Flýja íslenska tæknifrjóvgunar-„færibandið“ til að reyna að verða þungaðar

Að glíma við ófrjó­semi getur verið gríð­ar­lega erfitt og krefj­andi og segja margir sem gengið hafa í gegnum tækni­frjóvgun að ferlið sé lýj­andi og kostn­að­ar­samt. Skjól­stæð­ingar eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi, Livio, gagn­rýna þjón­ustu og verð­lag þess harð­lega og rekja raunir sínar í sam­tali við Heim­ild­ina. „Þetta er svo mikil færi­banda­vinna hjá þeim. Svo fer maður annað og fær allt aðrar nið­ur­stöður. Ég vildi óska þess að við hefðum farið út fyrr,“ segir kona ein sem tekið hefur þá ákvörðun að leita eftir þjón­ustu erlendis eftir slæma reynslu hjá Livio.

Flýja íslenska tæknifrjóvgunar-„færibandið“ til að reyna að verða þungaðar

Á Íslandi er ein­ungis eitt fyr­ir­tæki, Livio Reykja­vík ehf., sem býður fólki sem glímir við ófrjó­semi upp á þjón­ustu á borð við glasa­frjóvg­anir. Ekki segja allir þó farir sínar sléttar eftir að hafa leitað til fyr­ir­tæk­is­ins og gagn­rýna við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar hátt verð og óein­stak­lings­bundna þjón­ustu. Segja þeir meðal ann­ars að ekki sé hlustað á fólk sem leitar til Livio og að upp­lýs­inga­gjöf­inni sé ábóta­vant. Dæmi séu um að konur hafi fengið röng lyf og fálát svör við fyr­ir­spurnum. 

Í sér­stakri grúppu á Facebook hafa margar konur greint frá reynslu sinni af Livio. Margar kvarta yfir því hversu lít­il­fjör­legar rann­sóknir séu sem gerðar eru á konum í með­ferð. Ein­hverjar hafa brugðið á það ráð að leita til frjó­sem­is­klíníka á Spáni og í Grikk­landi þar sem þær segj­ast hafa fengið mikið betri þjón­ustu og jafn­vel á sann­gjarn­ara verði.

Finnst vanta upp „á mannlegu hliðina“

Tinna Kristín Þórð­ar­dóttir er ein …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • VB
    Viktoría Birgisdóttir skrifaði
    Mjög þörf úttekt! Mér finnst virkilega þurfa annað fyrirtæki eða endurbætur hjá Livio til að bæta þjónustu fyrir okkur sem þurfum á aðstoð að halda.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár