Baldvin kaupir erlenda starfsemi Samherja af foreldrum sínum og frænda

Baldvin Þor­steins­son, einn stærsti eig­andi Sam­herj­a­veld­is­ins, hefur keypt erlenda starf­semi syst­ur­fé­lags útgerð­ar­ris­ans. Selj­end­urnir eru for­eldrar hans Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga S. Guð­munds­dóttir og frændi hans Kristján Vil­helms­son.

Baldvin kaupir erlenda starfsemi Samherja af foreldrum sínum og frænda
Við hlið föður síns Baldvin hefur lengi starfað við hlið föður síns, Þor­steins Más Bald­vins­sonar, og vakti tals­verða athygli þegar hann réð­ist að Má Guð­munds­syni, þáver­andi seðla­banka­stjóra, þegar hann fylgdi föður sínum á fund stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis. Mynd: Anton Brink / Fréttablaðið

Baldvin Þor­steins­son, erf­ingi Sam­herj­a­veld­is­ins, hefur keypt erlenda starf­semi Samherja sem metin er á tugi millj­arða króna. Þar á meðal þau félög sem tengj­ast umfangs­miklum rann­sóknum yfir­valda á Íslandi og í Namibíu á mútu­greiðslum til áhrifa­fólks í Namibíu og Angóla. Morg­un­blaðið greindi frá kaup­unum í morgun og vitn­aði þess til stað­fest­ingar í Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, föður Baldvins og áður eins stærsta ein­staka eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins. 

Yfir­takan fer þannig fram að Baldvin eign­ast hol­lenska félagið Öldu Seafood, en sjálfur hefur hann búið og starfað hjá félag­inu í Hollandi und­an­farin ár. Þó að fyrir liggi að und­ir­liggj­andi eignir Öldu Seafood eru tug­millj­arða virði er ekki með öllu ljóst nákvæm­lega hvaða eignir það eru. 

Árs­reikn­ingur Öldu Seafood sýnir að um síð­ustu ára­mót var eigið fé þess rétt tæpar 385 …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu