Spenna vegna bílnúmeradeilu

Bann við serbneskum bílnúmerum í Kosovo hefur aukið spennu í norður­hluta landsins milli Serba og Kosovo-Albana.

Spenna í Kosovo
Spenna í Kosovo Spreng­ingar heyrð­ust í byrjun des­em­ber í borg­inni Mitrovica í norð­ur­hluta Kosovo. Hér sést sá hluti borg­ar­innar þar sem Serbar eru í meiri­hluta og hafa strengt fána Serbíu yfir götur. Mynd: AFP

Tilkynnt var um helgina að sveitar­stjórnar­kosningum verði seinkað í norður­hluta Kósóvó í þeim tilgangi að draga úr spennu sem myndast hefur á milli nágranna­ríkjanna Kósóvó og Serbíu. Kosningarnar áttu að fara fram í lok desember en hefur verið frestað fram til 23. apríl 2023. Boðað var til kosninga í bæjunum Norður-Mitrovica, Zubin Potok, Zvecan og Leposavic eftir að bæjar­stjórnar­fulltrúar af serbnesku þjóðerni sögðu af sér í nóvember til þess að mótmæla banni við bílnúmera­plötum sem gefnar eru út í Serbíu. 

Neita að nota Kósóvó-númer

Bannið hafði verið sett á af stjórn­völdum í Kósóvó. Um 50 þúsund íbúar í norður­hluta Kósóvó, sem eru að meirihluta af serbneskum uppruna, höfðu neitað að nota númera­plötur frá Kósóvó þar sem þau viðurkenna ekki sjálf­stæði landsins og telja sig hluta af Serbíu. Lang­stærstur hluti íbúa Kósóvó eru af albönskum uppruna. Ákvörðunin um bílnúmera­plöturnar hafði valdið mikilli reiði í samfélagi Serba í Kósóvó og …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár