Þegar framtíðin hverfur má leita skjóls í eldamennsku

List­fræð­ing­ur­inn Margrét Elísabet Ólafs­dóttir brá sér í Norræna húsið og rýndi í sýn­ingu lista­manna frá Úkraínu.

Þegar framtíðin hverfur má leita skjóls í eldamennsku
Myndlist

Ho did I get to the bomb shelter

Gefðu umsögn

Hvernig ég komst í sprengju­byrgið er tit­ill sýn­ingar á verkum eftir úkra­ínska lista­menn sem nú stendur yfir í Hvelf­ingu, sýn­ing­ar­rými í kjall­ara Norræna húss­ins. Titilinn má túlka sem svar við spurn­ingu sýn­ing­ar­stjór­ans Yuliiu Sapiga: „Hverjar voru leið­irnar að per­sónu­legu skýli lista­mann­ana?“ þegar þeir stóðu frammi fyrir hörku og eyði­legg­ingu stríðs­ins sem hófst með inn­rás Rússa í Úkraínu fyrir rúmu ári. Hvernig fara lista­menn að því að halda áfram að vinna að list sinni og hvaða áhrif hefur stríðið haft á við­fangs­efni verka þeirra? Hvaða við­brögð við stríð­inu birt­ast í verk­unum og hvernig túlka lista­menn­irnir átök sem fjallað er um dag­lega í fréttum?

Blóðregn

Fyrsta verkið sem blasir við sýn­ing­ar­gestum er Ashes of War eftir Yaroslav Kostensko. Verkið er víd­eó­vörpun byggð á staf­rænni grátóna brjóst­mynd í líki mann­veru sem virð­ist við það að tæt­ast í sundur og verða hluti af brot­unum sem fljúga allt í kringum hana. Verkið er í senn fígúra­tíft og abstrakt því brjóst­myndin er and­lits­laus og hol, og yfir­borð hennar þakið hrjúfri áferð líkustum raf­seg­ul­bylgjum. Verkið býr yfir áhrifa­mætti ein­fald­leika og síend­ur­tek­innar spennu sem skap­ast þegar brjóst­myndin virð­ist við það að splundr­ast en fellur alltaf saman aftur í eina heild, föst í end­ur­tekn­ingu. And­spænis verki Kostenko er annað ekki síður áhrifa­mikið og fal­legt verk, We no lon­ger feel the fut­ure, eftir ljós­myndar­ann Olenu Subach. Verkið er marglaga inn­setn­ing í fleiri en einum skiln­ingi, en Subach vinnur með opnun og lokun, sam­band for­tíðar og nútíðar, hvers­dags­legrar feg­urðar og hryll­ings í áferð­ar­fal­legum ljós­myndum sem krefja áhorf­and­ann um ítar­lega skoðun.  Verkið er baðað rauðum lit, frá kög­ur­gard­ínum sem skilja ljós­mynd­irnar frá inn­gangi sýn­ing­ar­innar, rauðum máln­ing­ar­taumum á veggjum, og rauða litnum sem þrengir sér inn í flöt ljós­mynd­anna og er í texta­hluta verks­ins tengdur við blóð­regn.

Öðruvísi gríp­andi er verkið And who allowed you to live beauti­fully? eftir Sergiy Petlyuk. Hann vinnur með þyrp­ingu ljósa­skilta sem hefur verið komið fyrir úti á gólfi í miðju sýn­ing­ar­rým­inu. Skiltin standa ská­hallt líkt og flug­skeyti sem sting­ast ofan í jörð­ina og baða gólfið rauðri birtu. Eftir öllum skiltum rennur texti með ágengum titli verks­ins á úkra­ínsku. Inn­setn­ingin minnir óþægi­lega á það frið­sam­lega líf sem stríðið hefur raskar en setn­ingin er sótt í ljós­mynd af veggjakroti. Röskun á lífi hvers­dags­ins er einnig við­fangs­efni por­trett­ljós­myndaraðar Maksym Finogeiev, Will a rainbow app­ear after the storm? af ein­stak­lingum sem til­heyra sam­fé­lagi hinsegin fólks. Ljós­mynd­irnar ná ekki að öllu leyti að fanga við­kvæma stöðu þessa hóps en þær und­ir­strika sam­eig­in­lega mennsku sem stríðið ógnar að verði við­ur­kennd.  

Innst í miðju sýn­ing­ar­rým­inu er lág­stemmd inn­setn­ing með keramíkskúlp­t­úrum eftir Kinder Album sem ein­kenn­ist af tog­streitu milli feg­urðar og illsku. Titill verks­ins, Bones & Limbes eða bein og limir, er lýsandi fyrir allt að því „barns­lega krútt­leg“ keramíkverk af óbæri­legum og alltum­lykj­andi hryll­ingi sem er und­ir­strik­aður með hljóð­mynd verks­ins.

Hundur og kartöflur

Tvö verk­anna í mið­hluta sýn­ing­ar­innar náðu ekki fylli­lega tökum á mér. Annars vegar var um að ræða röð af por­trett­ljós­myndum  sem ég skildi ekki hvað voru að gera á sýn­ing­unni, en þeim fylgdu lýs­ingar á hremm­ingum íbúa Mariupol sem ekki var annað hægt en verða snort­inn af þótt list­rænt gildi verks­ins væri á reiki. Hitt verkið var mynd­bands­verkið „Juliette – Queen of Podil“ eftir Art Group SVITER. Þar kveður við annan tón en lista­menn­irnir Lera Polyanskoa og Max Robotov nýta sér heim­ilda­mynda­formið til að ræða við íbúa hverf­is­ins Podil í Kiyv um örlög tík­ur­innar Juliette sem íbú­arnir sáu í sam­ein­ingu um að fóðra áður en hún lét sig hverfa þegar loft­varn­arflautur og flug­skeyti rösk­uðu ró borg­ar­innar. Heim­ilda­mynda­formið er vand­með­farið en í hluta mynd­ar­innar reyna þau að sjá fyrir sér hvað hafi orðið um tík­ina með því að setja sig í hennar spor. Verkið beinir athygl­inni frá aug­ljósum hryll­ingi með því að velta fyrir sér örlögum hunds­ins.

Ég hreifst meira af inn­setn­ingu í þremur hlutum eftir Mikhaylo Barbash, Potates FREE, sem er stað­sett í innsta hluta sýn­ing­ar­rým­is­ins. Nálgun lista­manns­ins á við­fangs­efnið er á margan hátt ólík hinum verk­unum að við­fangs­efni og fram­setn­ingu. Lista­mað­ur­inn leitar í hvers­dag­inn en inn­setn­ingin er þrí­skipt, og er fyrsti hlut­inn skúlp­túr, annar hlut­inn mynd­band og sá þriðji röð af teikn­ingum. Skúlp­t­úr­inn lítur út eins og steyptur vegg­bútur, eins konar tálmi eða hindrun, ofan á hvern er búið að leggja tvo stóra kart­öflu­poka. Teikn­ing­arnar hanga inn­ram­maðar á einum veggnum og sýna af mik­illi nákvæmni hinar ýmsu kart­ö­flu­teg­undir en um þær er fjallað nánar í mynd­band­inu sem hefur að geyma lyk­il­inn að verk­inu. Þar sjáum við Mikhaylo Barbash skræla kart­öflur inni í litlu eld­húsi á meðan hann útskýrir sögu kart­öfl­unnar, rækt­un­ar­að­ferðir, nær­ing­ar­gildi og mis­mun­andi mat­reiðslu­að­ferðir. Hann talar um þýð­ingu kart­öfl­unnar fyrir hann sjálfan og útskýrir hvers vegna veit­inga­staðir bjóða upp á djúp­steiktar kart­öflur. Olían segir hann breytir efna­sam­setn­ingu kart­öfl­unnar og rýrir nær­ing­ar­gildi hennar en gerir hana einnig ein­stak­lega hita­ein­inga­ríka og góm­sæta. Barbash ætlar einmitt að steikja flysjaðar kart­öfl­urnar á þann hátt sem honum þykir best. Á meðan hann gleymir sér í þess­ari hvers­dags­legu athöfn sem elda­mennskan er dvelur hann í sínu eigin hug­læga „sprengju­skýli“, í skjóli frá hugs­unum um hörm­ungar stríðs­ins.

Sýn­ing­ar­stjór­anum Yuliiu Sapiga hefur tek­ist að setja saman margradda en heild­stæða sýn­ingu sem veitir áhuga­verða inn­sýn í sam­tíma­list í Úkraínu á sama tíma og hún dregur upp  áhrifa­mikla mynd af áhrifum stríðs­ins á lista­menn og við­fangs­efni verka þeirra.


Sýn­ing­ar­stjóri: Yuliia Sapiga
Stað­setn­ing: Hvelfing, Norræna húsið, Sæmund­ar­gata 11, Reykja­vík
Tímabil: 4. febr­úar - 14. maí 2023
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár