972. spurningaþraut: Hver hefur hlustað á plötuna Blue & Lonesome?

972. spurningaþraut: Hver hefur hlustað á plötuna Blue & Lonesome?

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi brosmilda kona heldur upp á 79 ára afmæli sitt í dag. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hin stór­hættu­lega Ebóla-veira hefur verið nær alveg bundin við eina heims­álfu. Hver er sú?

2.  Hvaða þétt­býl­is­staður er við mynni Beru­fjarðar?

3.  Fræg hljóm­sveit gaf síð­ast út plötu fyrir sex árum, 2016. Sú hét Blue & Lonesome og vakti nú ekki sér­staka lukku, þótt hljóm­sveitin sé eftir sem áður víð­fræg. Næsta stúd­íó­plata á undan hafði komið út 2005 og hét A Bigger Bang og þótti nú ekk­ert frá­bær heldur. En þar sem þetta eru stúd­íó­plötur númer 25 og 26, þá á hljóm­sveitin nóg af eldri lögum til að spila á sínum vin­sælu tón­leikum. Hvað heitir hljóm­sveitin?

4.  Tón­list­ar­mað­ur­inn Sturla Atlas er með þeim vin­sælli af yngri kyn­slóð. En hann sinnir jöfnum höndum annarri list­grein, því hann er líka ... hvað?

5.  Hvaða tvær þjóðir kepptu til úrslita á HM karla í fót­bolta 2018?

6.  Hversu mikið salt er í lík­ama með­al­manns? Er rétta svarið: 15 grömm — 250 grömm — 500 grömm — eitt kíló?

7.  Önnur úr lík­ams­fræðum: Hvar í lík­am­anum er mest­allur járn­forði hans geymdur? Er það: Í bein­unum — í blóð­inu — í heil­anum — í hjart­anu — í lifr­inni — í nýrna­hett­unum?

8.  Hvaða frægi karl í mann­kyns­sög­unni var sonur manns að nafni Bessaríon eða Vissaríon?

9.  Hver er ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála?

10.  Öfl­ug­asti jarð­skjálfti sem vitað er um varð 1960 og mæld­ist um 9,5 sam­kvæmt þeim skala sem nú er not­aður. En hvar varð hann? Í Indo­nesíu — í Kákasus­fjöllum — í Kína — eða í Tjíle?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra heldur upp á sjö­tugs­af­mælið sitt í dag. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Afríka.

2.  Djúpi­vogur.

3.  Rolling Stones.

4.  Leikari.

5.  Frakkar og Króatar.

6.  250 grömm.

7.  Í blóð­inu.

8.  Stalín — hann hét Jósef Vissaríonovitch að skírnar- og föð­ur­nafni.

9.  Svandís Svav­ars­dóttir.

10.  Í Tjíle.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Sylvía drottn­ing í Svíþjóð.

Á neðri mynd­inni er Jónína Bjartmarz.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár