi ekki eftir gagnvart Bjarna eins og hingað til?
    2
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Manni verður óglatt að lesa svona lygar frá vg og hún kata er útbrunnin og samfylkingin er eitthvað sem bb bíður spenntur eftir kristrun á ekki eftir að standa eins lengi og kata hið mikkli SVIKAR.
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Brandari aldarinnar! Hvað gerir ekki fólk sem komið hefur sjálfu sér í snöruna! Jú, í örvæntingu lofar það öllum fjandanum! Er Katrínu ekki sjálfrátt! Maður spyr sig.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár