970. spurningaþraut: Jólabækurnar 2022, I.

Þessi þemaþraut snýst um jóla­bækurnar í ár.  Fyrri auka­spurning:

Höfundurinn hér að ofan sendir frá sér vísinda­skáldsögu fyrir þessi jól. Hvað heitir hann?

***

Aðal­spurningar:

1.  Ein af mest seldu bókunum heitir Játningin. Hver skrifar hana?

2.  Játningar heitir önnur bók sem kemur út um jólin, frönsk bók sem Pétur Gunnarsson þýddi. Hver skrifaði þá bók fyrir margt löngu?

3.  Mest selda barna­bókin fram að þessu virðist vera Bannað að ljúga eftir ... hvern?

4.  Á sporbaug heitir skemmtilegt fræðirit sem vakið hefur nokkra athygli en þar skrifa þær Anna Sigríður Þráins­dóttir og Elín Elísabet Einars­dóttir um nýyrða­smíð tiltekins höfundar á fyrri tíð. Hver var nýyrða­smiðurinn?

5.  Vinsæl skáldsaga eftir Kristínu Eiríks­dóttur heitir mjög stuttu og snaggaralegu nafni. Hvaða nafn er það?

6.  Kyrrþey heitir ein af metsölu­bókum ársins. Hún er eftir gamal­reyndan höfund, sem sé ... hvern?

7.  Ein af bókunum í flokki fræðirita sem best hefur selst er eftir Þorvald Friðriksson og fjallar um áhrif hverra á íslenska sögu og menningu?

8.  Gættu þinna handa er eftir mjög vinsælan höfund, sem sé ... ?

9.  Karlmaður nokkur er ekki kunnastur fyrir ritstörf þótt hann hafi vissulega skrifað margt um ævina. En nú hefur hann út út Bréfin hennar mömmu þar sem hann birtir eigin æviminningar, auk bréfa móður sinnar. Hver er höfundurinn?

10.  Eden heitir ein af skáld­sögum ársins. Höfundurinn er vinsæll og hefur m.a.s. fengið bókmennta­verðlaun Norður­landaráðs, og heitir ... hvað?

***

Seinni auka­spurning:

Hér má sjá hluta af kápu frægrar vísinda­skáldsögu sem er að koma út á íslensku í fyrsta sinn. Nafn höfundarins sést þarna en hvað heitir bókin. Enskt nafn hennar dugar.

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Ólafur Jóhann.

2.  Rousseau.

3.  Gunnar Helgason.

4.  Jónas Hallgrímsson.

5.  Tól.

6.  Arnaldur Indriðason.

7.  Kelta.

8.  Yrsa Sigurðar­dóttir.

9.  Ólafur Ragnar Grímsson.

10.  Auður Ava.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Steinar Bragi, höfundur bókarinnar Dáin heims­veldi.

Á neðri myndinni er hluti kápu skáld­sögunnar Dune eftir Frank Herbert sem heitir Dúna á íslensku.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár