931. spurningarþraut: Hver komst af ásamt kettinum Jones?

931. spurningarþraut: Hver komst af ásamt kettinum Jones?

Fyrri auka­spurn­ing:

Dýrið hér að ofan er útdautt en við köllum það sam­other­ium, skrímslið frá Samos. Það var uppi fyrir 5-15 millj­ónum ára og bjó víða um Evrópu og Asíu. Hver er helsti núlif­andi ætt­ingi þessa dýrs?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hún heitir Ellen Louise Ripley. Næstum ekk­ert er vitað um æsku hennar eða upp­vöxt en athyglin beind­ist í fyrsta sinn að henni þegar hún var und­ir­for­ingi á skip­inu Nostromo, sem lenti í miklum hremm­ingum. Hún komst ein af ásamt kett­inum Jones. Hvar er greint frá þessum hörm­ungum öllum?

2.  Hver er besti vinur Bósa Ljósár?

3.  Hver gaf út skáld­sög­una Ungfrú Ísland árið 2018?

4.  Pablo Neruda var ljóð­skáld sem fékk bók­mennta­verð­laun Nóbels árið 1971. Hann skrif­aði á spænsku en frá hvaða landi var hann?

5.  Ári áður en Neruda fékk Nóbels­verð­launin, eða 1970, þá féllu þau í skaut Rússa eins sem hafði lent æ meir upp á kant við yfir­völd í Sov­ét­ríkj­unum vegna skrifa hans um kúgun og fanga­búðir. Að lokum var honum vísað úr landi. Hvað hét þessi rit­höf­undur og and­ófs­maður?

6.  Ein af bókum þessa höf­undar fjallar um upp­haf fyrri heims­styrj­aldar og nafn hennar er mán­uður og ártal — sá mán­uður og það ár þegar sá mikli hild­ar­leikur hófst. Bókin heitir þar af leið­andi ... hvað?

7.  Hvaða ríki til­heyrir eyjan Okinawa?

8.  Hún var lengi annar umsjón­ar­manna Virkra morgna á Rás tvö Rík­is­út­varps­ins, einnig umsjón­ar­maður Útsvars um hríð, flutt­ist svo á Húsavík í fáein ár en sér nú ásamt fleirum um síð­deg­is­út­varp á Rás tvö. Hvað heitir hún?

9.  Vallakía og Tran­syl­vanía eru hlutar af hvaða núver­andi ríki?

10.  Frægasti fursti Vallakíu var uppi á 15. öld og nefnd­ist Vlad Tepes. Í sögum og munn­legri geymd hefur hann þó fengið annað nafn. Hvað er hann kall­aður?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er ungi mað­ur­inn sem hér sést að neðan? Myndin er ekki alveg ný.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Í kvik­mynd­inni Alien.

2.  Viddi.

3.  Auður Ava.

4.  Tjíle.

5.  Solt­énitsyn.

6.  Ágúst 1914.

7.  Japan.

8.  Guðrún Dís, en Gunna Dís dugar prýði­lega.

9.  Rúmeníu.

10.  Dracula.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Gíraffi er nán­asti ætt­ingi skrímsl­is­ins frá Samos.

Á neðra skjá­skot­inu er Volodomyr Zelensky Úkra­ínu­for­seti ungur að árum.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár