Sautján árásarmenn sjást á myndbandsupptöku innan úr Bankastræti Club

Upptökur úr örygg­is­mynda­vélum innan úr Banka­stræti Club sýna árás sautján grímu­klæddra manna á þrjá sem voru þar staddir. Lögregla hefur hand­tekið tæp­lega þrjá­tíu manns vegna máls­ins.

Upptaka Myndbandi úr öryggismyndavél sem staðsett er fyrir utan kareoke-herbergi í kjallara Bankastrætis Club. Sautján grímuklæddir menn sjást æða inn í herbergið.

Hópurinn sem réð­ist til atlögu gegn þremur mönnum á skemmti­staðnum Banka­stræti Club á fimmtu­dags­kvöld gekk ákveðið til verks þegar hann leit­aði þá uppi inni á staðnum. Myndbönd úr eft­ir­lits­mynda­vélum inni á staðnum sýna þetta. Árásin átti sér stað í kara­oke her­bergi á skemmti­staðnum sem er í kjall­ara húss­ins við Banka­stræti. Stundin hefur upp­tökur úr örygg­is­mynda­vélum sem stað­settar eru bæði fyrir utan og inni í her­berg­inu. Þessi mynd­bönd hafa gengið manna á millum und­an­farið. 

Ekki er hægt að greina hverjir menn­irnir eru á þessum upp­tökum þar sem allir sautján sem sjást fara niður í kjall­ara húss­ins við Banka­stræti voru með grímur. Þá sést ekki hversu margir þeirra eru vopn­aðir en árásin sjálf náð­ist á upp­töku. Þar sést hvernig tveir þolendur árás­ar­innar eru kró­aðir af úti í horni áður en höggin eru látin dynja á þeim. Þriðji mað­ur­inn sem var stung­inn virð­ist hafa mætt árás­ar­hópnum í dyra­gætt­inni á her­berg­inu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hafa þeir sem ráð­ist var á séð upp­tök­una. 

Mun fleiri en menn­irnir sautján sem sjást á upp­tök­unum af sjálfri árásinni fóru inn á Banka­stræti Club í tengslum við árás­ina, sam­kvæmt lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem rann­sakar málið. Í dag höfðu 28 verið hand­teknir vegna árás­ar­innar og en í gær voru þeir 27 og þá var fjög­urra enn leitað, sam­kvæmt fréttum RÚV.

Mynd­bandið sýnir árás­ina inni í her­berg­inu. Við vörum við mynd­band­inu. 

Mynd­böndin hafa gengið á milli manna í einka­skila­boðum í dag. Til við­bótar hafa líka gengið skila­boð þess efnis að hefna eigi árás­ar­innar um kom­andi helgi. Talað hefur verið um tugi manna í því sam­hengi. Lögregla hefur aukið við­búnað vegna máls­ins í mið­borg­inni en Ásgeir Þór Ásgeirs­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagði þó við RÚV í dag að ekki væri ástæða til að vara fólk til að koma í mið­borg­ina um helg­ina. 

Þriðja mynd­bandið hefur einnig verið í dreif­ingu á net­inu í tengslum við málið. Það sýnir bens­ín­sprengju kastað í glugga húss á ótil­greindum stað. Und­an­farna daga hefur máls­að­ilum verið hótað og meðal ann­ars ráð­ist að heim­ilum þeirra með þessum hætti. Deiling mynd­bands­ins hér að neðan hefur farið fram í tengslum við þá umræðu en Stundin hefur ekki stað­fest hvenær mynd­skeiðið var tekið. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár