932. spurningaþraut: Flöktandi ljós yfir mýrum?

Fyrri auka­spurning:

Hér má sjá Júpíter, stærstu reikistjörnu sólkerfisins, og Jörðina okkar í fjórum stærðum. Hvaða Jörð er af hlutfalls­lega réttri stærð miðað við Júpíter? Er það A — B — C — eða D?

***

Aðal­spurningar:

1.  Hvaða dýr eru fræg fyrir að reisa stíflur í ám?

2.  Áður en Tom Cruise lagði fyrir sig leiklist ætlaði hann sér að verða ... hvað?

3.  Hann varð hins vegar að láta af námi fyrir það starf vegna ... hvers?

4.  Hvað hét bíómynd sem Cruise lék í árið 1986 og hann lék djarfhuga flugmann á orrustu­þotu?

5.  Hvað heitir dökkhærða söngkonan í hljóm­sveitinni ABBA?

6.  Milli Fáskrúðs­fjarðar og Beru­fjarðar á Aust­fjörðum eru tveir smærri firðir eða vogar eða víkur. Nefnið að minnsta kosti annan. Þeir sem hafa báða staðina fá lárvirðar­stig!

7.  Í hvaða heimsálfu er ríkið Sómalía?

8.  „Flöktandi ljós sem sjást að næturlagi yfir mýrum. Yfirleitt er þá metangas að brenna en það myndast við sundrun jurta­leifa í mýrum.“ Hvað kallast þessi ljósa­gangur - annað en mýrarljós?

9.  Hvað hefur verið algengasta kven­mannsnafn á Íslandi í aldir?

10.  Orðin „kirkja“ má rekja aftur til gríska orðsins „kyrios“. Hvað þýðir það?

***

Seinni auka­spurning:

Hver er karl þessi?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Bjórar.

2.  Prestur.

3.  Drykkju­skapar.

4.  Top Gun.

5.  Anni-Frid eða Frida.

6.  Breið­dalsvík og Stöðvar­fjörður.

7.  Afríku.

8.  Hrævareldur.

9.  Guðrún.

10.  Drottinn, leiðtogi, meistari — það er að segja guð.

***

Svör við auka­spurningum:

Sú Jörð sem er af réttri stærð er D, sú minnsta.

Sigurður Pálsson skáld er á neðri myndinni.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár