„Við erum huldufólkið í kerfinu“

Guðlaug Svala Stein­unnar Krist­jáns­dóttir segir að ein­hverft fólk sé frá blautu barns­beini gaslýst dag­lega því að stöðugt sé efast um upp­lifun þess. Það leiði af sér flóknar and­legar og lík­am­legar áskor­anir en stuðn­ingur við full­orðið ein­hverft fólk sé nán­ast eng­inn. „Við erum huldu­fólkið í kerf­inu,“ segir Guðlaug sem glímir nú við ein­hverfukulnun í annað sinn á nokkrum árum.

„Við erum huldufólkið í kerfinu“
Guðlaug segir að grein­ingin hafi verið gjöf. Hún hafi loks­ins skilið hvers vegna hún þoldi illa áreiti og var því þreytt­ari en flestir í lok vinnu­viku til dæmis. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við þessi full­orðnu eða sein­hverfu, eins og ég kalla það stundum, erum hvergi skráð þó að spreng­ing hafi orðið í grein­ingum á ein­hverfu síð­ustu ár. Þar af leið­andi eru engin úrræði fyrir full­orðið ein­hverft fólk á Íslandi. Það þarf að kenna fólki að sjá okkur en þangað til það ger­ist erum við huldu­fólkið í kerf­inu,“ segir Guðlaug, sem er sjúkra­þjálf­ari að mennt og starfar nú sem verk­efnastjóri fræðslu hjá Ein­hverfu­sam­tök­unum.  

Guðlaug var greind ein­hverf þegar hún var 45 ára en stendur nú á fimm­tugu og er þessa dag­ana að hvíla sig fyrir vestan. „Ég er að prjóna í Önund­ar­firði,“ segir Guðlaug, sem saknar heils­unnar sem í annað sinn á nokkrum árum er á und­an­haldi.  

„Ég er á barmi kuln­unar. Ég er búin að finna fyrir mjög skýrum ein­kennum und­an­farið. Ég er úrvinda og hreyf­ing þreytir mig frekar en hressa mig við. Mér finnst …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Jónsdóttir skrifaði
    Takk fyrir kæra vinkona
    0
  • Guðbjörg Emilsdóttir skrifaði
    Takk fyrir frábæra grein.
    0
  • Guðrún Magnúsdóttir skrifaði
    Þetta er eins og talað út úr mínu hjart ég er nákvæmlega að uppgötva hvað það er sem að er búið að vera að hrjá mig til margra ára. Takk fyrir að sýna mér hvað ég er að glíma við og hvað get ég gert til að láta mér líða betur 💞😇💞
    0
  • Ingólfur Arnar skrifaði
    Þó ég tengi 100% og sé á grafarbakkanum þá veit ég ekkert hvað ég á að gera. Þetta hringsnýst allt í hausnum á manni. Ég hef orðið engan kraft til að gera neitt í málunum.
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Snilldargrein
    0
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Þekki þessi einkenni vel enda líður mér bast í einveru með hundinum mínum sem skilur mig betur en margt heilbrigiðis starfs fólk og hjalpar mér mikið ,til damis í því sem ég er að fara að gera hverju sinni .
    Ég er orðin gamal miðað við flesta sem eru á sama aldri og ég .
    En ég reini svo mikið að vera eins og venjulegt fólk að ég gleimi stundum að ég sé orðinn gamall .
    Gaslísingu kannast ég vel við og líka einelti af því fólk skilur ekki mína afstöðu til líssins .
    Stundum er maður svo þreittur þó maður sé ekkert að gera bara að sofa út í eitt og reina að stoppa heilann sem er alla daga á fullir ferð svo það er kannski skýringin á allri þreituni .

    Hef verið greindur ovirkur með athylisdbrest og með einkenni ADHD á háu stígi og gefið lif við því sem ég henti bara fljótlega ,enda hafði það einkar vond áhrif á mig .
    Ég hef líka drukið óhóflega mikið á mínum bestu árum og djöflast í vinnu alltaf þegar ég hef verið að stunda vinnu mína sem er byggingameistari .

    En sem betur fer er ég laus við áfengi í að minstakosti 4o ár eða svo með svo sem sprungum og fylleríi sem sem betur fer stendur stutt yfir og líður langur timi á milli svona á stundu 1o ár

    Hef orðið ver við að einn mér nákomin er ábyggilega með einhvarskonar einkenni einhverfu enda er hann/hún alltaf þreitt nú orðið þó hún sé í góðri vinnu sem aetti ekki að þreita mann svo mikið .

    Það er erfit fyrir nákominn að raeða þessi mál við vikomandi því viðbrögðin er alltaf þáu sömu að ég sé rugkaður sem er kanski rétt ,hver er ekki ruglaður ?
    Þar eru einkennin lík þinni reinslu af einhvarfu svo sem milil hvíði anköf og alskonar vanlíðan sem eigin skýring fynst við ,dettandi niður og stundum með ofsa hvíða sem leggur við komandi í rúmið .
    En allt kemur fyrir ekki ef vikomandi fer til laeknis það er ekkert að eða fynst ekki neitt að .

    Er sjalfur mikið skrifblyndur ,en það hefur lagast mikið þegar ég fékk greiningu 64 ára og visi þá hvað ADHD var og leiðrétti mig jafnóðum svo ég skilji sjalfur mína skrift sem ég skrifa og gengur það bara vel eftir miklar aefingar á því sviði.

    En allt er þetta sjalsvinna og viður kennig á hvar maður er og hvernig manni líður hverju sinni ,Enda maður sjalfur sinn besti laknir ef maður viðurkennir einkennin og tekst á við þaug en ekki fela þau.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ein í heiminum

„Rosalegt álag“ að vera einhverf úti í samfélaginu
ViðtalEin í heiminum

„Rosalegt álag“ að vera ein­hverf úti í sam­fé­lag­inu

Elísabet Guðrúnar og Jóns­dóttir segir að geð­ræn veik­indi sem hún hafi þjáðst af frá barn­æsku séu afleið­ing álags sem fylgi því að vera ein­hverf án þess að vita það. Stöðugt hafi verið gert lítið úr upp­lifun hennar og til­finn­ingum. Hún hætti því alfarið að treysta eigin dóm­greind sem leiddi meðal ann­ars til þess að hún varð útsett fyrir ofbeldi.
Einhverf án geðheilbrigðisþjónustu: „Háalvarlegt mál“
ÚttektEin í heiminum

Einhverf án geð­heil­brigð­is­þjón­ustu: „Háal­var­legt mál“

Stöðug glíma við sam­fé­lag sem gerir ekki ráð fyrir ein­hverfu fólki getur leitt til alvar­legra veik­inda. Þetta segja við­mæl­endur Stund­ar­innar sem öll voru full­orðin þegar þau voru greind ein­hverf. Fram­kvæmda­stjóri Ein­hverfu­sam­tak­anna segir þau til­heyra hópi sem fái ekki lífs­nauð­syn­lega þjón­ustu sem sé lög­brot. Sænsk rann­sókn leiddi í ljós að ein­hverfir lifi að með­al­tali 16 árum skemur en fólk sem ekki er ein­hverft. „Staðan er háal­var­leg,“ segir sál­fræð­ingur sem hefur sér­hæft sig í ein­hverfu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár